Tengja mútugreiðslur Samherja við töpuð störf í Namibíu

Namibísk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki töp­uðu kvóta til Samherja. Það olli því að fyr­ir­tækin neydd­ust til að draga saman í starf­semi sinni og segja upp fólki. Þúsundir fjöl­skyldna misstu með því lífs­við­ur­væri sitt.

Tengja mútugreiðslur Samherja við töpuð störf í Namibíu
Tamson á Íslandi Tamson „Fitty“ Hatuikulipi var einn helsti sam­verka­maður Samherja þegar kom að því að fá úthlutað hesta­makríl­kvóta í Namibíu. Hann fékk að minnsta kosti 350 millj­ónir króna greiddar í mútur á árunum 2012 til 2018 frá Samherja. Hér sést hann í snjó­sleða­ferð í boði Samherja, í Eyja­firði, ásamt Sacky Shangala, sem sagði af sér sem dóms­mála­ráð­herra í gær vegna Sam­herj­a­máls­ins, og James Hakuikulipi, stjórn­ar­for­manni rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Fischor.

Fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi í Namibíu hafa á und­an­förnum árum misst frá sér fisk­veiði­kvóta upp á þús­undir tonna. Afleið­ingin er sú að fyr­ir­tækin hafa neyðst til að draga úr starf­semi sinni, sem aftur hefur valdið því að mik­ill fjöldi fólks hefur misst vinn­una og þar með hafa þús­undir fjöl­skyldna misst lífs­við­ur­væri sitt, að því er namibískir fjöl­miðlar full­yrða. Á sama tíma fékk Samherji úthlutað hesta­makríl­kvóta og hefur veitt um 500 þús­und tonn af fisk­inum við strendur Namibíu. Verðmæti afl­ans nemur á milli 50 og 55 millj­örðum íslenskum króna á tíma­bil­inu 2012 til 2019. Ekkert af þeim afla kom á land í Namibíu.

Í umfjöllun Kveiks síð­ast­lið­inn þriðju­dag var fjallað um þá stað­reynd að veiðar Samherja skildu sára­lítið eftir sig í Namibíu. Samherji stund­aði enga land­vinnslu í Namibíu og þar af leið­andi skap­aði fyr­ir­tækið engin störf. Í götu­blað­inu Namibian Sun er bent á þessi tengsl við sam­drátt í starf­semi sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­anna og töpuð störf, líkt og Kveikur hafði áður gert. Þar er fyr­ir­tækið Namsov sér­stak­lega nefnt til sög­unnar. Í gögnum sem Stundin hefur unnið með í sam­starfi við Kveik, Wikileaks og Al Jazeera má sjá að Samherji leit á Namsov sem sinn helsta keppi­naut þegar fyrr­nefnda fyr­ir­tækið var að reyna að ná fót­festu í Namibíu árið 2012. Í minn­is­blaði sem er tekið saman 2. febr­úar um það sem kallað er Namibíu verk­efnið er þetta stað­fest.

Í minn­is­blað­inu kemur þannig fram að Namsov sé leið­andi fyr­ir­tæki í hesta­makríl­veiðum við Namibíu, og er fyr­ir­tækið raunar sagt hafa haft algjöra ein­okun á mark­aðnum og í iðn­aðnum, ásamt fyr­ir­tæk­inu Erongo. „Það sem ógnar okkar mest hér eru keppi­nautar í hesta­makríl (Oceana og Namsov) sem að hafa verið hér lengi, hafa sam­bönd í Namibíu og hafa mark­aðs­s­bönd í DRC. Ekki má gleyma því að pólítkin gæti snú­ist gegn okkur seinna meir,“ segir í minn­is­blað­inu.

Samherji hóf hesta­makríl­veiðar við strendur Namibíu í febr­úar 2012. Í minn­is­blað­inu eru listaðir upp aðilar sem Sam­herj­a­menn hafi náð tengslum við í land­inu. Þar er eigu Tamson „Fitty“ Hatuikulipi efstur á blaði. „Tengda­sonur ráð­herr­ans og okkar teng­ill við hann. Hefur reynst mjög vel og hafa skila­boð farið á milli ráð­herr­ans og Kötlu,“ segir í minn­is­blað­inu. Raunin var sú að Samherji hafði þegar innt af hendi mútu­greiðslur til Tamson þegar minn­is­blaðið var skrifað. Félög Samherja greiddu aðilum í Namibíu mútur frá upp­hafi árs 2012 og í það minnsta fram í jan­úar á þessu ári.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár