Sjávarborð hækkar sífellt hraðar

Sterkar vís­bend­ingar eru komnar fram um að hækkun yfir­borðs sjávar sé hrað­ari en áður var gert ráð fyrir.

Bráðnun íss vegna hlýnunar loftslags er aðalástæða þess að yfirborð sjávar hækkar.
Bráðnun íss vegna hlýn­unar lofts­lags er aðal­á­stæða þess að yfir­borð sjávar hækkar. Mynd: Flickr / Sameinuðu þjóðirnar

Yfirborð sjávar hækkar hraðar og hraðar með hverju ári sem líður, í takt við hækk­andi hita­stig á jörð­inni. Vís­inda­menn greindu frá þessu í síð­ustu viku og til­tóku hrað­ari bráðnun Græn­lands­jök­uls sér­stak­lega í þessu til­liti.

[links]Árleg hækkun yfir­borðs sjávar var 3,3 milli­metrar árið 2014, miðað við 2,2 milli­metra árið 1993. Miðað við árlega hækkun sjáv­ar­borðs árið 2014 verður sjáv­ar­staða 33 senti­metrum hærri eftir um það bil eina öld, ef ekk­ert verður að gert.

Það var fjöl­þjóð­legt teymi vís­inda­manna frá Kína, Ástralíu og Banda­ríkj­unum sem unnu rann­sókn­ina og greindu frá nið­ur­stöðum sínum í tíma­rit­inu Nature Climate Change. Climate Central segir frá.

Á und­an­förnum 100 árum hefur yfir­borð sjávar hækkað um um það bil 20 senti­metra að jafn­aði. Rann­sóknir benda til þess að sjáv­ar­staða muni hækka stöðugt fram eftir 21. öld­inni vegna hlýn­unar jarðar af manna­völdum.

Hingað til hefur það reynst erfitt að áætla hvort bráðnun íss og jökla hafi auk­ist, staðið í stað eða minnkað síðan árið 1990. Nið­ur­stöður fjöl­þjóð­lega rann­sókn­arteym­is­ins benda hins vegar til þess að gervi­hnatta­gögn hafi ýkt nið­ur­stöður sem fengnar voru með hjálp gervi­tungla á tíunda ára­tug síð­ustu aldar og „falið“ þró­un­ina.

„Það hefur lengi verið stór spurn­ing í lofts­lags­vís­indum hvort hækkun sjáv­ar­borðs sé hraðri nú en áður. Nú eru sterkar vís­bend­ingar komnar fram um að svo sé,“ sagði Brian Hoskins, pró­fessor við Imerial College í London.

„Þetta er mik­il­væg aðvörun til okkar um þær hættur sem stafa af hækkun yfir­borðs sjávar,“ segir Peter Wadhams, frá Cambridge-háskóla, í yfir­lýs­ingu vegna rann­sókn­ar­innar. Wadhams hefur meðal ann­ars skrifað bók sem ber tit­il­inn A farewel to ice og fjallar um ára­tuga­langar rann­sóknir hans á ísbreiðum heims­ins. „Hækkun yfir­borðs­ins mun halda áfram löngu eftir að hlýnun jarðar hefur verið stöðvuð.“

[adspot]

Fjórðungur sjávarhækkunar úr Grænlandsjökli

Bráðnun Græn­lands­jök­uls bar ábyrgð á 25 pró­sent sjáv­ar­yf­ir­borðs­hækk­un­ar­innar árið 2014 miðað við 5 pró­sent árið 1993, sam­kvæmt rann­sókn­inni.

Aðrar stórar upp­sprettur vatns eru í jöklum Himala­yja-fjall­anna, og Andes-fjalla. Þá hefur ísbreiðan á Suð­ur­skauts­land­inu bráðnað mikið.

Ekki síður mik­il­vægur þáttur er að með hlýnun sjávar eykst rúm­mál hans. Hlýnun sjávar veldur þess vegna hækkun sjáv­ar­borðs einnig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár