Ísland spilltasta landið á Norðurlöndum

Ísland er spilltasta land Norð­ur­land­anna sam­kvæmt lista Transparency International fyrir árið 2015. Samtökin reikna út sér­staka spill­inga­vísi­tölu fyrir 168 lönd og raðar þeim síðar upp í lista þar sem minnst spillta landið situr í fyrsta sæti en það spilltasta í 168 sæti. Ísland situr nú í 13. sæti með alls 79 stig. Um er að ræða mark­verða breyt­ingu frá árunum 2005 og 2006 þegar Ísland var í 1. sæti list­ans, og þar með minnst spillta landið sem úttektin náð til, með 95 til 97 stig.

Nú verma nágranna­löndin Danmörk, Finnland og Svíþjóð efstu sætin þrjú og Noregur er í 5. sæti. Á Norð­ur­lönd­unum skynj­ast því mest spill­ing á Íslandi. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Gagnsæi- sam­tökum gegn spill­ingu, sem eru aðilar að Transparency International.

Leiðin legið hratt niður á við hjá Íslandi

Spill­ing­ar­vísi­tala Tran­spareny International er byggð á áliti sér­fræð­inga sem og almennri skynjun á spill­ingu í opin­berum stofn­unum og stjórn­sýslu. Þau lönd sem fá hæsta ein­kunn eiga það sam­eig­in­legt að þar er stjórn­sýsla opin og almenn­ingur getur dregið stjórn­endur til ábyrgðar. Lægstu ein­kunnir fá lönd þar sem mútur eru algengar, refsi­leysi ríkir gagn­vart spill­ingu og opin­berar stofn­anir sinna ekki hlut­verki sínu í þágu borg­ar­anna.

Síð­ast­liðin átta ár hefur leiðin legið hratt niður á við hjá Íslandi og árið 2013 féll 80 stiga múr­inn þegar Ísland lenti í 12. sæti, með aðeins 78 stig. Aðferða­fræði Transparency International sækir upp­lýs­ingar sínar til allt að 12 mis­mun­andi grein­ing­ar­fyr­ir­tækja og stofn­ana er sér­hæfa sig í rann­sóknum á stjórn­ar­fari og stjórn­un­ar­vísum í löndum heims. Hvað Ísland varðar voru not­aðar fimm gagna­upp­sprettur og var ein­kunna­gjöf þeirra: 87, 83, 65, 89 og 73.

Norður Kórea og Sómalía spilltustu löndin

Í til­kynn­ingu frá Gagnsæi vegna birt­ingar taln­anna segir að spill­ing­ar­vísi­talan nái að þessu sinni yfir 168 lönd og hlutu 2/3 þeirra 50 stig eða færri. Stiga­skal­inn nær frá 0, sem þýðir “mjög spillt”, upp í 100, sem þýðir “mjög lítið eða ekk­ert spillt”, Danmörk lenti í efsta sæti og er því talin minnst spillta land heims annað árið í röð, en Norður Kórea og Sómalía lentu í neðstu sæt­unum með aðeins átta stig hvort. „Efstu ríkin eiga það sam­eig­in­legt að þar er fjöl­miðla­frelsi; gott aðgengi að fjár­laga­upp­lýs­ingum svo að almenn­ingur viti hvaðan pen­ing­arnir koma og í hvað þeim er varið; sýnd heil­indi í starfi þeirra sem fara með almennt vald; dóms­kerfi sem dregur fólk ekki í dilka eftir ríki­dæmi eða fátækt og starfar enn­fremur algjör­lega sjálf­stætt gagn­vart lög­gjaf­arog fram­kvæmda­vald­inu. Löndin sem hafna neðst á list­anum eiga það aftur á móti sam­eig­in­legt að þar geisa oftar styrj­aldir, stjórn­skipan er veik, dóms­kerfið slakt og fjöl­miðlar ósjálf­stæðir. Þau lönd sem hafa lækkað mest á und­an­förnum 4 árum eru Líbýa, Ástralía, Brasilía, Spánn og Tyrkland. Aftur á móti hafa Grikk­land, Senegal og Bretland bætt sig mest.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár