Týnda stríðið í Suður-Súdan

Í dag heldur yngsta sjálf­stæða ríki heims, Suður-Súdan, upp á fjög­urra ára sjálf­stæði sitt. Því miður er þó lítið til­efni til hátíð­ar­halda þar í landi um þessar mundir vegna borg­ara­styrj­aldar, sem fangar athygli vest­rænna fjöl­miðla af afar tak­mörk­uðu leyti. Þrátt fyrir að margt sé á upp­leið í Afríku sunnan Sahara, eins og bent hefur verið á á þessum vett­vangi, er saga Suður-Súdan síð­ast­liðin ár og ára­tugi blóði drifin og sorg­leg.

Árið 2011 fékk Suður-Súdan sjálf­stæði frá Súdan, en það liðu ekki nema tvö ár þar til borg­ara­styrj­öld braust út árið 2013 og þeim átökum er í dag hvergi nærri lokið. Hugtakið „harm­leikur“ er oft notað í dag­legu tali, en það er sjaldan jafn við­eig­andi og í til­felli Suður-Súdan. Það þarf því vart að taka fram að landið er í dag eitt allra fátæk­asta og van­þró­að­asta ríki heims.

Samfelld sorgarsaga


Súdan, sem Suður-Súdan til­heyrði áður, fékk sjálf­stæði frá Bretum árið 1956. Íbúarnir í suðri fengu þó ekki sjálf­stæði að kalla því þeim var ráðið frá Kartúm í norðr­inu. Íbúar Suður-Súdan eru flestir af niló­tískum upp­runa (e. Nilotic people), en í norð­ur­hluta lands­ins búa Arabar og skyldir þjóð­flokkar. Súdan hafði ekki verið sjálf­stætt lengi þegar fór að bera á kúgun og mis­skipt­ingu auðs og valds, sem hall­aði mjög á suð­ur­hluta lands­ins. Því braust út borg­ar­styrj­öld milli lands­hlut­anna nán­ast á sama tíma og landið fékk sjálf­stæði. Sú styrj­öld stóð allt fram til árs­ins 1972 og lauk með vopna­hléi þegar um hálf milljón manna lág í valnum.

Árið 1978 fund­ust miklar ólíu­lindir í Suður-Súdan og ekki leið að löngu þar til bar­átta um yfir­ráð yfir þeim leiddi til ann­arrar borg­ara­styrj­aldar. Önnur borg­ara­styrj­öld Súdan hófst árið 1983 og henni lauk ekki fyrr en árið 2005. Í stríð­inu féllu á milli 1 og 2 millj­ónir manna og 4 millj­ónir í Suður-Súdan neydd­ust til að flýja heim­ili sín. Stríðið er ein lengsta borg­ar­styrj­öld allra tíma og ekki hafa jafn margir óbreyttir borg­arar fallið í stríði frá lokum Síðari heims­styrj­ald­ar­innar. Þá er ekki með­talin annar hryll­ingur sem birt­ist í stríð­inu eins og þús­undir barna­her­manna og þræla­hald.

[caption id="attachment_33620" align="alignnone" width="1000"] Frið­ar­gæslu­liðar frá Suður-Kóreu leika við börn í borg­inni Bor fyrr í þessum mán­uði. Mynd:EPA[/caption]

Sjálfstæði og þriðja borgarastyrjöldin


Það var loks árið 2011 sem haldin var þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um sjálf­stæði Suður-Súdan og kusu 99% kjós­enda með sjálf­stæði. Átökum í land­inu var þó hvergi nærri lokið þegar landið fékk form­lega sjálf­stæði og Salva Kiir Mayardit varð fyrsti for­seti lands­ins 9. júlí 2011, ekki síst vegna deilna um yfir­ráð yfir olíu­lindum lands­ins. Í lok árs­ins 2011 brut­ust t.d. út mikil átök á milli Lou Nuer og Murle ætt­bálkanna.

Það var svo í des­em­ber 2013 sem yfir­stand­andi borg­ara­styrj­öld braust út þegar for­set­inn, sem til­heyrir Dinka ætt­bálknum sak­aði fyrr­ver­andi vara­for­set­ann Rieck Machar, sem til­heyrir Nuer ætt­bálknum, um valda­rán. Við það hófust bar­dagar á milli Nuer og Dinka her­manna. Fljót­lega blönd­uð­ust ýmsir skæru­liða­hópar og úganski her­inn inn í átökin og fólk tók að flýja landið í stórum stíl.

Þegar þetta er ritað standa átökin enn yfir, þó að sára­fáar fréttir um stríðið rati á síður íslenskra fjöl­miðla. Enginn veit hversu margir hafa fallið í stríð­inu, en í nóv­em­ber í fyrra var talið að a.m.k. 50,000 manns hafi fallið - hugs­an­lega tvö­falt fleiri.

Fórnarlömbin eru mun fleiri


Fólk sem fellur fyrir vopnum eru þó langt í frá einu fórn­ar­lömb stríðs­ins því meira en tvær millj­ónir manna hafa þurft að flýja heim­ili sín frá því að átökin hófust. Það, ásamt átök­unum, hefur leitt til þess að bændur geta ekki upp­skorið svo að óhætt er að segja að landið hafi verið á barmi hungusneyðar frá upp­hafði stríðs­ins. Vegna neyð­ar­á­stands­ins færir Mat­væla­á­ætlun Sam­ein­uðu þjóð­anna (WFP) fólki á átaka­svæð­unum hund­ruði tonna af mat á dag.

Á athygl­is­verðu bloggi, sem Stefán Ingi Stef­áns­son fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri UNICEF á Íslandi hélt úti þegar hann starf­aði í Suður-Súdan fyrir ári síðan, sést þetta glögg­lega. Ein færslan nefn­ist The F-word og vísar til þess að alvar­legar umræður áttu sér stað meðal hjálp­ar­stofn­anna í Júba, höf­uð­borg Suður-Súdan, um hvort kalla mætti aðstæð­urnar í land­inu „hung­ursneyð“ (e. famine). Skil­grein­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna á hungusneyð er þegar 30% mann­fjöld­ans er vannærður, 20% heim­ila búa við alvar­legan mat­ar­skort og a.m.k. tveir af af hverjum 10.000 deyja úr hungri á dag. Til að setja það í sam­hengi er það eins og ef um 70 manns myndu deyja á úr hungri á Íslandi dag­lega.

Stríðið hefur ekki ein­ungis valdið vannær­ingu, upp­skeru­bresti, lam­andi óör­yggi og því að líf fjöl­skyldna er hér um bil lagt í rúst. Kyn­bundið ofbeldi og hópnauðg­anir eru dag­legt brauð og reglu­lega ber­ast fregnir um fjöldamorð og morð erlendum frið­ar­gæslu­liðum. Stríð­andi fylk­ingar hafa jafn­framt þús­undir barna­her­manna á sínu bandi, bæði drengi og stúlkur, sem ganga til liðs við vopn­aða hópa í örvænt­ingu. UNICEF telur að sum þeirra séu ekki nema 9 ára gömul. Þá er heil­brigð­is­kerfi land­ins í molum og mennta­kerfið sömu­leiðis, en aðeins 27% þjóð­ar­innar er læs.

Hvernig er staðan í dag?


Það stóð til að kosn­ingar færu fram í júní síð­ast­liðnum en þeim var frestað um óákveð­inn tíma vegna stríðs­ins. Lítið hefur orðið ágengt í til­raunum til að enda átökin og frið­ar­um­leit­unum sem hófust í Addis Ababa í Eþíópíu í ágúst á síð­asta ári lauk án árang­urs fyrr á árinu. Átökin halda áfram og lítið bendir til þess að það muni breyt­ast á næst­unni.

Hagkerfi lands­ins er mjög djúpri kreppu og ofan á miklar olíu­verðs­lækk­anir und­an­farna mán­uði hefur olíu­fram­leiðsla í land­inu fallið um 70%, en olía er nán­ast eina útflutn­ings­vara lands­ins. Þá braust nýlega út kól­eru­far­aldur sem hefur fellt 70 manns og sýkt 3.200 manns þegar þetta er ritað og væg­ast sagt ógeðs­legar fregnir af ofbeldi ber­ast reglu­lega.

Það er enn von


„Það virð­ist alltaf ómögu­legt þar til það er búið.“ sagði Nelson Mandela eitt sinn. Þó að staðan í Suður-Súdan sé hörmu­leg er ennþá von. Ekki þarf að fara lengra aftur en til þjóð­ar­morð­anna í Rúanda árið 1994 til að sjá það. Síðan þá hefur verið friður og nokkur upp­gangur þar í landi - t.a.m. hefur lands­fram­leiðsla Rúanda fimm­fald­ast á 20 árum. Fáir hefðu getað ímyndað sér það á meðan þjóð­ar­morð­unum stóð. Alþjóð­sam­fé­lagið getur einnig beitt sér í meira mæli og hefur það skilað árangri að því leyti að nýlega voru hund­ruðir barna leyst undan vopnum vegna þrýst­ings frá UNICEF. En betur má ef duga skal.

Auðvelt er fyrir ein­stak­linga að hugsa með sér að þeir geti ekk­ert gert. Það er rangt. Til dæmis er hægt að styrkja ýmsar hjálp­ar­stofn­anir og mann­rétt­inda­sam­tök sem starfa í Suður-Súdan. Einnig gætu íslensk stjórn­völd lagt alþjóð­legum stofn­unum betur lið til að koma á friði í land­inu. Fáar þjóðir eiga jafn mikið skilið að fá loks­ins að búa við öryggi í frið­sælu landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár