Ekki víst að álverið í Straumsvík myndi losna undan kaupskyldu

Raf­orku­sölu­samn­ingur á milli Rio Tinto Alcan og Lands­virkj­unar var end­ur­nýj­aður í fyrra og gildir til árs­ins 2036. Það er alls óvíst að Rio Tinto gæti losnað undan samn­ingnum ef álver­inu í Straums­vík yrði lokað, eins og for­svars­menn álvers­ins hafa haldið fram und­an­farna daga að gæti gerst, að mati Ketils Sig­ur­jóns­sonar sér­fræð­ings og miðað við þær upp­lýs­ingar sem fyrir liggja.

For­svars­menn álvers­ins halda því fram að ef til verk­falls kemur þann 2. des­em­ber næst­kom­andi þurfi að loka álver­inu og þá sé ekki sjálf­gefið að það verði opnað aftur. Almennir starfs­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa átt í lang­vinnri kjara­deilu við fyr­ir­tækið, sem strandar einna helst á því að fyr­ir­tækið vill bjóða verk­efni út í verk­töku í auknum mæli.

Alcan gæti þurft að sanna að það hafi gert allt sem það gat

Raf­orku­samn­ingar sem Lands­virkjun gerir eru trún­að­ar­mál, og því er erfitt að ganga að nokkru vísu um þessi mál. For­svars­menn Lands­virkj­unar vilja ekki tjá sig um „við­kvæma kjara­deilu“, að sögn Magnúsar Þórs Gylfa­sonar, for­stöðu­manns sam­skipta­sviðs Lands­virkj­unar.

Almennir skil­málar Lands­virkj­unar vegna sölu á for­gangs­raf­magni eru hins vegar ekki trún­að­ar­mál, en þeir taka almennt um við­skipti Lands­virkj­unar um for­gangs­raf­magn við þau fyr­ir­tæki sem kaupa meira en 1 GWst á ári, sem Rio Tinto Alcan gerir. Meiri­hluti orkunnar sem fyr­ir­tækið kaupir er for­gangs­raf­magn.

Í almennu skil­mál­unum er ákvæði um óvið­ráð­an­leg öfl (force majeure) sem geti haft áhrif á samn­inga. Meðal þess sem telst til óvið­ráð­an­legra afla er ófriður og bylt­ingar, en einnig ýmsar nátt­úru­ham­farir og „hvers kyns ámóta atvik sem ekki er unnt að koma í veg fyrir eða hafa stjórn á með eðli­legum ráðum af hálfu aðil­anna.“ Þá getur ákvæðið átt við um alls­herj­ar­verk­föll, stað­bundin verk­föll og ámóta vinnu­trufl­anir, „sem aðili sá, er fyrir slíku verður, hefur ekki getað komið í veg fyrir eða haft stjórn á, þótt hann hafi beitt öllum eðli­legum ráðum, sem honum voru til­tæk“ en sá sem ætlar að bera fyrir sig óvið­ráð­an­legum öflum þarf að sanna þau.

Ef ákvæði sem þetta er í samn­ingum Lands­virkj­unar við Rio Tinto Alcan þarf fyr­ir­tækið því vænt­an­lega að sýna fram á að það hafi beitt öllum eðli­legum ráðum til að koma í veg fyrir lok­un­ina, ef það ætlar að reyna að losna undan raf­orku­samn­ingnum.

Því til við­bótar má nefna að hluti samn­ings­ins á milli Lands­virkj­unar og Rio Tinto Alcan er aðgengi­legur, vegna þess að samn­ingar af þessu tagi hafa farið fyrir ESA, eft­ir­lits­stofnun ESA. Þar kemur fram að í sjö­undu grein samn­ings­ins sé "Take or Pay" ákvæði, sem hefur í för með sér að álverið í Straums­vík þurfi að greiða fyrir ákveðið magn af orku á ári, burt­séð frá því hvort fyr­ir­tækið noti minni orku. Ekkert kemur fram um það í opin­berum gögnum hvort force majeure ákvæði er í samn­ingnum eða ekki.

Samn­ing­ur­inn milli Lands­virkj­unar og Rio Tinto var end­ur­skoð­aður í fyrra, en hann var upp­haf­lega gerður árið 2010, og gildir til 2036. Rio Tinto skil­aði meðal ann­ars 35 MW af ónot­uðu afli og greiddi 17 millj­ónir dala vegna þess kostn­aðar sem hlaust af því að Búð­ar­háls­virkjun var byggð fyrr en þörf var á. Virkj­unin var byggð til að efna samn­ing­inn frá 2010, því Rio Tinto ætl­aði að auka fram­leiðslu sína, en það gekk ekki eftir.

Finnst ólíklegt að hægt verði að komast undan kaupskyldu

Ketill Sig­ur­jóns­son, sér­fræð­ingur í orku­málum sem heldur úti Orku­blogg­inu, fjallar um málið á bloggi sínu. Þar segir hann að mögu­legt sé að ef til verk­falls kemur geti fyr­ir­tækið losnað undan kaup­skyldu á orku á meðan verk­fallið varir. En hann telur veru­lega ólík­legt og nán­ast úti­lokað að álverið geti losnað undan samn­ingnum ein­hliða ef álver­inu verður lokað með vísan til tjóns vegna verk­falls­ins.

Ketill bendir á að kaup­skylda álvers­ins sé nálægt 3 TWst af orku á ári, og sam­kvæmt útreikn­ingum hans greiðir fyr­ir­tækið fyrir það nálægt 100 millj­ónir Banda­ríkja­dala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár