Spjótin beinast að bankamönnum en ekki bara bönkum

„Bankar brjóta ekki gegn lögum, banka­menn gera það.“ Þannig hefst umfjöllun The New York Times um nýlega til­kynn­ingu frá dóms­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna, frá því í síð­ustu viku, þar sem því er heitið að rann­sóknir og sak­sóknir muni nú bein­ast að æðstu stjórn­endum banka og fjár­mála­fyr­ir­tækja í Banda­ríkj­unum. Til þessa hafa engir af æðstu yfir­mönnum stærstu fjár­mála­fyr­ir­tækj­anna verið lög­sóttir, þrátt fyrir að þau hafi mörg hver við­ur­kennt lög­brot og greitt sam­tals yfir 30 millj­arða Banda­ríkja­dala í sekta­greiðslur.

Sektir og saksóknir


Þessi opin­bera stefnu­breyt­ing kom mörgum á óvart og ýmsir ótt­ast að nú sé póli­tískur þrýst­ingur að hafa áhrif á það hvernig sækj­endur í málum sem tengj­ast bönkum muni horfa til mála sem tengj­ast banka­starf­semi. En hin hliðin er sú, að margir hafa und­rað sig á því hvernig rann­sóknum á umfangs­miklum málum sem tengj­ast mark­aðs­mis­notkun á mark­aði með vaxta­á­lag (CDS) og skulda­bréf, einkum á árunum 2007 til 2009, hefur verið lokið. Eitt dæmið snýr að stærsta banka Frakk­lands, BNP Paribas, sem við­ur­kenndi að hafa brotið gegn lögum í rekstri sínum og greiddi 8,9 millj­arða Banda­ríkja­dala, jafn­virði ríf­lega 1.200 millj­arða króna, í bætur. Banka­menn­irnir, sem sannað var að hefðu brotið gegn lögum og bank­inn við­ur­kenndi raunar sjálfur, sluppu hins vegar. Fjöldi sam­bæri­legra mála hefur komið upp á yfir­borðið og him­in­háar sekta­greiðslur í rík­is­sjóð látnar duga til að ljúka mál­unum fyrir fullt og allt.

Stefnubreyting er ekki ávísun að aðra niðurstöðu


David A. O'Neill, sem þar til fyrir skömmu var að yfir­maður sak­sókn­ara­deildar banda­ríska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, segir í við­tali við New York Times að stefnu­breyt­ing í þessum málum, sem nú hefur verið boðuð, þurfi ekki að breyta því hvernig þró­unin verði fyrir dóm­stólum. Málin séu erfið í sönnun, ef ekki liggja fyrir alveg skýr gögn sem að mati dóm­ara eru hafin yfir vafa um sekt. Í flestum mál­unum, þar sem grun­ur­leikur á glæp­sam­legum athöfnum banka­manna, þá sé mögu­legt að búa til sterkar varnir sem skapi vafa um sekt. Oft ljúki mál­unum því ekki með dómum. Í þessu ljós sé ákvörð­unin um hvort ákært skuli málum oft snúin.

Í nýlegum málum þar sem tveir sjóðs­stjórar hjá Bear Sterns og miðl­arar hjá JP Morgan voru sak­sóttir, þá vís­uðu dóm­stól­unum mál­unum frá eða sýkn­uðu. Und­ir­bún­ingur mál­anna hafði staðið árum saman, og rann­sóknin var ítar­leg, og afleið­ingar brot­anna var miklar fyrir allan fjár­magns­markað og höfðu meðal ann­ars áhrif á hús­næð­is­lána­vexti. Líkt og í mörgum öðrum málum, reynd­ust sann­an­irnar ekki nægi­lega traustar, að mati dóm­ara.


Deputy Attorney General Sally Quillian Yates spoke about new policy on indi­vi­dual liability in corporate wrongdoing pic.twitter.com/MhyUHmERRw


— NYU Law (@nyulaw) Sept­em­ber 10, 2015


Horft til langs tíma


Yfir­völdum hafa þó nokkuð traust land undir fótum í fjöl­mörgum málum, þar sem sektað hefur verið fyrir til­tekna hegðun og þeim lokið með við­ur­kenn­ingu á brotum. Ólíkt því sem margir telja, þá hafa samn­ingar um þessar sekta­greiðslur ekki úti­lokað dóms­mál á hendur þeim ein­stak­lingum sem ábyrgð báru á lög­brot­unum. Sally Yates, dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, sagði í ræðu sem hún hélt við laga­deild NYU á fimmtu­dag, að nú væri kom­inn upp tími þar sem ekki væri verið að velja úr til­tekin mál. Með þess­ari nýlegu stefnu­breyt­ingu, væri verið að horfa til langs tíma, og að áherslan yrði að vera á öll afbrot ein­stak­linga en ekki fyr­ir­tækja­sam­steypur. „Það er allt, eða ekk­ert,“ sagði hún og lagði áherslu á að eng­inn ætti að geta varið haf­inn yfir lögin eða geta samið sig frá lög­broti sem sann­ar­lega var framið. Þá væri ekki fram­hjá því horft, að ef það festi rætur í við­skipta­heim­inum, að það væri raun­veru­lega hægt að kom­ast upp með umfangs­mikla glæpi, sem hefðu mikl áhrif á almanna­hag, þá væri það alvar­legt mál. Slíkt mætti ekki ger­ast.

https://www.youtube.com/watch?v=EGrHu0aj_xA

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár