Tillögur slitabúanna í samræmi við skilyrðin – sjáðu tillögur þeirra allra

Fram­kvæmda­hópur um losun hafta hefur stað­fest að til­lögur slitabú Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda falli innan þess ramma sem stýri­hópur um losun hafta hafði sam­þykkt og mælir með því að þeir fái und­an­þágu­heim­ild frá höftum til að ljúka nauða­samn­ingum á grund­velli til­lögu sinnar. Þetta kemur fram á heima­síðu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Vert er að taka fram að þeir full­trúar slita­bú­anna sem lögðu fram til­lög­urnar eru ein­ungis full­trúar hluta kröfu­hafa, en þeirra stærstu í hverju búi fyrir sig. Enn á eftir að leggja til­lög­urnar fyrir á kröfu­hafa­fundi og sækja sam­þykki auk­ins meiri­hluta kröfu­hafa um að fara þá leið sem nú hefur verið lögð fram.

Þar segir einnig að með­limir fram­kvæmda­hóps Íslands um losun gjald­eyr­is­hafta (stofn­aður af fjár­mála­ráðu­neyt­inu og Seðla­banka Íslands árið 2014) og ráð­gjafar þeirra hafi haldið röð upp­lýs­inga­funda und­an­farna tvo mán­uði, m.a. með full­trúum lít­ils hóps fjár­festa sem eiga veru­legar kröfur í bú þriggja stóru íslensku bank­anna sem urðu greiðslu­þrota árið 2008, Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans. "Fram­kvæmda­hóp­ur­inn hefur einnig tekið við til­lögum frá kröfu­höfum sem sótt hafa þessa fundi um val­frjálsar ráð­staf­anir að þeirra frum­kvæði sem gerðar eru með það í huga að hlut­leysa þá ógn sem að greiðslu­jöfn­uði stafar vegna inn­lendra eigna í búunum. Í þessum til­lögum er íhugað að bregð­ast við þeirri ógn bæði með greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags ásamt öðrum ráð­stöf­unum sem ætlað er draga úr útflæði króna sem hafa verið fastar í gjald­eyr­is­höftum og efla gjald­eyr­is­vara­forða Seðla­banka Íslands," segir enn­fremur í frétt­inni.

Í nið­ur­lagi umfjöll­unar um til­lögu hvers og eins slita­bús segir að fram­kvæmda­hóp­ur­inn hafi stað­fest að til­lögur kröfu­hafa þeirra allra "séu í sam­ræmi við rammann sem studdur er af stýrinefnd­inni og leggur til að veitt verði und­an­þága á grund­velli til­lagna kröfu­hafa í slitabú". Veiti Seðla­banki Íslands und­an­þágu frá höftum á grund­velli tilagna kröfu­haf­anna skulu þær eignir sem ekki lengur sæta höftum vera til­tækar til útgreiðslur til kröfu­hafa í slita­búið í sam­ræmi við þá máls­með­ferð sem kveðið er á um í íslenskum lögum. Eignir bús­ins skulu í fram­hald­inu ekki sæta gjald­eyr­is­höftum á Íslandi og þá hvorki búið eða kröfu­hafar þess greiða stöð­ug­leika­skatt í neinni mynd eða sam­bæri­lega skatta eða gjöld.

Tillaga Kaupþings


Tillaga Kaup­þings kveður meðal ann­ars á um stöð­ug­leika­fram­lag til stjórn­valda sem felst í 84 millj­arða króna verð­tryggðs skulda­bréfs að nafn­virði í íslenskum krónum. Kaupþing fram­selur jafn­framt eignir, rétt­indi og kröfur bús­ins á hendur til­teknum inn­lendum aðilum að nafn­verði um það bil 114,8 millj­arðar króna. Skil­málar verð­tryggða skulda­bréfs­ins gera ráð fyrir tveimur jöfnum afborg­unum, tveimur og þremur árum eftir útgáfu þess. Vextir verða 5,5 pró­sent og verður tryggt með veði í skulda­bréfum útgefnum í evrum til með­al­langs tíma.

Þá verður sölu­virði sem fæst í 87 pró­senta hluta Kaup­þings í Arion banka við sölu bank­ans, umfram 100 millj­arða króna, milli Seðla­bank­ans eða öðrum aðila sem Seðla­bank­inn til­greinir. Ef upp­hæðin nemur á bil­inu 100 til 140 millj­örðum fær Seðla­bank­inn til sín þriðj­ung sölu­virðis umfram 100 millj­arða, upp að 160 millj­örðum fær bank­inn helm­ing sölu­virð­is­ins og 75 pró­sent sölu­virðis umfram 160 millj­arða króna.

Tillaga Glitnis


Í til­lögu Glitnis kemur fram að í kjöl­far fundar sem haldin var 2. júní síð­ast­lið­inn lagði Akin Gump LLP, lög­fræði­legur ráð­gjafi stórs hluta kröfu­hafa Glitnis, fram til­lögu til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, um hvernir Glitnir ætl­aði sér að mæta stöð­ug­leika­skil­yrð­unum. Tillagan er dag­sett í dag, 8. júní.

Á meðal þess sem fram kemur í til­lögu Glitnis er að slita­búið muni greiða í stöð­ug­leika­fram­lag 58 millj­arða króna greiðslu af lausum íslenskum krónum sem eru í slita­búi Glitnis, þar á meðal 37 millj­arða króna þær aðgreiðslu sem Íslands­banki (í 95 pró­sent eigu Glitnis) hefur ætlað að greiða búinu. Auk þess fá íslensk stjórn­völd kröfur á aðra inn­lenda aðila upp á 59 millj­arða króna og skulda­bréf upp á 119 millj­arða króna sem munu bera 5,5 pró­sent vexti. Skulda­bréfin verða greidd upp þegar Glitni tekst að selja 95 pró­sent hlut sinn í Íslands­banka eða þremur árum eftir að það verður gefið út gangi sú sala ekki eftir.

Auk þess fá íslensk stjórn­völd greiðslur vegna allra krafna í íslenskum krónum sem Glitnir gæti mögu­lega fengið vegna inn­lenda aðila, alls upp á 14 millj­arða króna, og allar greiðslur sem Glitnir gæti fengið í íslenskum krónum vegna dóms­mála sem höfðað hafa verið en er ekki lokið.

Glitnir má halda eftir fimm millj­örðum króna í íslenskum krónum til að greiða fyrir allan kostnað í krónum sem fellur til árin 2015, 2016 og 2017 og greiða á inn­lendum aðilum.

Tillaga Landsbankans


Tillögur Lands­banka Íslands gera ráð fyrir að í stöð­ug­leika­fram­lagi til stjórn­valda séu allar lausa­fjár­eignir þrota­bús­ins í íslenskum krónum. Auk þess verða kröfur bús­ins á hendur til­teknum inn­lendum aðilum fram­seldar. Virði krafna er metið um 9,5 millj­arðar króna. Sér­stak­lega er tekið fram að skulda­bréfið milli gamla og nýja Lands­bank­ans sé ekki hluti af samn­ingnum. Sama gildir um Avens-skulda­bréf, skuld­bréf útgefið af Lands­virkjun og kröfur í þrotabú Baugs, BG Holding, Kaupþing og Glitni.

Tillaga Glitnis.

Tillaga Kaup­þings.

Tillaga Lands­bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár