Leysingavatn flæðir yfir ísinn á Suðurskautslandinu

Fljót­andi vatn er mun meira á Suð­ur­skauts­land­inu en áður var talið. Ný heild­stæð rann­sókn hefur kort­lagt vatns­flaum­inn á ísbreið­unni.

Fágæt mynd af jökulfossi á Suðurskautinu.
Fágæt mynd af jök­ul­fossi á Suð­ur­skaut­inu. Mynd: NASA

Fyrsta heild­stæða rann­sóknin sem er gerð hefur verið á straum­vatni á Suð­ur­skauts­land­inu bendir til þess að árs­tíða­bundið leys­inga­vatn sé mun meira á Suð­ur­skaut­inu en áður var talið. Nið­ur­stöð­urnar eru sagðar breyta hug­myndum vís­inda­manna á því hversu við­kvæmur jök­ull­inn á Suð­ur­skaut­inu sé fyrir hita­breyt­ingum fram­tíðar.

Rann­sóknin var unnin af hópi vís­inda­manna frá The Earth Institute við Columbia Háskóla í Banda­ríkj­unum og mið­aði hún að því að mæla leys­inga­vatnið á Suð­ur­skauts­land­inu. Mikið af þessu vatni rennur til sjávar ofan af jökl­inum sem þekur allt Suð­ur­skauts­landið. Leys­inga­vatn hefur jafn­framt runnið eftir mörgum far­vegum síðan snemma á síð­ustu öld.

Með bættri tækni er nú hægt að fá gleggri mynd af því hvert þetta leys­inga­vatn rennur og sú mynd er ekki fal­leg. „Þetta er ekki að ger­ast í fram­tíð­inni – þetta er mjög útbreitt núna og hefur verið það um ára­tuga skeið,“ er haft eftir Jonathan Kingslake, jökla­fræð­ingi í rann­sókn­ar­hópnum.

Hópurinn kort­lagði affall vatns frá ísbreið­unni á eitt kort. Margir þess­ara „ósa“ ef svo má að orði kom­ast hafa verið þekktir í lengri tíma en aldrei hefur það verið tekið saman með heild­stæðum hætti hversu víða vatnið rennur ofan af jökl­inum.

Á mynd­inni hér að neðan merkir hver rauður kross sjálf­stætt affall eða ós.

Stuðst var við myndir af yfir­borði ísbreið­unnar til þess að kort­leggja vatns­strauma á yfir­borð­inu, skil­greina saf­nár og ósa. Rann­sóknin leiddi í ljós að nærri 700 sjálf­stæð safn­kerfi eru að finna á ísbreið­unni sem renna svo hring­inn í kringum Suð­ur­skauts­landið til sjávar.

Vatns­flaum­ur­inn á ísbreið­unni hefur jafn­framt skapað risa­vaxin lón sem spanna fleiri kíló­metra í þver­mál. Rann­sóknin hefur einnig leitt í ljós að vatn á fljót­andi formi er að finna í meira en 1.300 metra hæð yfir sjáv­ar­máli. Það var talið ómögu­legt að finna fljót­andi vatn í svo mik­illi hæð á Suð­ur­skaut­inu.

„Ég held að flestir jarð­skauta­fræð­ingar hafi talið renn­andi vatn vera tölu­vert fágætt á yfir­borði Suð­ur­skauts­ins. En við fundum mikið af því, á mjög stórum svæðum,“ segir Kingslake.

Kingslake segir gögnin sem aflað hefur verið vera of rýr til þess að hægt sé að segja hvort vatns­flaum­ur­inn hafi auk­ist síð­ustu sjö ára­tug­ina. „Við höfum enga ástæðu til þess að ætla það. En án frek­ari gagna­öfl­unar getum við ekki sagt til um það. Nú er það mjög mik­il­vægt til fram­tíðar að kom­ast að því hvernig þessi kerfi muni breyt­ast við frek­ari hlýnun, og hverslags áhrif þetta mun hafa á ísbreið­una.“

Hlýnun knýr frekari hlýnun

Höfundar rann­sókn­ar­innar fjalla um hvernig bráðnun jök­ul­íss veldur enn frek­ari bráðnun. Flest þeirra safn­kerfa sem kort­lögð voru á ísbreið­unni hófust nærri fjallstindum sem rísa upp úr jökl­inum, eða á svæðum þar sem kröftugir vindar hafa blásið snjó ofan af blá­leitum ísnum. Þessi svæði eru dekkri en hvítur snjór­inn og draga þess vegna meiri orku úr sól­ar­geisl­unum sem veldur bráðnun. Vatnið rennur svo yfir ísinn og bræðir far­veg niður í móti og í gegnum snjó­inn sem liggur yfir öllu.

Jökulfossar á Nansen-ísbreiðunni

Ef hita­spár þess­arar aldar ganga eftir fyrir Suð­ur­skauts­landið mun þetta ferli eiga sér stað í mun meira mæli. „Þessi rann­sókn sýnir okkur að mun meiri bráðnun á sér stað en við héldum,“ er haft eftir Robin Bell, jarð­skauta­fræð­ingi við Columbia, á vef Columbia. „Við hærra hita­stig mun þetta aðeins aukast.“

Vanalega frýs leys­inga­vatnið aftur á vet­urna svo bráðnun af völdum þess er talin vera smá­vægi­leg. Suð­ur­skauts­jök­ull­inn er hins vegar að bráðna og áhyggjur jökla­fræð­ing­anna sem komu að rann­sókn­inni bein­ast að þeim breyt­ingum sem eru að eiga sér stað. Mesta ístapið úr jökl­inum á sér stað við sporða hans, þar sem stórir ísjakar brotna frá jökl­inum vegna hlýrra haf­strauma og fljóta burt út á hafið þar sem þeir bráðna á end­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár