Veltir fyrir sér hvort skýrsla um fjárfestingar útgerðarmanna muni „ligga í skúffu“ fram yfir kosningar

Þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar spyr hvort skýrslan um fjár­fest­ingar útgerð­ar­manna sé „í þess­ari sömu skúffu“ og skýrsla um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum og skýrsla um leið­rétt­ing­una svoköll­uðu og hvort hún muni liggi þar fram yfir kosn­ingar.

Oddný Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar.
Oddný Harð­ar­dóttir, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Oddný Harð­ar­dóttir þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar gerir bið eftir skýrslu um eign­ar­hald 20 stærstu útgerð­ar­fé­laga í íslensku atvinnu­lífi að umtals­efni í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag.

„Beðið er eftir skýrslu um eign­ar­hald stærstu útgerð­ar­fé­laga lands­ins í íslensku atvinnu­lífi frá sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­anum. Hún á löngu að vera komin. Fyrir mörgum vikum fékk ég þau svör að hún kæmi í næstu viku þar á eftir. Ekkert bólar á skýrsl­unni enn!“ skrifar hún.

Í sam­tali við Kjarnann segir hún að svörin hafi borist frá þing­funda­skrif­stof­unni sem var í sam­bandi við atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið. Ekki sé þó við þing­funda­skrif­stof­una að sakast. Þau hafi ein­ungis verið að bera upp­lýs­ingar á milli.

Rifjar hún upp í stöðu­upp­færsl­unni að fyrir kosn­ing­arnar 2016 hafi komið út skýrsla um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum og einnig skýrsla um leið­rétt­ing­una svoköll­uðu. „Báðar fóru í skúffu í fjár­mála­ráðu­neyt­inu þar sem for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins réði ríkjum. Við fengum ekki að sjá þær fyrr en eftir kosn­ing­arnar því fjár­mála­ráð­herr­ann vildi ekki að við fengjum að ræða þær fyrir kosn­ingar.“

Spyr hún hvort skýrslan um fjár­fest­ingar útgerð­ar­manna sé í þess­ari sömu skúffu og hvort hún muni liggja þar fram yfir kosn­ingar í sept­em­ber.

Vildu að raun­veru­legir eig­endur væru til­greindir

Kjarninn greindi frá því í des­em­ber síð­ast­liðnum að 20 þing­menn, 18 úr stjórn­ar­and­stöðu og tveir þing­menn Vinstri grænna, hefðu lagt fram beiðni um að Krist­ján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, léti gera skýrslu um eign­ar­hald 20 stærstu útgerð­ar­fé­laga í íslensku atvinnu­lífi.

Þing­menn­irnir vildu að ráð­herr­ann myndi láta taka saman fjár­fest­ingar útgerð­ar­fé­lag­anna, dótt­ur­fé­laga þeirra og félaga þeim tengdum í félögum sem ekki hafa útgerð fiski­skipa með höndum á síð­ustu tíu árum og bók­fært virði eign­ar­hluta þeirra í árs­lok 2019. Í beiðn­inni var sér­stak­lega farið fram á að í skýrsl­unni yrðu raun­veru­legir eig­endur þeirra félaga sem yrði til umfjöll­unar til­greindir og sam­an­tekt á eign­ar­hlut 20 stærstu útgerð­ar­fé­lag­anna í íslensku atvinnu­lífi byggt á fram­an­greindum gögn­um.

Sögðu skýrsluna mikilvægt framlag til umræðunnar um dreifða eignaraðild útgerðarfélaga

Beiðnin var sam­þykkt þann 18. des­em­ber 2020 með 57 atkvæðum þeirra þing­manna sem voru við­staddir atkvæða­greiðslu um hana. Samkvæmt þing­skap­a­lögum hefur ráð­herra tíu vikur til að vinna slíka skýrslu eftir að beiðni þess efnis er sam­þykkt.

[links]Í grein­ar­gerð sem birt var með beiðn­inni þegar hún var lögð fram sagði að eig­in­fjár­staða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hefði batnað veru­lega frá hrunsár­unum og að bók­fært eigið fé þeirra hefði staðið í 276 millj­örðum krónum við lok árs 2018, sam­kvæmt gagna­grunni Deloitte um afkomu sjáv­ar­út­vegs­ins 2018. „Vís­bend­ingar eru um að fjár­fest­ingar þeirra út fyrir grein­ina hafi auk­ist í sam­ræmi við það. Það er jákvætt að því leyti að það dreifir áhættu félag­anna sjálfra en getur hæg­lega leitt til veru­legrar upp­söfn­unar eigna og áhrifa á fárra hendur og dregið úr virkri sam­keppni á mörk­uðum. Vegna smæðar sinnar er íslenskt atvinnu­líf sér­stak­lega við­kvæmt fyrir fákeppni.“

Ljóst væri að sterk fjár­hags­staða útgerð­ar­fé­laga byggð­ist á einka­leyfi þeirra til nýt­ingar sam­eig­in­legrar auð­lindar þjóð­ar­innar og skip­aði það þeim í sér­flokk í íslensku atvinnu­lífi, sér­stak­lega stærstu félög­unum. „Vegna þess­arar stöðu telja skýrslu­beið­endur mik­il­vægt að upp­lýs­ingar um eign­ar­hluti 20 stærstu útgerð­ar­fé­lag­anna og tengdra aðila í óskyldum atvinnu­rekstri hér­lendis séu teknar saman, með grein­ingu á fjár­fest­ingum þeirra. Með þessum upp­lýs­ingum er hægt að varpa ljósi á raun­veru­leg áhrif aðila sem hafa einka­leyfi til nýt­ingar fisk­veiði­auð­lind­ar­innar á íslenskt atvinnu­líf og sam­fé­lag. Yrði skýrsla þessi mik­il­vægt fram­lag til umræð­unnar um dreifða eign­ar­að­ild útgerð­ar­fé­laga og skrán­ingu þeirra á markað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár