Uppbygging ferðamannastaða líklegast á fjárlög - kostar um milljarð á ári

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra sem fer meðal ann­ars með ferða­mál í rík­is­stjórn­inni, segir að upp­bygg­ing ferða­manna­staðan verði lík­ast til sett á fjár­lög eftir að frum­varp um nátt­úrupassa náði ekki fram að ganga. Unnið sé með að um einn millj­arð króna vanti í upp­bygg­ingu ferða­manna­staða næstu árin og sú upp­bygg­ing mun þá keppa við annað fjár­magn sem ríkið útdeilir til verk­efna á hverju ári. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Þar segir hún líka fyr­ir­sjá­an­legt að sér­stakur tekju­stofn fyrir upp­bygg­ingu ferða­manna­staða, líkt og nátt­úrupass­inn átti að skapa, sé ekki að fara að verða til. Því verði fjár­mögnun verk­efna alltaf bundin sam­þykki Alþingis sem fer með fjár­laga­valdið.

Ragn­heiður Elín seg­irað miðað við reynslu af vinnu síð­ustu mán­aða við frum­varp um nátt­úrupassa, sem nú hefur dagað uppi í atvinnu­vega­nefnd, sjái hún ekki fram á að leggja frum­varpið fram í haust, eða yfir­leitt. Hún úti­lokar líka margar aðrar leiðir sem verið hafa í umræð­unni til að búa til sér­stakan tekju­stofn fyrir upp­bygg­ingu ferða­manna­staða. „Ég tel líka engar líkur á því, eins og umræðan er um þessi mál, að meiri sátt myndi nást um hækkun á gistin­átta­gjaldi, komu­gjöld - eða hvað annað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár