190 þúsund símtæki með smitrakningarappið virkt

Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna biðl­aði Alma D. Möller land­læknir til Íslend­inga um að halda áfram að nota smitrakn­ing­arappið Rakning C-19.

Alls eru 190 þús­und sím­tæki með smitrakn­ing­arappið Rakning C-19 virkt þessa stund­ina. Frá þessu greindi Alma D. Möller land­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. „Við sjáum að það hafa rúm 63 þús­und hlaðið niður app­inu síðan í júní. Það getum við sett í sam­hengi við það að 71 þús­und manns hafa verið skimaðir við kom­una til lands­ins og hingað hafa komið um 100 þús­und far­þegar,“ bætti hún við.

Alls hafa 32 þús­und fjar­lægt appið en sam­kvæmt Ölmu er lík­leg­ast að þar sé um að ræða ferða­menn sem farnir eru af landi brott. „Það kann að vera erfitt að lesa í þessar tölur en við höldum þó að mik­ill meiri­hluta ferða­manna bregð­ist við þess­ari áskorun um að hlaða niður app­inu og er það vel.“

Íslendingar haldi áfram að nota appið

Hún biðl­aði til Íslend­inga um að halda áfram að nota appið. Það hjálpar til við að greina ferðir og rekja saman ferðir þegar upp kemur smit. „Það er mik­il­vægur hlekkur í okkar varn­ar­keðju,“ sagði Alma.

Að vísu hefur orðið vart við það að gögn vanti í tækin en það gæti verið vegna still­ing­ar­at­riða að mati Ölmu. Hún sagði leið­bein­ingar vera vænt­an­legar á covid.is

[links]

Von er á Bluetooth virkni í appið

Alma sagði að um miðjan ágúst verði til­búin Bluetooth virkni sem hægt sé að nýta við rakn­ingu. Sú virkni hafi verið í þróun hjá Apple og Google og sé þeirra fram­lag í bar­átt­unni við COVID-19.

„Þessi virkni, hún verður sjálf­krafa í stýri­kerfi sím­anna en maður mun þurfa að heim­ila að þessi virkni sé til staðar. Þá er þetta þannig þegar sím­tæki eru nálægt hvert öðru þá skipt­ast þau á ein­hverjum leynikóðum sem að bara eru vistaðir í símunum og síðan þarf þá aftur að heim­ila aðgang að þeim ef að kemur upp smit. Þá er hægt að senda skila­boð í við­kom­andi sím­tæki og þau verða þá á þann hátt að við biðjum um að það verði haft sam­band við rakn­ing­arteymið,“ sagði Alma.

Hún sagði að með til­komu Bluetooth tækn­innar verði rakn­ing auð­veld­ari og að þau von­ist til þess að tæknin kom­ist í notkun. „Við höfum alltaf sagt að þegar komið er upp smit, þá er smitrakn­ing eitt það mik­il­væg­asta sem við gerum. En betra er samt að fækka smitum sem mest og það gerum við með því að hjálp­ast að við þessar ein­stak­lings­bundnu smit­varnir og með því að virða og fylgja reglum og leið­bein­ingum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár