Samanlagður hagnaður bankanna 436,5 milljarðar á sjö árum

Eig­in­fjár­hlut­fall hinna end­ur­reistu banka er hátt í alþjóð­legum sam­an­burði. Lands­bank­inn er stærsti bank­inn með eigið fé upp á 252,2 millj­arða króna.

Sam­an­lagður hagn­aður bank­anna, á þeim sjö árum sem þeir hafa starfað, nemur 436,5 millj­örðum króna. Það er upp­hæð sem nemur tæp­lega fjórð­ungi úr árlegri lands­fram­leiðslu Íslands, sem nam tæp­lega tvö þús­und millj­örðum króna í fyrra.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um stöðu banka­kerf­is­ins, eins og hún var um síð­ustu ára­mót, en þá var sam­an­lagður hagn­aður bank­anna 370 millj­arðar króna.

Mestur hagn­aður á fyrstu níu mán­uðum árs­ins var hjá Arion banka en hagn­aður hans nam 25,4 millj­örðum króna. Íslands­banki hagn­að­ist um 16,7 millj­arða króna á sama tíma og Lands­bank­inn um 24,4 millj­arða króna. Stór hluti hagn­aðar Arion banka skýrist af sölu hluta­bréfa í fyr­ir­tækjum í óskyldum rekstri, en hagn­aður grunn­rekstrar nam 13,4 millj­örðum króna.

Sam­an­lagt eigið fé bank­anna nemur nú 619 millj­örðum króna. Eigið fé Lands­banka Íslands, þar sem íslenska ríkið er lang­sam­lega stærsti eig­and­inn með 98 pró­sent hlut, nemur 252,2 millj­örðum króna, og hjá Arion banka er eigið fé 174,8 millj­arðar króna. Íslands­banki er síðan með eigið fé upp á 192 millj­arða króna, miðað við stöðu mála eins og hún var í lok sept­em­ber mán­aðar. 

Eig­in­fjár­hlut­fall bank­anna er hátt í alþjóð­legum sam­an­burði. Hjá Lands­bank­anum er það tæp­lega 30 pró­sent, hjá Arion banka 23,5 pró­sent og Íslands­banka 29,2 pró­sent.

Mikið eigið fé hefur safn­ast upp hjá bönk­unum, frá stofnun, enda hafa þeir ekki greitt út mik­inn arð til hlut­hafa og eigna­söfn verið upp­færð til hækk­unar frá því sem var við stofnun.

Lands­bank­inn hefur þó greitt umtals­verðan arð til rík­is­ins, en arð­greiðslur bank­ans, vegna síð­asta árs, nema 24 millj­örðum króna. Arion banki, sem er 87 pró­sent í eigu kröfu­hafa Kaup­þings og 13 pró­sent í eigu rík­is­ins, hefur ekki greitt út mik­inn arð til eig­enda frá stofnun, og ekki Íslands­banki heldur, í sam­hengi við heildar eigið fé, en sam­þykkt var þó að greiða níu millj­arða í arð til hlut­hafa vegna árs­ins í fyrra.

Kröfu­hafar Glitnis eiga 95 pró­sent hlut í bank­anum, og ríkið fimm pró­sent. Það mun breyt­ast á fyrri hluta næsta árs, að öllum lík­indum, þar sem ríkið mun eign­ast bank­ann að öllu leyti en þau umskipti á eign­ar­haldi eru hluti af stöð­ug­leika­fram­lagi kröfu­hafa vegna upp­gjörs slita­búa hinna föllnu banka, í sam­hengi við áætlun um losun fjár­magns­hafta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár