Stjórnendur með stærri hlut í Landsbankanum en aðrir

Ríkið stefnir að því að selja allt að þriðj­ungs­hlut í Lands­bank­anum á næsta ári. Sumir starfs­menn eiga meira en aðrir í bank­anum. Miðað var við lengd starfs­tíma og föst laun, þegar bréf voru afhent.

Æðstu stjórn­endur Lands­bank­ans eiga stærri eign­ar­hlut í bank­anum en aðrir starfs­menn, eða allt að þrefalt meira en megnið af þeim starfs­mönnum sem eiga hlut í bank­anum. Þetta sýna gögn um hlut­hafa Lands­bank­ans miðað við stöð­una eins og hún var, í lok árs 2014, sem Kjarninn hefur undir höndum. Þeir starfs­menn bank­ans sem eiga flesta hluti, af þeim sem komu til skipt­anna fyrir starfs­menn miðað við sam­þykkt hlut­hafa­fundar bank­ans frá 17. júlí 2013, eru Hreiðar Bjarna­son, Helgi Teitur Helgason og Árni Þór Þor­björns­son, en þeir áttu allir 528.732 hluti í lok árs í fyrra.

Þeir eiga allir sæti í fram­kvæmda­stjórn bank­ans. Hreiðar er yfir­maður fjár­mála, Helgi Teitur ein­stak­lings­við­skipta og Árni Þór Þor­björns­son fyr­ir­tækja­við­skipta.

Steinþór Pálsson, banka­stjóri, er ekki á meðal tíu stærstu hlut­hafa bank­ans en hann á 345.228 hluti í bank­anum, eða um 65 pró­sent af eign Hreiðars, Helga Teits og Árna Þórs.

Ríkið á 98 pró­sent hlut í bank­anum hlutur starfs­manna er um eitt pró­sent. Flestir af þeim 1.400 núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­mönnum bank­ans, sem fengu hluta­bréf í bank­anum, eiga á bil­inu 50 þús­und til 200 þús­und hluti.

Starfsmenn eignuðust hlut

Á hlut­hafa­fund­inum 17. Júlí 2013, voru stað­festar úthlut­un­ar­reglur um afhend­ingu hluta­bréfa til starfs­manna, en með afhend­ingu hluta­bréf­anna var Lands­bank­inn að upp­fylla þær skyldur sem samn­ingur um fjár­hags­legt upp­gjör við LBI hf., það er kröfu­hafa gamla Lands­bank­ans, og íslenska ríkið, sagði til um.

Hluta­bréfin sem starfs­menn fengu voru áður í eigu kröfu­hafa gamla Lands­bank­ans (LBI) og nema um einu pró­senti af heild­ar­hlutafé. Ríkið er lang­sam­lega stærsti eig­andi bank­ans, með um 98 pró­sent hluta­fjár.

Starfs­menn sem fengu hluta­bréf í bank­anum, gerðu það með skil­yrðum, um að óheim­ilt væri að selja bréfin fyrr en eftir þrjú ár frá afhend­ingu, en hluta þeirra má selja fyrr, komi til þess að bank­inn verði skráður á markað. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra, hefur sagt að það komi til álita, að selja hlut í bank­anum og um leið skrá hann á markað. Samkvæmt fjár­laga­frum­varp­inu fyrir næsta ár hefur ráð­herra heim­ild til þess að selja tæp­lega þriðj­ungs­hlut í bank­anum, og standa vonir til þess að allt að 71 millj­arður fáist fyrir þann hlut.

Samningur um árangurstengingu

Afhend­ing hluta­bréf­anna bygg­ist á samn­ingi frá 15. des­em­ber 2009 en þá gerðu Lands­bank­inn og LBI hf. , það er kröfu­hafar eða slitabú gamla Lands­bank­ans, og Stein­grímur J. Sig­fús­son, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra fyrir hönd íslenska rík­is­ins, samn­ing um fjár­hags­upp­gjör milli Lands­bank­ans hf. og slita­búss­ins. Með sam­þykki rík­is­ins var Lands­bank­anum gert að koma á árang­urstengdu launa­kerfi fyrir starfs­menn Lands­bank­ans hf. og setti íslenska ríkið skil­yrði um að það næði til allra starfs­manna. Kerfið skyldi taka mið af verð­mæti til­tek­inna eigna­safna stærri fyr­ir­tækja sem lágu til grund­vallar ákvörð­unar á fjár­hæð skil­yrts skulda­bréfs sem er hluti af fjár­hags­upp­gjör­inu. Nið­ur­staða verð­mats óháðs ytri aðila var að gefa skyldi út skil­yrta skulda­bréfið miðað við hámarks­fjár­hæð þess.

Samkvæmt þessu sam­komu­lagi skyldi slita­búið ráð­stafa af eign bús­ins, og þar með eign kröfu­hafa, 500.000.000 hlutum, um tvö pró­sent af heild­ar­hlutafé, í Lands­bank­anum sam­kvæmt úthlut­un­ar­reglum sem bank­inn skyldi koma á í síð­asta lagi fyrir árs­lok 2012. Þeim reglum var hins vegar ekki komið á fyrir þann tíma. Á hlut­hafa­fundi 27. mars 2013 var sam­þykkt að bank­anum væri heim­ilt að taka við hluta­bréf­unum frá slita­bú­inu en henni fylgdi kvöð um að afhenda bæri þau starfs­mönnum.

Við afhend­ingu hluta­bréf­anna var starfs­kjara­stefnu Lands­bank­ans fylgt, af því er sagði í til­kynn­ingu bank­ans, og mið tekið af reglum Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME) um kaupauka­kerfi fjár­mála­fyr­ir­tækja, en afhend­ing hluta­bréf­anna, eins og er í þessu til­felli, fellur ekki undir þær, strangt til tekið. Starfs­menn eft­ir­litsein­inga fá ekki afhent hluta­bréf en bank­anum er hins­vegar gert sam­kvæmt reglum FME að tryggja þeim jafn­ræði í kjörum með öðrum hætti.

Afhending hlutabréfa til starfsmanna

Hluta­bréfin voru afhent starfs­mönnum Lands­bank­ans og Lands­bréfa, dótt­ur­fé­lagi bank­ans, sem voru fast­ráðnir þann 31. mars 2013 og þeim sem látið hafa af störfum vegna ald­urs, örorku eða verið sagt upp í hag­ræð­ing­ar­skyni. Fjöldi afhentra hluta til hvers og eins starfs­manns er hlut­falls­legur og mið­ast við föst laun og þann tíma sem við­kom­andi hefur starfað hjá Lands­bank­anum frá 15. des­em­ber 2009 til 31. mars 2013.

Mikil verðmæti

Þó heild­ar­hluti ein­stakra starfs­manna í Lans­bank­anum sé lít­ill hluti af 25 millj­arða heild­ar­fjölda hluta í Lands­bank­anum, þá er um tölu­verð verð­mæti að ræða. Ekki síst þar sem miklar breyt­ingar hafa orðið á eig­in­fjár­stöðu Lands­bank­ans til góðs frá því hann var end­ur­reistur. Samkvæmt síð­asta birta upp­gjöri var eigið fé bank­ans um 250 millj­arðar króna og mark­aðs­hlut­deild á Íslandi mikil og stöðug. Meira en 113 þús­und ein­stak­lingar eru í við­skiptum við bank­anna, og ríf­lega ell­efu þús­und fyr­ir­tæki.

Sé mið tekið af gangi mála á hluta­bréfa­mark­aði hér á landi, þar sem mikil eft­ir­spurn hefur verið á und­an­förnum árum, þá er ekki úti­lokað að mark­aðsvirði Lands­bank­ans auk­ist við skrán­ingu, þó vandi sé um slíkt að spá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár