Búið að semja við kröfuhafana um frábæra niðurstöðu

For­dæma­lausar aðgerðir íslenskra stjórn­valda til að losa um fjár­magns­höft voru kynntar í dag. Þjóð sem hefur verið föst í á sjö­unda ár í mjög hörðum höftum getur bráðum átt í eðli­legum gjald­eyr­is­við­skiptum milli landa. Hún getur átt erlendan gjald­eyri, keypt sér bíla eða fast­eignir erlendis, lánað pen­inga til útlend­inga og fjár­fest í hluta- eða skulda­bréfum í erlendri mynt. Sömu sögu er að segja af íslenskum fyr­ir­tækjum. Meira að segja líf­eyr­is­sjóðir lands­ins munu fá að fjár­festa erlendis, þótt sú fjár­fest­ing verði tak­mörk­unum háð. Þeir mega sam­eig­in­lega kaupa eignir utan lands­stein­anna fyrir tíu millj­arða króna á ári frá byrjun árs 2016 og til loka árs 2020.

Samhliða munu skuldir rík­is­sjóðs minnka um allt að þriðj­ung og vaxta­kostn­aður hans, sem í ár er áætl­aður 77 millj­arðar króna, drag­ast tölu­vert saman. Rík­is­sjóður mun þar af leið­andi borga minna af pen­ingum í skuldir og getur eytt meira af pen­ingum í annað, t.d. inn­viða­upp­bygg­ingu. Þetta ætti sam­hliða að bæta láns­hæfi íslenska rík­is­ins sem mun bæta láns­hæf­is­mat íslenskra fyr­ir­tækja og tryggja þeim betri lána­kjör á alþjóða­mörk­uðum.

Nið­ur­staðan er afrakstur samn­inga­við­ræðna milli stærstu kröfu­hafa föllnu bank­anna og fram­kvæmda­hóps um losun hafta, sem staðið hafa yfir frá því í des­em­ber 2014. Þeim við­ræðum lauk með því að kröfu­haf­arnir lögðu fram til­lögu sem búið var að sam­þykkja áður en kynn­ingin í Hörpu fór fram. Það er því búið að semja við kröfu­hafa föllnu bank­anna um að þeir megi slíta búum sínum og borga sér út erlendar eignir þeirra ef þeir gefa eftir inn­lendu eign­irnar. Þeir eiga síðan eftir að leggja samn­ing­inn fyrir kröfu­hafa­fund. Líkurnar á því að grípa þurfi til stöð­ug­leika­skatts eru hverf­andi.


Tvö stór vandamál


Til að hægt væri að losa um höft þurfti að leysa tvö mjög stór vanda­mál. Annað er krónu­eignir slita­búa föllnu bank­anna Glitnis, Kaup­þings og Lands­banka, sem áætl­aðar eru um 900 millj­arðar króna. Hitt eru aflandskrónur upp á 300 millj­arða króna í eigu útlend­inga. Til að útskýra hvernig þessi vandi varð til þarf að fara aftur fyrir hrunið.

Íslensku bank­arnir sem hrundu haustið 2008 voru rúm­lega tíu sinnum stærri en þjóð­ar­fram­leiðsla Íslands. Saman voru þeir eitt stærsta gjald­þrot sög­unnar. Íslenskt hag­kerfi var troð­fullt af íslenskum krónum í eigu útlend­inga eftir fall þeirra, vegna þess að pen­inga­magn hafði fjór­fald­ast á nokkrum árum, og nauð­syn­legt var að setja fjár­magns­höft til að halda þessum krónum inni. Ísland átti ein­fald­lega ekki gjald­eyri til að skipta þessum krónum í.

Staðan í dag er sú að umfang vand­ans er um 1.200 millj­arðar króna. Fallnar fjár­mála­stofn­anir eiga um 500 millj­arða króna í krónu­eignum og um 400 millj­arða króna í öðrum inn­lendum eignum. Þess til við­bótar eiga útlend­ingar um 300 millj­arða króna í svoköll­uðum aflandskrónum.

Búið að baka vöflurnar


Kynn­ing­ar­fund­ur­inn sem hald­inn var í dag fjall­aði um lausn­ina á þessum vanda. Þar var farið yfir svokölluð stöð­ug­leika­skil­yrði sem slitabú Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans þyrftu að upp­fylla til að fá að klára nauða­samn­inga sína og greiða kröfu­höfum erlendar eignir búanna. Í stuttu máli ganga þau skil­yrði út á að slita­búin gefi eftir um 900 millj­arða króna af inn­lendum eignum sínum.

Í 88 blað­síðna kynn­ingu á áætlun rík­is­stjórn­ar­innar var einnig eytt miklu púðri í að kynna 39 pró­sent stöð­ug­leika­skatt sem á að leggj­ast á allar eignir slita­bú­anna ef þau myndu ekki gang­ast við skil­yrð­unum sem sett yrðu fyrir und­an­þágum vegna gerð nauða­samn­ings. Raunar er ekk­ert eitt orð sem er nefnt oftar í kynn­ing­unni en stöð­ug­leika­skattur. Hann á að skila 850 millj­örðum króna ef skatt­ur­inn yrði lagður á.

Á glæru 57 var það hins vegar nefnt, í fram­hjá­hlaupi, að stærstu kröfu­hafar allra slita­bú­anna hafi allir lýst því yfir að þeir vilji ganga að stöð­ug­leika­skil­yrð­unum. Síðar kom í ljós að fram­kvæmda­hópur um losun hafta hefði stað­fest að til­lögur slitabú Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda falli innan þess ramma sem stýri­hópur um losun hafta hafði sam­þykkt. Fram­kvæmda­hóp­ur­inn mæli því með því að slita­búin fái und­an­þágu­heim­ild frá höftum til að ljúka nauða­samn­ingum á grund­velli til­lagna sinna. Til­lög­urnar voru lagðar fram í gær og í dag, áður en kynn­ing­ar­fund­ur­inn í Hörpu var hald­inn.

Þetta lá allt fyrir áður en kynn­ingin í Hörpu fór fram. Það var búið að semja um lausn, sem felur í sér eft­ir­gjöf inn­lendra eigna til að fá erlendar eignir greiddar út, og allar líkur eru á því að það þurfi aldrei að leggja stöð­ug­leika­skatt á nokk­urt bú.

Vert er að taka fram að þeir full­trúar slita­bú­anna sem lögðu fram til­lög­urnar eru ein­ungis full­trúar hluta kröfu­hafa, en þeirra stærstu í hverju búi fyrir sig. Enn á eftir að leggja til­lög­urnar fyrir á kröfu­hafa­fundi og sækja sam­þykki auk­ins meiri­hluta kröfu­hafa um að fara þá leið sem nú hefur verið lögð fram.

Það má líkja stöð­unni við það þegar búið er að und­ir­rita kjara­samn­inga, og baka vöfl­urnar, en félags­menn eiga enn eftir að greiða atkvæði um þá.

Skilyrði um hvernig peningunum verði eytt


Stöð­ug­leika­fram­lagið, sem slita­bú­unum ber að greiða til að upp­fylla skil­yrði stjórn­valda, er sam­sett úr sex þáttum. Þeir þættir snú­ast að mestu um hvernig rík­is­sjóður hyggst ráð­stafa því fé sem til fellur vegna fram­lags­ins. Það skiptir slita­búin eða kröfu­hafa þeirra varla miklu máli hvernig því fé sem þeir greiða fyrir und­an­þágur sínar frá höftum er eytt. Þeir ein­blína vænt­an­lega ein­ungis á hversu mikið af fé þeir þurfa að gefa eftir til að láta þær und­an­þágur verða að veru­leika.

Ljóst er að fram­lag­inu verður að stórum hluta ráð­stafað til að greiða niður skuldir rík­is­sjóðs. Meðal þeirra skulda sem verða greiddar niður eru gjald­eyr­is­lán rík­is­sjóðs og Seðla­banka Íslands sem veitt voru nýju bönk­unum. Auk þess verður beint fram­lag greitt í reiðufé til rík­is­sjóðs.


Losna við aflandskrónustabbann


Til við­bótar við lausn á vand­anum vegna slita­bú­anna kynntu stjórn­völd hvernig ætti að takast end­an­lega á við þann vanda sem aflandskrónur í eigu útlend­inga innan hafta hefur valdið. Eignir þeirra eru nú um 300 millj­arðar króna. Vandinn verður leystur með gjald­eyr­is­út­boði sem verður þannig að eig­endur þeirra geta valið á milli þriggja kosta: að skipta þeim í evrur með afslætti í útboði í haust sem munu ekki hafa nein áhrif á gengi krónu, fjár­festa í rík­is­skulda­bréfum til 20 ára eða geyma pen­ing­anna sína áfram á vaxta­lausum og læstum reikn­ingum. Með þessu leysir ríkið ekki bara aflandskrónu­vand­ann heldur getur líka náð í láns­fjár­magn á góðum kjörum til langs tíma. Hvatinn fyrir eig­endur aflandskrón­anna verður auð­vitað sá að ef þeir ganga ekki að þessum fjár­fest­inga­kostum munu þeir sitja eftir með pen­ing­anna sína á vaxta­lausum reikn­ingum.

Athygli vakti að í kynn­ing­unni kom fram að tíu fag­fjár­festar eiga meg­in­þorra þess­arra 300 millj­arða króna.

Góð niðurstaða sem margir komu að


Báðar aðgerð­irnar, sam­komu­lagið við slita­búin og lausn á aflandskrónu­vand­anum, skila því að staða Íslands í upp­hafi árs 2016 verður allt önnur en hún hefur verið lengi. Áhrifin við losun hafta, og þeirrar skulda­upp­hreins­unar sem ráð­ist verður í sam­hliða, verða gríð­ar­lega jákvæð. Stórt skref verður stígið úr þeirri gervi­ver­öld skil­yrtra og ójafnra tæki­færi sem höftin skópu í átt að eðli­legri og jafn­ari veru­leika.

Það skiptir líka miklu máli að það tak­ist að semja um nið­ur­stöðu við kröfu­haf­anna, líkt og nú hefur verið gert. Það tryggir að nið­ur­staða liggi fyrir fljótt og örugg­lega í stað þess að framundan gæti verið lang­vinn deila fyrir dóm­stólum vegna álagn­ingar sérstæks skatts á borð við stöð­ug­leika­skatt­inn sem var kynntur í dag.

Þegar er byrjað ein­hvers konar kapp­hlaup milli póli­tíkusa um að eigna sér nið­ur­stöð­una. Við blasir hins vegar að aðgerðir síð­ustu þriggja rík­is­stjórna skiptu allar miklu máli við að ná þeirri nið­ur­stöðu sem nú liggur fyrir. Neyð­ar­lögin bjuggu til grunn­inn að við­spyrnu íslensks sam­fé­lags, síð­asta rík­is­stjórn færði allar eignir slita­bú­anna undir höftin og fjar­lægði sól­ar­lags­á­kvæði haft­anna og sitj­andi rík­is­stjórn er að klára málið með þeim aðgerðum sem nú hafa verið opin­ber­aðar. Seðla­banki Íslands hefur líka unnið sleitu­laust að þess­ari nið­ur­stöðu frá árinu 2011 og á hrós skilið fyrir þá vinnu. Sömu sögu er að segja um þá sér­fræð­inga sem unnið hafa í, og með, fram­kvæmda­hópi um losun hafta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár