Refresco skráð á markað, hluthafar Stoða fá tugi milljarða í sinn hlut

Á blaða­manna­fundi sem hald­inn var í Amster­dam í morgun var til­kynnt að drykkja­vöru­fram­leið­and­inn Refresco-Gerber verður skráð á Euronext hluta­bréfa­mark­að­inn í Hollandi eftir ell­efu daga. Stoðir, sem áður hétu FL Group, eiga 32 pró­sent hlut í félag­inu.

Allir hlut­hafar munu selja helm­ing af því hlutafé sem þeir eiga í Refresco-Gerber við skrán­ing­una og gengið verður 13-16 evrur á hlut. Það þýðir að heild­ar­virði Refreso-Gerber er metið á 147 til 176 millj­arða króna. Þegar Refresco-Gerber verður skráð á markað þá verður gefið út 100 miljón evra nýtt hlutafé og hlutur Stoða þynn­ist því sem því nemur. Hlutur Stoða er sam­kvæmt þessu metin á 45 til 50 millj­arða króna. Um helm­ingur þeirrar upp­hæðar skilar sér til félags­ins við skrán­ing­una, sem fer fram 27. mars næst­kom­andi. Þetta stað­festir Júlíus Þor­finns­son, fram­kvæmda­stjóri Stoða, í sam­tali við Kjarnann.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans áform eru síðan uppi um að selja þann eign­ar­hlut sem eftir er á mark­aði í kjöl­far skrán­ingar.

Þrotabú Glitnis er langstærsti eig­andi Stoða, með rúm­lega 30 pró­sent hlut. Arion banki á síðan 16 pró­sent. Á meðal ann­arra eig­enda eru Lands­bank­inn, og sjóðir í stýr­ingu erlendu stór­bank­anna J.P. Morgan og Credit Suisse. Jón Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóri FL Group, Þor­steinn M. Jónsson, fyrrum stjórn­ar­for­maður Glitnis og áður stór hlut­hafi í FL Group, og Hilmar Þór Krist­ins­son, fyrrum fram­kvæmda­stjóri Kaup­þings, sitja allir í átta manna stjórn Refresco-Gerber fyrir hönd íslenskra eig­enda.

Endalok Stoða/FL Group nálgast


Júlíus segir að Refresco-Gerber hlut­ur­inn sé eig­in­lega síð­asta eignin sem Stoðir haldi á. „Það má segja að það sé búið að finna út úr nær öllum þeim lög­fræði­legu álita­efnum og dóms­málum sem félagið stóð í. Þetta er síð­asta eignin sem við höldum á. Við erum búin að greiða upp allar skuldir. Við erum búin að greiða upp allt for­gangs­hlutafé. Við greiddum þriggja millj­arða króna arð á síð­asta ári. Félagið er komið meira og minna fyrir vind.“

Því eru enda­lok Stoða, áður FL Group, nærri. Félagið er ein fræg­asta tákn­mynd íslensku útrás­ar­innar. Félagið fór ekki í þrot þrátt fyrir afleita stöðu eftir banka­hrunið, en það var meðal ann­ars stærsti ein­staki eig­andi Glitnis áður en að sá banki féll. Þess í stað var sam­þykktur nauða­samn­ingur við kröfu­hafa árið 2009. Síðan þá hefur verið unnið að því að leysa úr fjöl­mörgum lög­fræði­legum ágrein­ings­málum, greiða skuldir félags­ins og kröfu­höfum þess það sem eftir er í arð. Með söl­unni á hlutnum í Refresco-Gerber er ljóst að þeir geta átt von á tug­millj­arða króna arð­greiðslu á næsta ári til við­bótar við þá þrjá millj­arða króna sem félagið greiddi til þeirra á síð­asta ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár