Segja stjórnendur Borgunar ekki svara spurningum um hvað þeir vissu

Lands­bank­inn segir að stjórn­endur Borgunar hafi ekki upp­lýst sig um að fyr­ir­tækið ætti rétt til greiðslna vegna val­réttar í tengslum við sam­runa Visa Inc. og Visa Europe ef hann yrði virkj­aður. Þær greiðslur munu lík­ast til hlaupa á millj­örðum króna og spila stóra rullu í því að heild­ar­virði Borgunar, sem var metið á um sjö millj­arða króna þegar Lands­bank­inn seldi 31,2 pró­sent hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu í nóv­em­ber 2014, er nú talið vera allt að 26 millj­arðar króna.

Lands­bank­inn vill fá að vita hvort að stjórn­endur Borgunar hafi vitað um mögu­legan rétt til greiðslna þegar bank­inn seldi þeim, og með­fjár­festum þeirra, hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu á 2,2 millj­arða króna fyrir rúmu ári síðan. Stjórn­endur Borgunar hafi í raun ekki svarað þeim spurn­ingum sem Lands­bank­inn hafi leitað svara hjá þeim um í þeim yfir­lýs­ingum sem þeir hafi sent frá sér. Því hefur Lands­bank­inn, sem er nán­ast að öllu leyti í rík­i­s­eigu, farið fram á að stjórn­endur Borgunar geri það í síð­asta lagi í dag.

Spurn­ing­arnar eru lagðar fram í bréfi sem sent var á for­stjóra og stjórn­ar­for­mann Borgunar á föstu­dag. Það má lesa hér. Steinþór Pálsson, banka­stjóri Lands­bank­ans, er skrif­aður fyrir bréf­inu.

Gæti farið í lögfræðilegan feril

Um liðna helgi var greint frá því að Lands­bank­inn hefði sent bréf til Borgunar þar sem farið var fram á það við stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins að þeir svari því hvaða upp­lýs­ingar hafi legið fyrir hjá fyr­ir­tæk­inu eða stjórn­endum þess um hvað það ætti rétt á að fá í sinn hlut ef Visa Inc. myndi kaupa Visa Europe, áður en Lands­bank­inn seldi þeim og með­fjár­festum þeirra hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu. Auk þess hefur Lands­bank­inn farið fram á að vita hversu stór hluti hennar verði rak­inn til rekstr­ar­sögu fyr­ir­tæk­is­ins áður en Lands­bank­inn seldi 31,2 pró­sent hlut sinn. .

Lands­bank­inn gaf stjórn­endum Borgunar frest þangað til á þriðju­dag til að svara spurn­ingum bank­ans. Steinþór Pálsson, banka­stjóri Lands­bank­ans, sagði í sam­tali við RÚV um helg­ina að hann tryði því að menn hefðu starfað af heil­indum í sölu­ferl­inu.„Það er það sem maður trúir, en við viljum sann­reyna það með þess­ari beiðni okkar til þeirra. En í öllum þessum sam­tölum okkar við Visa Europe, við Borgun, við Valitor og Arion banka líka, þá kom þetta aldrei upp að það væri hægt að ætla að þarna væru verð­mæti á ferð­inni.“

Ef það komi í ljós að upp­lýs­ingum hafi verið haldið frá Lands­bank­anum í sölu­ferl­inu á hlut hans í Borgun muni bank­inn leita réttar síns.„Þá er málið mjög alvar­legt, þá fer þetta bara í lög­fræði­legan feril. Þá munum við gæta okkar hags­muna með þeim aðferðum sem hægt er,“ segir Steinþór í sam­tali við frétta­stofu RÚV.

Sögðu bankann hafa haft aðgang að öllum gögnum

Stjórn­endur Borgunar sendu frá sér yfir­lýs­ingu vegna spurn­inga Lands­bank­ans í gær. Þar segir að Lands­bank­inn hafi haft aðgang að öllum gögnum í tengslum við sölu á hlut bank­ans í fyr­ir­tæk­inu í nóv­em­ber 2014. Útbúið hafi verið sér­stakt gagna­her­bergi þar sem Lands­bank­inn og aðrir aðilar máls höfðu fullan aðgang að ítar­legum upp­lýs­ingum um Borgun og rekstur félags­ins. „Þar lágu fyrir upp­lýs­ingar um aðild og eign­ar­hlut Borgunar í Visa Europe sem og upp­lýs­ingar um val­rétt­ar­á­kvæði milli Visa Inc. og VISA Europe.“ Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem Borgun hefur sent frá sér.

Þar segir einnig að Borgun hafi aldrei búið aldrei yfir upp­lýs­ingum um hvort, hvenær né á hvaða verði Visa Europe yrði selt, fyrr en salan var gerð opin­ber þann 2. nóv­em­ber 2015. Vænt hlut­deild Borgunar í sölu­and­virði á VISA Europe hafi ekki orðið ljós fyrr en 21. des­em­ber sama ár. „Fyrir þann tíma hafði Borgun engar for­sendur til þess að meta eign­ar­hlut sinn í Visa Europe á annan hátt en gert var.“

Borgun seg­ist enn fremur að fyr­ir­tækið muni veita Lands­bank­anum allar þær upp­lýs­ingar sem hann óski eftir sem teng­ist sölu­ferli hlutar Lands­bank­ans í Borgun vegna fyr­ir­spurna Banka­sýslu rík­is­ins og ann­arra opin­berra aðila.

Þurfa að svara í dag

Í til­kynn­ingu sem Lands­bank­inn birti í gær­kvöldi á heima­síðu sinni segir að við sölu á hlut sínum í Borgun hafði Lands­bank­inn enga vit­neskju um að Borgun ætti yfir­höfuð rétt til greiðslna vegna val­réttar í tengslum við sam­runa Visa Inc. og Visa Europe, kæmi til þess að hann yrði virkj­aður.

Bankinn segir að í yfir­lýs­ingu Borgunar sem send hafi verið fjöl­miðlum í gær hafi spurn­ingum Lands­bank­ans um málið ekki verið svarað. „Þar kemur ekki fram hvort Borgun eða stjórn­endur þess hafi vitað að fyr­ir­tækið ætti rétt til greiðslna vegna val­rétt­ar­ins. Engin svör hafa borist beint til Lands­bank­ans en bank­inn væntir þess að þau ber­ist[...]þriðju­dag­inn 9. febr­úar, líkt og óskað var eftir.“

Svör Borgunar við fyr­ir­spurn Lands­bank­ans verða meðal ann­ars notuð til að svara þeim spurn­ingum sem Banka­sýsla rík­is­ins hefur beint til bank­ans vegna Borg­un­ar­máls­ins. Lands­bank­inn til­tekur í bréfi sínu til Borgunar að svörin verði mögu­lega gerð opin­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár