Eygló hvetur almenning til að hjálpa flóttafólki

Eygló Harð­ar­dóttir félags­mála­ráð­herra hvetur almenn­ing til þess að hjálpa flótta­mönnum sem hingað koma. Hún sagð­ist vilja taka á móti fleiri flótta­mönnum. Íslensk stjórn­völd hafa sam­þykkt að taka á móti 50 flótta­mönnum, en ákvörðun um að taka á móti fleirum hefur ekki verið tekin.

Eygló ræddi þessi mál í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í morgun.

Aðkallandi vandi flótta­fólks í millj­ón­a­tali sem nú flýr stríðs­hrjáð svæði meðal ann­ars í Sýrlandi, Írak og Afganistan hefur leitt til þess að Ban Ki-Moon, aðal­rit­ari Sam­ein­uðu þjóð­anna, hefur beðið þjóðir heims um að leggja miklu meira af mörkum til þess að hjálpa fólk­inu, en að und­an­förnu hefur straumur flótta­fólks til Evrópu þyngst veru­lega.

„Til þess að þetta geti gengið vel eftir þá þurfum við hjálp. Það er fólk á Íslandi núna sem hefur fengið stöðu flótta­fólks og þarf hjálp. Ég hvet fólk til að hafa sam­band við vel­ferð­ar­ráðu­neytið og Rauða kross­inn og spyrja hvað það geti gert til þess að hjálpa. Fólk þarf að fá vinnu, hús­næði, föt og til dæmis aðstoð við að læra á hvernig banka­kerfið virkar,“ sagði Eygló.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála­ráð­herra, sagð­ist í gær vera hlynntur því að leggja fram stærri hjálp­ar­hönd til flótta­manna, vegna hins for­dæma­lausa vanda sem millj­ónir manna væru í vegna flótta frá átaka­svæðum.

Mikill þrýst­ingur er nú á stjórn­völd um að gera meira fyrir flótta­menn en að taka ein­ungis á móti 50 manns, og hefur meðal ann­ars verið sett upp Facebook síða þar sem skorað er á íslensk stjórn­völd að taka á móti fimm þús­und flótta­mönnum, og hafa 7.300 manns skráð sig á síð­una með like hnapp á skömmum tíma.



Áður en flótta­fólkið kemur að gadda­vírs­girð­ing­unum Evrópu hefur ferða­lag þeirra frá Sýrlandi verið svipað og þess­ara vina.

Posted by Við skorum á stjórn­völd að taka á móti 5000 flótta­mönnum on Friday, August 28, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár