Kaldbakur, KEA og lífeyrissjóðir á meðal nýrra eigenda Íslenskra Verðbréfa

Hópurinn sem gengið hefur frá kaupum á 90 pró­sent hlut í Íslenskum verð­bréfum hf. hefur verið gerður opin­ber. Í honum er m.a. Ursus Maritimus Investors sem er félag í eigu Sigurðar Arn­gríms­sonar, Kald­bakur ehf. sem er fjár­fest­inga­fé­lag Samherja, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna Akur­eyr­ar­bæjar, KEA svf., Stapi líf­eyr­is­sjóður, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna sveit­ar­fé­laga, Festa líf­eyr­is­sjóður, Líf­eyr­is­sjóður Vest­manna­eyja, Kjálka­nes ehf. og Salvus ehf. í eigu Sigþórs Jóns­sonar fram­kvæmda­stjóra ÍV. Það er Kvika, sem áður hét MP Straumur, sem selur hlut­inn. Félag í eigu þess, íslensk eigna­stýr­ing ehf., mun áfram halda 9,99 pró­sent hlut sem það hyggst selja í náinni fram­tíð. Kaup­verðið er ekki gefið upp og sagt vera trún­að­ar­mál.

Greint var frá því í fjöl­miðlum á þriðju­dag að salan stæði fyrir dyrum.

Sigþór segir að það felist mikil við­ur­kenn­ing fyrir starfs­menn í nýju eign­ar­haldi. „Nýtt eign­ar­hald gefur félag­inu ýmis tæki­færi og gerir því kleift að sækja kröft­ug­lega fram á næstu miss­erum. Íslensk verð­bréf munu taka virkan þátt í íslensku atvinnu­lífi með víð­tæk­ari þjón­ustu við við­skipta­vini félags­ins. Styrkur ÍV felst meðal ann­ars í langri og góðri rekstr­ar­sögu ásamt því góða orð­spori og sér­stöðu sem félagið hefur skapað sér á löngu tíma­bili.“

Átök um eignarhaldið og sameiningu


Nokkur átök áttu sér stað um eign­ar­haldið á Íslenskum verð­bréfum í lok síð­asta árs, sem Kjarninn greindi ítar­lega frá. MP banki, Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna (LIVE) og félag í eigu Garðars K. Vil­hjálms­sonar gerðu til­boð í 27,5 pró­sent hlut Íslands­banka í Íslenskum verð­bréfum í októ­ber í fyrra. Föstu­dag­inn 24. októ­ber var ákveðið að taka til­boð­inu en þann sama dag bár­ust til­boðs­gjöf­unum upp­lýs­ingar um að Straumur hefði lagt inn til­boð í hlut­inn þegar allt stefndi í að kaupin myndu ganga í gegn. Þær upp­lýs­ingar, sem voru byggðar á orðrómi á fjár­mála­mark­aðnum, reynd­ust ekki réttar. Straumur gerði aldrei til­boð í hlut­inn.

Hins vegar keypti bank­inn 64,3 pró­sent hlut Sævars Helga­sonar og Ásgeirs Ásgeirs­sonar, í gegnum félagið Gunner ehf., í Íslenskri eigna­stýr­ingu ehf., sem átti þá 21,83 pró­sent hlut í Íslenskum verð­bréfum. Straumi bauðst síðan að ganga inn í til­boð í aðra hluti í Íslenskum verð­bréfum á grund­velli for­kaups­rétt­ar­á­kvæðis. Þar á meðal var 27,5 pró­sent hlutur Íslands­banka sem MP banki (10 pró­sent), LIVE (10 pró­sent) og Garðar Vil­hjálms­son (7,5 pró­sent) til­kynntu um kaup á í októ­ber. Í lok des­em­ber í fyrra hafði Íslensk eigna­stýr­ing eign­ast 58,14% hlut.

Í tengslum við þessar vend­ingar var vöngum velt yfir sam­ein­ingu MP banka, Straums og Íslenskra verð­bréfa. Af því varð ekki en í febr­úar á þessu ári var svo greint frá því að milli MP banka og Straums hefði náðst sam­komu­lag um sam­runa bank­anna. Þeir sam­ein­uð­ust svo form­lega í júní og breyttu nafni sínu nýverið í Kviku.

Starfað í tæpa þrjá áratugi


Íslensk verð­bréf eru sér­hæft eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki sem var stofnað árið 1987 og hvílir því á traustum grunni. Félagið hefur verið aðili að Kauphöll Íslands frá árinu 1995 og hefur starfs­leyfi sem verð­bréfa­fyr­ir­tæki. Félagið veitir alhliða þjón­ustu á sviði eigna­stýr­ingar og mark­aðsvið­skipta auk rekst­urs fram­taks­sjóða og sér­hæfðra fjár­fest­inga.

Dótt­ur­fé­lag Íslenskra verð­bréfa er ÍV sjóðir hf., og á félagið einnig 45,5 pró­sent eign­ar­hlut í Tplús ehf. Starfs­menn eru 19 og búa þeir yfir mik­illi reynslu og þekk­ingu á verð­bréfa­mark­aði sam­fara fjöl­breyttri menntun. Eignir í stýr­ingu hjá Íslenskum verð­bréfum eru um 111 millj­arðar króna og alls eru rúm­lega tvö þús­und ein­stak­lingar og lög­að­ilar með fjár­muni í eigna­stýr­ingu og vörslu hjá félag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár