Borgun fær 6,5 milljarða vegna sölu Visa Europe

Borgun býst við því að fá 33,9 millj­ónir evra, um 4,8 millj­arða króna, í pen­ingum þegar Visa Inc. greiðir fyrir Visa Europe. Auk þess fær Borgun, líkt og aðrir leyf­is­hafar innan Visa Europe, afhent for­gangs­hluta­bréf í Visa Inc. að verð­mæti 11,6 millj­ónir evra, eða um 1,7 millj­arðar króna. Auk þess mun Visa Inc. greiða leyf­is­höfum afkomu­tengda greiðslu árið 2020 sem mun taka mið af afkomu starf­semi Visa í Evrópu á næstu fjórum árum, en hlut­deild Borgunar af þeirri fjár­hæð mun ráð­ast af við­skiptaum­svifum Borgunar sem hlut­fall af heild­ar­við­skiptaum­svifum allra selj­enda hluta­bréf­anna á þessum 4 árum.

Því er ljóst að Borgun mun fá um 6,5 millj­arða króna auk afkomu­tengdar greiðslu árið 2020 vegna sölu Visa Europe. Þetta kemur fram í svörum stjórn­enda Borgunar við spurn­ingum Lands­bank­ans sem send voru tiæ Stein­þórs Páls­sonar, banka­stjóra hans, í dag.

Landsbankinn sagðist ekki hafa verið upplýstur

Lands­bank­inn birti frétt á vef sínum í gær þar sem segir að stjórn­endur Borgunar hafi ekki upp­lýst sig um að fyr­ir­tækið ætti rétt til greiðslna vegna val­réttar í tengslum við sam­runa Visa Inc. og Visa Europe ef hann yrði virkj­aður.

Lands­bank­inn sendi bréf á stjórn­endur Borgunar á föstu­dag þar sem hann fór fram á að fá að vita hvort að stjórn­endur Borgunar hafi vitað um mögu­legan rétt til greiðslna þegar bank­inn seldi þeim, og með­fjár­festum þeirra, hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu á 2,2 millj­arða króna fyrir rúmu ári síðan. Stjórn­endur Borgunar hafi í raun ekki svarað þeim spurn­ingum sem Lands­bank­inn hafi leitað svara hjá þeim um í þeim yfir­lýs­ingum sem þeir hafi sent frá sér. Því hefur Lands­bank­inn, sem er nán­ast að öllu leyti í rík­i­s­eigu, farið fram á að stjórn­endur Borgunar myndi gera það í síð­asta lagi í dag.

Tveir kynningarfundir

Í svar­bréfi Hauks Odds­sonar, for­stjóra Borgunar, og Erlendar Magn­ús­sonar, stjórn­ar­for­manns fyr­ir­tæk­is­ins, sem sent var í dag segir að á tveimur kynn­ing­ar­fundum með full­trúum Lands­bank­ans á árinu 2014 hafi starf­semi Borgunar verið kynnt. „Meðal ann­ars voru starfs­leyfi Borgunar kynnt, þ.m.t. aðild að Visa Europe. Borgun hafði enga ástæðu, hvorki þá né síðar, til að ætla að Lands­bank­inn væri granda­laus um val­rétt­inn enda hann tengdur Visa starfs­leyfi Borgunar. Samkvæmt því sem bank­inn hefur sjálfur upp­lýst Alþingi um, var fjallað um val­rétt­ar­samn­ing á milli Visa Inc. og Visa Europe á banka­ráðs­fundi þann 7. mars 2013. Svo sem fram hefur komið opin­ber­lega mat Borgun ekki eign­ar­hlut sinn í Visa Europe sem veru­leg verð­mæti, enda ekki haft ástæðu til ann­ars fyrr en nú, meðal ann­ars þar sem verð­mæti hans er alfarið háð mögu­legri nýt­ingu þriðja aðila og sá nýt­ing­ar­réttur var til 99 ára. Borgun bjó aldrei yfir upp­lýs­ingum um hvort, hvenær né á hvaða verði Visa Europe yrði mögu­lega selt, fyrr en salan var gerð opin­ber þann 2. nóv­em­ber 2015. Vænt hlut­deild Borgunar í sölu­and­virði á Visa Europe varð síðan ekki ljós fyrr en með bréfi Visa Europe þann 21. des­em­ber sama ár."

Þrískiptar greiðslur

Í erindi Lands­bankas var einnig óskað upp­lýs­inga um hvaða fjár­hæð muni koma í hlut Borgunar vegna val­rétt­ar­samn­ings Visa Inc. og hversu stór hluti hennar verði rak­inn til rekstr­ar­sögu Borgunar fram til þess tíma er við­skipti þau, sem erindi Lands­bank­ans er sprottið af, áttu sér stað. Í svari Borgunar segir að sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingum frá Visa Europe verði greiðsla fyrir hlut­inn þri­skipt:

  1. a) Við fulln­ustu sölu verður innt af hendi ein­greiðsla í pen­ingum. Vænt hlut­deild Borgunar af þess­ari greiðslu verður €33,9 millj­ónir, en end­an­leg fjár­hæð ræðst af mögu­legum áfrýj­unum leyf­is­hafa um hlut­deild þeirra.

  2. b) Við fulln­ustu sölu fær Borgun, líkt og aðrir leyf­is­hafar, afhent for­gangs­hluta­bréf í Visa Inc. For­gangs­hluta­bréf þessi verða ekki skráð á verð­bréfa­markað, sem mun tak­marka mögu­leg við­skipti með þau. Gert er ráð fyrir að Visa Inc. hafi frest fram til árs­ins 2028 til að breyta for­gangs­hluta­bréf­unum að fullu í almenn hluta­bréf í Visa Inc., sem skráð eru í Kaup­höll­inni í New York. Skil­málar söl­unnar heim­ila Visa Inc. jafn­framt að skerða breytirétt þess­ara for­gangs­hluta­bréfa vegna skil­greindra atvika. Visa Inc. mun ein­hliða meta í fyrsta sinn á árinu 2020 hvort heim­ilt verði að breyta hluta þess­ara for­gangs­hluta­bréfa í almenn hluta­bréf. Þegar kaup Visa Inc. á Visa Europe voru til­kynnt í nóv­em­ber síð­ast­liðnum voru for­gangs­hluta­bréf þau sem koma í hlut Borgunar metin af Visa Inc. á €11,6 millj­ónir, miðað við að þeim væri að fullu umbreytt í almenn hluta­bréf í Visa Inc. á þeim degi.

  3. c) Á árinu 2020 mun Visa Inc. greiða leyf­is­höfum afkomu­tengda greiðslu, sem mun taka mið af afkomu af starf­semi Visa í Evrópu á næstu 4 árum, en hlut­deild Borgunar af þeirri fjár­hæð mun ráð­ast af við­skiptaum­svifum Borgunar sem hlut­fall af heild­ar­við­skiptaum­svifum allra selj­enda hluta­bréf­anna á þessum 4 árum.

Munu bókfæra hlut sinn í Visa Europe á 5,5 milljarða

Vænt­ingar standa til þess að hægt verði að fulln­usta kaup Visa Inc. á Visa Europe á öðrum árs­fjórð­ungi í ár. Stjórn­endur Borgunar segja að samt sem áður verði veru­leg óvissa um end­an­legt verð­mæti þeirra for­gangs­hluta­bréfa sem falli fyr­ir­tæk­inu í skaut. „Fyrir utan tak­mark­aðan sölu­mögu­leika eig­enda þeirra, þá verður verð­mæti for­gangs­hluta­bréf­anna háð almennri mark­aðs­þróun banda­ríska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins, verð­þróun hluta­bréfa Visa Inc. og geng­is­þróun Banda­ríkja­doll­ars á móti öðrum gjald­miðlum í rúman ára­tug, svo og end­an­legu hlut­falli breytirétt­ar­ins. Þá er afar mikil óvissa um hvort eitt­hvað og þá hve mikið muni koma í hlut Borgunar vegna afkomu­tengdra greiðslna fyrir hluta­bréfið á árinu 2020."

Vegna ofan­greindra óvissu­þátta varð­andi tvo af þremur greiðslu­hlutum, mun Borgun færa upp mat sitt á eign­ar­hlut sínum í Visa Europe í lok árs 2015 um 38,6 millj­ónir evra, eða um 5,5 millj­arða króna. Stjórn­end­urnir til­taka einni að meg­in­hluta hagn­að­ar­hlut­deildar Borgunar megi rekja til rekstr­ar­sögu Borgunar síð­ustu 18 mán­uð­ina fyrir sölu Visa Europe. Rúmir fjórtán mán­uðir eru síðan að Lands­bank­inn seldi hlut sinn í Borgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár