Sögulegt samkomulag samþykkt með dynjandi lófaklappi í París

Sam­komu­lag nærri 200 ríkja um lofts­lags­mál er í höfn. Það var sam­þykkt rétt fyrir klukkan 18:30 að íslenskum tíma, í lok tveggja vikna ráð­stefnu í París.

Sam­komu­lagið er sögu­legt og er í fyrsta sinn sem ríki um allan heim koma sér saman um minnkun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og reyna þannig að kom­ast hjá verstu afleið­ingum lofts­lags­breyt­inga á heim­inn.

Kjarninn hefur haldið úti umfjöllun um fund­inn alla vik­una, en Birgir Þór Harð­ar­son blaða­maður var í París á fund­inum. Umfjöllun hans má lesa hér.

Halda á hlýnun heims­ins vel undir tveimur gráðum og miða við að ná henni í 1,5 gráður. Sam­komu­lag þess efnis verður laga­lega bind­andi. Rík ríki munu heita 100 millj­örðum dala fyrir árið 2020 til að hjálpa fátækum ríkjum. Rík­is­stjórnin og stór­fyr­ir­tæki hafa sagt að sam­komu­lagið sendi sterk skila­boð um að tími jarð­efna­elds­neytis sé að verða búinn.

Fyrr í dag sagði Laurent Fabius, utan­rík­is­ráð­herra Frakk­lands, að ef sam­komu­lagið yrði sam­þykkt yrði dag­ur­inn í dag sögu­legur. Hann greindi frá nokkrum atriðum og upp­skar fagn­að­ar­læti úr sal þegar hann sagði að unnið yrði að því að hlýnun jarðar verði nær 1,5 gráðum. „Við þurfum að sýna heim­inum að sam­eig­in­legt átak er meira virði heldur en aðgerðir hvers og eins,“ sagði hann.

Ban Ki-Moon, fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, tal­aði einnig á fund­inum fyrr í dag og sagði sam­komu­lags­drögin vera sögu­leg. „Sam­komu­lagið lofar að færa heim­inn inn á nýja braut. […] Klárum nú málið. Allur heim­ur­inn fylgist með.“

Meðal þess sem er nýtt í sam­komu­lags­drög­unum sem voru kynnt í dag er við­miðið um 1,5 gráðu hlýnun, sem er mun metn­að­ar­fyllra og erf­ið­ara mark­mið en tveggja gráðu hlýnun. Þá er kveðið á um að á fimm ára fresti verði kannað hvernig ríkj­unum gengur með lofts­lags­á­ætl­anir sína. Hins vegar er búið að taka út tíma­línu yfir það hvernig eigi að skipta út jarð­efna­elds­neyti á seinni hluta ald­ar­innar.

Fjölmörg félaga­sam­tök hafa strax sent frá sér álit á sam­komu­lags­drög­unum og við­brögðin eru að mestu leyti jákvæð. Greenpeace segir hjólin snú­ast hægt í lofts­lags­að­gerðum, en þau hafi snú­ist í París.

Sam­komu­lagið hefur hins vegar líka verið gagn­rýnd harð­lega, en í við­tali við Guardian segir James Hansen, sem vann hjá NASA og er álit­inn sá maður sem kom lofts­lags­á­hyggjum hvað mest á kortið, að sam­komu­lagið séu svik. „Það er bara kjaftæði að þau segi: „Við ætlum að hafa tveggja gráðu hlýn­un­ar­tak­mark og svo reyna að gera aðeins betur á fimm ára fresti.“ Þetta eru bara inn­an­tóm orð. Það eru engar aðgerðir, bara lof­orð. Á meðan jarð­efna­elds­neyti virð­ast vera það ódýrasta sem eru í boði, þá verður haldið áfram að brenna því.“ Hann segir að útblástur er ekki skatt­lagður þvert á alla verði eng­inn árangur. Slíkt muni bara koma í veg fyrir allra verstu afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár