Karl Garðarsson: Sigmundur Davíð verður fyrir hatursumræðu og einelti

Karl Garð­ars­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir að hin nýja þjóð­fé­lags­um­ræða á inter­net­inu ein­kenn­ist af ill­mælgi og hatri, og póli­tískt ein­elti þyki sjálf­sagt. Í þess­ari nýju umræðu þurfi „aldrei að færa sönnur eða standa skil á hástemmdum yfir­lýs­ingum um nafn­greinda ein­stak­linga.“

Hann segir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son þyki til­valið skot­mark í þess­ari umræðu. „Þegar hann er ann­ars vegar er allt leyfi­legt og oftar er ekki er ráð­ist að honum per­sónu­lega. Ráð­herrar þurfa vissu­lega að geta tekið gagn­rýni, en hún þarf að vera heið­ar­leg og mál­efna­leg. Og hún á síst að öllu að bein­ast að per­sónu við­kom­andi,“ skrifar Karl á blogg sitt á Eyjunni.

„Ef menn reyna að bera hönd fyrir höfuð sér eru þeir sak­aðir um að vera hör­undsárir og kunna ekki að taka gagn­rýni. Þannig er tryggt að hat­ursum­ræðan fái að halda áfram og lifi sjálf­stæðu lífi.“

Karl segir að umræðan lúti stjórn „örfárra ein­stak­linga sem lítið annað virð­ast hafa fyrir stafni en að dreifa óhróðri um nafn­greinda ein­stak­linga. Við­hlæj­endur eru hins vegar margir.“

Karl segir að við séum komin langt út fyrir „sem eðli­legt getur talist“ í þessum málum. Umræðan og gagn­rýni sé góð en hatur og ein­elti sé engum til góðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár