Segir að Ísland sé réttarríki – en ekki ríki geðþóttavalds og lögleysu

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins fjall­aði m.a. um gildi krist­innar trúar á Alþingi í dag og sagði að það væri sorg­legt að sjá hvernig for­sæt­is­ráð­herra hefði upp á síðkastið mátt sitja undir „ræt­inni ill­mælgi“ af hálfu sókn­ar­prests.

Birgir Þórarinsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Birgir Þór­ar­ins­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Birgir Þór­ar­ins­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins telur það sorg­legt hvernig Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hafi upp á síðkastið mátt sitja undir „ræt­inni ill­mælgi“ af hálfu Davíðs Þórs Jóns­sonar sókn­ar­prests vegna ákvarð­ana yfir­valda í útlend­inga­málum.

Þetta sagði hann undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

„Það er eins­dæmi að vígður þjónn þjóð­kirkj­unnar skuli vega svo ómak­lega að for­sæt­is­ráð­herra Íslands. Umræddur þjóð­kirkju­prestur, sem fengið hefur ávítur frá bisk­upi Íslands, mætti eins og aðrir sem láta sig þennan mála­flokk varða íhuga að máls­með­ferð er bundin í lögum, sam­þykktum af Alþingi,“ sagði hann.

Ástæðan fyrir orðum Birgis var ummæli prests­ins í síð­ustu viku þar sem hann gagn­rýndi Vinstri græn og for­sæt­is­ráð­herra fyrir fyr­ir­hug­aðar brott­vís­anir tæp­lega 200 umsækj­enda um alþjóð­lega vernd.

[links]Birgir sagði að íslenskir ráða­menn, þar á meðal ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar, hefðu enga heim­ild að lögum til að víkja frá nið­ur­stöðum sjálf­stæðra stofn­ana sem unnið hafa úr málum sam­kvæmt þeim kröfum sem til þeirra væru gerðar um rétt­láta máls­með­ferð og réttar­ör­yggi. „Við búum við lög­mæta skipan mála. Ísland er rétt­ar­ríki en ekki ríki geð­þótta­valds og lög­leysu.“

Þakkaði Katrínu fyrir stuðning við þjóðkirkjuna

Birgir hóf mál sitt á því að segja að við byggjum í sam­fé­lagi sem mótað væri af alda­langri hefð í menntun og menn­ingu sem ætti rót sína að rekja til kristi­legra við­horfa til ein­stak­lings­ins og sam­fé­lags­ins.

?„Það er mik­il­vægt að þessi við­horf fái að heyr­ast á Alþingi. Við sem þjóð stöndum á sögu­legum og menn­ing­ar­legum grunni krist­innar trúar og gilda. Íslenskt sam­fé­lag og krist­inn siður og gildi eiga enn sem áður sam­leið. Í ráð­gef­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í októ­ber 2012 vildi meiri­hluti þjóð­ar­innar, eða 51 pró­sent, ákvæði um þjóð­kirkju í stjórn­ar­skrá. Stjórn­völdum ber skylda til að styðja og vernda þjóð­kirkj­una. Um það er kveðið á í stjórn­ar­skránni.

Ég vil nota hér tæki­færið og þakka for­sæt­is­ráð­herra sér­stak­lega fyrir hennar stuðn­ing við þjóð­kirkj­una í orði og verki. Undir for­ystu for­sæt­is­ráð­herra hefur verið end­ur­nýjað kirkju­jarða­sam­komu­lag ríkis og kirkju sem reynst hefur kirkj­unni traustur bak­hjarl og hefur gegnt lyk­il­hlut­verki í að skapa henni fjár­hags­legt sjálf­stæði og öryggi,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár