Snjór fellur í Brasilíu

Sumir íbúar í syðsta hér­aði Brasilíu hafa tekið snjónum fagn­andi enda ekki á hverjum degi sem þar snjóar. Bændur gætu aftur á móti átt von á lak­ari upp­skeru og verð á hrá­vöru­mörk­uðum hefur hækkað í kjöl­far kulda­kasts­ins.

Það er erfitt að ímynda sér að það snjói í Brasilíu en snjókoma er eflaust algengari þar en ætla mætti. Þessi mynd er tekin eftir snjókomu í Brasilíu í ágúst árið 2020
Það er erfitt að ímynda sér að það snjói í Brasilíu en snjó­koma er eflaust algeng­ari þar en ætla mætti. Þessi mynd er tekin eftir snjó­komu í Brasilíu í ágúst árið 2020 Mynd: EPA

Nú í vik­unni hefur kalt heim­skauta­loft lagt leið sína yfir Brasilíu og með því hefur snjór tekið að falla í land­inu. Fönnin lagð­ist yfir götur og bíla í land­inu og fólk tók upp á því að leika sér í snjónum og búa til snjó­karla. Frá þessu er greint í frétt Reuters.

Vitnað er í sjón­varps­við­tal við flutn­inga­bíl­stjór­ann Iodor Goncalves Marques í frétt Reuters en honum fannst snjór­inn einkar fagur. „Ég er 62 ára gam­all og ég hef aldrei séð snjó áður. Að sjá slíka nátt­úru­feg­urð er alveg ólýs­an­legt,“ sagði Marques. Íbúar í fleiri en 40 borgum í syðsta hér­aði lands­ins, Rio Grande do Sul, þurftu að glíma við hálku og kulda en snjó­föl varð vart í að minnsta kosti 33 þeirra.

Verð á hrávöru hefur hækkað vegna frostsins

Kulda­kastið hefur þó einnig haft afdrifa­rík­ari afleið­ingar en hálku í för með sér, því hætta er á að frostið muni bitna á upp­skeru bænda þar í landi. Land­bún­aður er einn af mátt­ar­stólpum atvinnu­lífs í Brasilíu og hefur kuld­inn til að mynda stefnt ræktun á kaffi, sykri og app­el­sínum í hættu. Verð á kaffi og sykri hefur til að mynda hækkað á hrá­vöru­mörk­uðum í kjöl­far kulda­kasts­ins.

Íbúar á þeim svæðum þar sem snjór­inn hefur fallið virð­ast í það minnsta vera ánægðir með snjó­kom­una. „Maður finnur varla fyrir kuld­anum vegna þess að snjór­inn er svo spenn­andi. Hann er dásam­legur, alveg hreint dásam­legur!“ er haft eftir Jos­elaine da Silva Marques í grein Reuters.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár