Píratar langstærstir samkvæmt nýrri könnun

Píratar mæl­ast með 32 pró­senta fylgi í nýrri skoð­ana­könnun MMR. Flokk­ur­inn mælist langstærstur, með um tíu pró­sentum meira fylgi en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem mælist með 22 pró­sent.

Aðrir flokkar eru með um og undir tíu pró­senta fylgi sam­kvæmt könn­un­inni. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 10,8 pró­senta fylgi eins og Vinstri græn, Sam­fylk­ingin mælist með 10,7 pró­sent og Björt fram­tíð 8,3 pró­sent.


Í síð­ustu könnun MMR, sem lauk í byrjun apríl, mæld­ust Píratar með 27,4 pró­sent. Þá mæld­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 22,9 pró­sent og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 13,1. VG mæld­ust síð­ast með 9,8 pró­sent og bæta því við sig. Sam­fylk­ingin fer úr 11,4 í 10,7 og Björt fram­tíð mæld­ist með 10,3 pró­sent í síð­ustu könnun en 8,3 pró­sent nú.

Vikmörk í könnun sem þess­ari eru allt að 3,1 pró­sent. 1001 ein­stak­lingur var spurður í könn­un­inni, sem var fram­kvæmd dag­ana 16. til 21. apríl.

Óánægjufylgið til Pírata


Fyrir helgi birt­ist nýr Þjóð­ar­púls Gallup þar sem Píratar mæld­ust einnig stærsti stjórn­mála­flokk­ur­inn, með rúm­lega 30 pró­senta fylgi. 30 pró­senta fylgi eins og flokk­ur­inn mælist nú með er sexfalt meira fylgi en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum.

Þar mæld­ist fylgi vinstri grænna 10,6 pró­sent og hækk­aði örlítið milli kann­anna, en aðrir flokkar á þingi misstu fylgi á sama tíma. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mæld­ist í þjóð­ar­púls­inum með minnsta fylgi á kjör­tíma­bil­inu eða 22,9 pró­sent, og tap­aði 2,1 pró­sentu­stigi, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mæld­ist með 10,1 pró­sent og tap­aði 0,7 pró­sentum, Sam­fylk­ingin tap­aði 1,7 pró­sentum á milli kann­anna og mæld­ist með 14,1 pró­sent, tals­vert meira en í könnun MMR. Þá hélt fylgi Bjartrar fram­tíðar áfram að minnka, en flokk­ur­inn mæld­ist með 7,8 pró­sent og tap­aði 3,1 pró­sentu­stigi á milli kann­anna Gallup. Björt fram­tíð hefur tapað um tveimur fimmtu af sínu fylgi á tveimur mán­uðum og mæld­ist með minnsta fylgi sem mælst hefur við flokk­inn á kjör­tíma­bil­inu í þjóð­ar­púls­inum.

„Fljótt á litið lítur þetta út eins og óánægju­fylgi. Þetta er sams­konar fyr­ir­brigði og við höfum séð oft áður, að ein­hver stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn rýkur upp og það hefur ekk­ert endi­lega með hug­mynda­fræði flokks­ins að gera. Ég hef grun um að ansi fáir af þessum 30 pró­sentum hafi skýra mynd af stefnu­málum Pírata, þetta er meira þannig að fólk sé að leita sér að val­kostum við ríkj­andi ástand,“ sagði Gunnar Helgi Krist­ins­son stjórn­mála­fræð­ingur hjá Háskóla Íslands í sam­tali við Kjarnann um þjóð­ar­púls Gallup.

„Þetta er nátt­úru­lega alvar­legt fyrir rík­is­stjórn­ina, hún kemur gríð­ar­lega veikt út úr þessu og mikil óánægja er með hana. En þetta er ekki síður alvar­legt fyrir hina stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ana, af því að undir venju­legum kring­um­stæðum myndi ein­hver slíkur flokkur rjúka upp. Þetta er eitt­hvað sem er að gerj­ast í okkar sam­fé­lagi og reyndar í mörgum öðrum, að gömlu flokk­arnir eiga erf­ið­ara og erf­ið­ara að laða að sér fólk. Við erum með flokka­kerfi sem mót­að­ist í allt ann­ars konar þjóð­fé­lagi en við búum í núna, og það er ekk­ert óeðli­legt að fólk sé eitt­hvað dufla við eitt­hvað annað núna,“ sagði hann einnig.

Gunnar Helgi vill fara var­lega í það að túlka mikla fylg­is­aukn­ingu við Pírata sem ein­hvers konar stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við stefnu­mál flokks­ins. Hins vegar hafi fram­ganga flokks­ins að und­an­förnu vafa­lítið skilað sér í auknu fylgi, en það sama sé ekki upp á ten­ingnum hvað varðar Bjarta fram­tíð. „Þeir ná betur að tjá óánægju og kannski reiði og eitt­hvað þvíum­líkt heldur en Björt fram­tíð sem hefur kannski lagt áherslu á að vera mild­ari og hafa annan tón í póli­tík á meðan Pírat­arnir eru hvass­ari, en án þess að hafa misst sig í ein­hverja vit­leysu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár