Sérfræðingar gætu verið ákærðir brjóti þeir trúnað um haftalosun

Sér­fræð­ingar, innan og utan stjórn­ar­ráðs­ins, sem taka þátt í vinnu við losun fjár­magns­hafta eru bundnir af inn­herja­reglum sem stað­festar voru af Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, 7. októ­ber 2014 og tóku gildi 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Brjóti þeir gegn við­kom­andi reglum gætu þeir átt fang­els­is­vist yfir höfði sér. Þetta er meðal þess sem kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingar vegna vinnu við losun fjár­magns­hafta.

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn­inni til ráðu­neyt­is­ins 20. febr­úar síð­ast­lið­inn. Hún hefur verið ítrekuð nokkrum sinnum síðan. Svar barst í gær, átján dögum eftir að fyr­ir­spurnin var send, og í morgun birti ráðu­neytið síðan svarið á vef sínum.

Hópurinn breyst á síðustu misserum


Breyt­ingar voru gerðar á fram­kæmda­stjórn um afnám hafta í jan­úar síð­ast­liðnum. Þá fór Freyr Her­manns­son, for­stöðu­maður fjár­stýr­ingar Seðla­bank­ans, út úr hópnum og Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­ingar hjá MP banka, tók sæti í honum. Seðla­banki Íslands til­nefndi líka tvo starfs­menn bank­ans til að starfa í fram­kvæmda­hópnum: Ingi­björgu Guð­bjarts­dóttur, fram­kvæmda­stjóra gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­bank­ans,og Jón Þ. Sig­ur­geirs­son, fram­kvæmda­stjóra alþjóða­sam­skipta og skrif­stofu banka­stjóra.

Í til­kynn­ingu sagði að Glenn Victor Kim gegndi áfram for­mennsku í fram­kvæmda­hópnum, en hann hefur ára­langa reynslu af erlendum fjár­mála­mörk­uðum og starf­aði m.a. áður sem sér­stakur ráð­gjafi þýska fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins vegna fjár­hags­legrar end­ur­skipu­lagn­ingar á evru­svæð­inu. Auk ofan­greindra eru í hópnum Benedikt Gíslason, ráð­gjafi fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra í hafta­málum.

Eiríkur Svav­ar­son hæsta­rétt­ar­lög­maður hætti störfum í hópnum fyrir skemmstu en Ásgeir Helgi Reykj­fjörð Gylfason, yfir­lög­fræð­ingur MP banka, tók sæti í hópnum fyrr á þessu ári.

Kurr innan fjármálageirans


Ljóst er að þeir sem starfa að áætl­un­ar­gerð um losun hafta búa yfir mjög verð­mætum upp­lýs­ingum sem gætu nýst á mark­aði til að hagn­ast veru­lega. Í trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingu sem allir sem vinna með hafta­los­un­ar­hópnum eru látnir skrifa undir kemur fram hversu við­kvæmar upp­lýs­ing­arnar eru og hversu mik­il­vægt það sé fyrir sér­fræð­ing­anna að halda trúnað um þær.

Brjóti þeir gegn þeim trún­aði eða mis­noti upp­lýs­ing­arnar með ein­hverjum hætti gæti það verið talið sak­næmt athæfi, og við­kom­andi gæti verið ákærður fyrir vikið.

[caption id="attachment_2357" align="alignnone" width="720"] Sigurður Hann­es­son er vara­for­maður fram­kvæmda­hóps um losun fjár­magns­hafta.[/caption]

Áhyggjur af þess­ari stöðu eru vel þekktar og mikið ræddar innan fjár­mála­geirans. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru ástæður þess að skipan þriggja manna sem starfað hafa í MP banka: Sigurðar Hann­es­sonar, Bene­dikts Gísla­sonar og Ásgeirs Helga Reyk­fjörð Gylfa­sonar, hafa vakið upp kurr er sú að áhyggjur eru á meðal stjórn­enda og starfs­manna ann­arra fyr­ir­tækja innan fjár­mála­geirans að einn banki fái betri upp­lýs­ingar um stöðu mála en allir hinir. Ef einn banki veit meira um hvað sé framundan varð­andi losun hafta, og þær leiðir sem stjórn­völd ætla að fara í þeirri veg­ferð, þá sé hann með stórt sam­keppn­is­legt for­skot á sam­keppn­is­að­ila sína á mark­aði.

Þingmenn leggja drengskap sinn undir


Það eru ekki bara sér­fræð­ing­arnir sem þurfa að skrifa undir skjöl vegna hafta­los­un­ar­á­ætl­unar. Þeir þing­menn sem sitja í sam­ráðs­nefnd þing­flokka um afnám fjár­magns­hafta hafa allir und­ir­ritað þagn­ar­heit sem í felst að þeir gæti „þag­mælsku um atriði sem ég kann að fá vit­neskju um í starfi mínu fyrir hóp­inn sem leynt skulu fara sam­kvæmt lögum eða eðli máls. Þagn­ar­skyldan skal hald­ast þótt störfum hóps­ins sé lokið“.

Þegar þing­menn­irnir skrif­uðu undir þagn­ar­heitið var þeim einnig gert ljóst að þeir kunni, í tengslum við störf hóps­ins, að fá vit­neskju um inn­herj­a­upp­lýs­ingar og telj­ist þar með inn­herjar sam­kvæmt lögum um verð­bréfa­við­skipti.

Sam­ráðs­hóp­ur­inn hefur reyndar ekki verið upp­lýstur mikið. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans hefur hann ekki fundað það sem af er þessu ári. Innan Vinstri grænna hafa verið uppi háværar raddir um að rétt sé að flokk­ur­inn segi sig úr hópnum vegna sam­ráðs­leysis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár