Makrílkvóta úthlutað til smábáta - Gæti umbreyst í mikil verðmæti

Á dög­unum ákvað Sigurður Ingi Jóhanns­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra með sér­stakri reglu­gerð að breyta fyr­ir­komu­lagi við veiðar smá­báta á mak­ríl. Fyrir kom­andi ver­tíð sem hefst nú innan skamms verður mak­ríl­kvóta í fyrsta sinn úthlutað niður á ein­staka báta. Úthlut­unin mun byggja á afla­reynslu áranna 2009-2014 eftir ákveð­inni for­múlu. Á síð­ustu árum hefur gilt svo­kallað „ólympískt“ fyr­ir­komu­lag. Það felst í því að smá­báta­flokknum í heild er úthlutað heild­ar­kvóta fyrir kom­andi ver­tíð og svo hefur smá­bátum með gild veiði­leyfi verið frjálst að veiða þangað til heild­ar­kvót­anum er náð.

Þetta fyr­ir­komu­lag hefur haft það í för með sér að fjöl­margir útgerð­ar­menn smá­báta hafa verið kapp­samir að veiða sem allra mest þangað til heild­ar­kvót­anum er náð. Sókn­ar­þung­inn hefur því verið tals­vert mik­ill. Alls fá nú 192 smá­bátar úthlut­uðum mak­ríl­kvóta fyrir kom­andi ver­tíð. Um 86 af þessum bátum fá þó ein­ungis tíu tonn og minna í sinn hlut. Tuttugu stærstu kvóta­haf­arnir munu verða með um 50 pró­sent af kvóta smá­bát­anna. Flestir stærstu kvóta­haf­arnir koma af sunnan- og vest­an­verðu land­inu þar sem veiðin hefur verið best. Ef þessi úthlutun nú niður á ein­staka báta mun leiða til þess að var­an­leg afla­hlut­deild muni í fram­tíð­inni byggja á henni er ljóst að umtals­verð verð­mæti verða til fyrir við­kom­andi útgerðir. Of snemmt er að segja til um hvernig þau mál þró­ast þar sem mak­ríl­frum­varp sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra er í mik­illi óvissu á þing­inu.

Hlutdeild smábáta nálægt 5% af heild


Útgerð­ar­menn smá­báta hafa á síð­ustu árum náð sífellt betri tökum á veiðum á mak­ríl á sér­stak­lega útbúin veið­ar­færi. Afla­hæstu bát­arnir hafa veitt nokkur hund­ruð tonn á hverri ver­tíð og afl­inn hefur nán­ast allur farið til mann­eld­is­vinnslu. Útgerð­ar­menn bát­anna hafa smám saman þróað og fjár­fest fyrir umtals­verðar fjár­hæðir í veið­ar­færum fyrir veið­arnar með góðum árangri. Hlut­deild smá­báta í heildar mak­ríl­kvót­anum hefur hækkað á und­an­gengnum árum og nam í fyrra tæpum 5 pró­sent en þá veiddu smá­bátar um 7.400 tonn. Líkt og hjá stóru upp­sjáv­ar­skip­unum hefur til­koma mak­ríls verið mikil lyfti­stöng fyrir margar byggðir og hafa margar smá­báta­út­gerðir fengið umtals­vert meiri verk­efni á sína báta fyrir vikið.

Landssamband smábátaeiganda ósátt við ráðherra


Athygli vekur að stjórn Lands­sam­bands smá­báta­eig­enda seg­ist veru­lega ósátt við þessa úthlutun á mak­ríl­kvóta niður á ein­staka báta og telur ákvörðun Sigurðar Inga for­kast­an­lega í til­kynn­ingu. Stjórn Lands­sam­bands­ins vill hafa fyr­ir­komu­lagið óbreytt frá fyrra ári – þ.e.a.s. „ólympískt“ fyr­ir­komu­lag en vill að heild­ar­kvóti smá­báta­flokks­ins verði stór­auk­inn og hefur horft til þess að í Noregi nemur hlut­deild smá­báta í heildar mak­ríl­veið­inni um 16 pró­sentum. Þá telur stjórnin að með þess­ari reglu­gerð ráð­herra muni kvóta­setn­ingin sér­stak­lega gagn­ast þeim útgerðum smá­báta sem allra mest hafa veitt á und­an­gengnum árum en síður þeim sem síðar hófu veið­arnar og hafa nýlega fjár­fest í dýrum veið­ar­færa­út­bún­aði.

Makrílfrumvarpið í óvissu


Þessi reglu­gerð um fyr­ir­komu­lag við veiðar smá­báta hefur verið gefin út þótt óvíst sé nú hvernig mak­ríl­frum­varp sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra muni á end­anum líta út. Frum­varpið hefur nú um nokk­urt skeið verið í með­förum atvinnu­vega­nefndar og ýmsar breyt­ing­ar­til­lögur hafa verið ræddar en nið­ur­staða liggur ekki fyrir. Svo gæti farið að frum­varpið næði ein­fald­lega ekki fram að ganga. Ef svo verður mun veið­unum verða stýrt með útgáfu reglu­gerða sem gilda til árs í senn líkt og verið hefur und­an­farin ár.

Tuttugu stærstu með um 50% kvótans


Smábátar af Snæ­fells­nesi eru fyr­ir­ferð­ar­miklir á list­anum yfir þá sem fá mestan kvóta fyrir kom­andi ver­tíð enda hafa þeir náð mjög góðum árangri við mak­ríl­veið­arnar á síð­ustu árum. Sá bátur sem fær mestan mak­ríl­kvóta smá­báta fyrir ver­tíð­ina í ár er Fjóla GK með 331 tonn. Fjóla er með heima­höfn í Sand­gerði. Útgerð­ar­maður þess báts er Davíð F. Jónsson. Vísir.is greindi nýlega frá því að Davíð hefði átt sæti í sjáv­ar­út­vegs­nefnd Fram­sókn­ar­flokks­ins. Bátarnir Sæhamar SH og Litli Hamar SH, báðir í eigu Kristins J. Frið­þjófs­sonar ehf. á Rifi , fá sam­tals 445 tonnum úthlutað eða 6,3% af heild­ar­kvót­anum. Þá fær Tryggvi Eðvarðs­son SH á Rifi 131 tonnum úthlutað en hann er í eigu fjöl­skyldu Ásbjarnar Ótt­ars­sonar fyrr­ver­andi þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Heild­ar­sölu­and­virði vegna mak­ríls í fyrra nam meira en tutt­ugu millj­örðum í fyrra, en helsti mark­aður fyrir mak­ríl er Austur-Evrópa, einkum Rússland.

 


Makrílúthlutun smábáta 2015


Nafn Útgerð Heima­höfn Úthlutun, tonn Hlut­deild í smá­báta­flokki í %
1 Fjóla GK Arctic ehf Sand­gerði 331 4,72%
2 Siggi Bessa SF Erpur ehf Horna­fjörður 306 4,36%
3 Sæhamar SH Kristinn J. Frið­þjófs­son ehf Rif 260 3,71%
4 Álfur SH Útgerð­ar­fé­lagið Álfar ehf Arn­ar­stapi 216 3,07%
5 Brynja II SH Bjart­sýnn ehf Ólafsvík 199 2,84%
6 Litli Hamar SH Kristinn J. Frið­þjófs­son ehf Rif 185 2,63%
7 Ólafur HF Rjúpna­fell ehf Hafn­ar­fjörður 176 2,50%
8 Særif SH Melnes ehf Rif 163 2,32%
9 Ingi­björg SH Ingi­björg ehf Rif 159 2,27%
10 Dögg SU Ölduós ehf Stöðv­ar­fjörður 158 2,24%
11 Pálína Ágústs­dóttir GK K & G ehf Sand­gerði 155 2,21%
12 Ísak AK Eiður Ólafsson ehf Akranes 149 2,12%
13 Mangi á Búðum SH Útgerð­ar­fé­lagið okkar ehf Ólafsvík 149 2,12%
14 Fjóla SH Þór­is­hólmi ehf Stykk­is­hólmi 144 2,05%
15 Tryggvi Eðvarðs SH Nesver ehf Rif 131 1,86%
16 Addi afi GK Útgerð­ar­fé­lag Íslands ehf Sand­gerði 119 1,69%
17 Blíða SH Royal Iceland ehf Stykk­is­hólmi 116 1,65%
18 Máni II ÁR Máni ÁR 70 ehf Eyr­ar­bakki 116 1,65%
19 Hlöddi VE Búhamar ehf Vest­manna­eyjar 112 1,59%
20 Strekk­ingur HF Stormur Seafood ehf Hafn­ar­fjörður 108 1,54%
21 Herja ST Hlökk ehf Hólmavík 102 1,46%
Samtals 3.554 50,6%
Heimild: Lands­sam­band smá­báta­eig­enda

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár