Yellen sýnir á spilin

Janet Yellen, til­nefndur fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, vill þrepa­skipt­ara skatt­kerfi og auka fjár­út­lát rík­is­sjóðs til að aðstoða laun­þega í krepp­unni. Hún er líka harð­orð í garð efna­hags­stefnu kín­verskra stjórn­valda og vill tak­marka notkun raf­mynta.

Janet Yellen, tilnefndur fjármálaráðherra Bandaríkjanna.
Janet Yellen, til­nefndur fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Öld­unga­deild Banda­ríkja­þings mun kjósa um til­nefn­ingu Janet Yellen sem fjár­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna á fimmtu­dag­inn. Í fyr­ir­spurna­tíma á þing­inu í síð­ustu viku sýndi hún hvers mætti vænta í efna­hags­stefnu lands­ins, verði til­nefn­ing hennar sam­þykkt.

Samkvæmt svörum Yellen við spurn­ingum öld­unga­deild­ar­þing­manna mætti búast við þenslu­að­gerðum í stað nið­ur­skurðar í yfir­stand­andi kreppu, þrepa­skipt­ara skatt­kerfi og engri hand­stýr­ingu á gengi Banda­ríkja­dals. Auk þess vill hún halda áfram harðri efna­hags­stefnu gegn Kína og setja strang­ari reglur á miðlun raf­mynta, sem hún sagði að væru að miklu leyti not­aðar til þess að fjár­magna ólög­lega starf­semi.

Frekar of mikið heldur en of lítið

Í umfjöllun New York Times um málið kemur fram að þing­menn repúblikana­flokks­ins lýstu yfir óánægju sinni yfir fyr­ir­hug­uðum efna­hags­að­gerðum nýrrar rík­is­stjórnar í fyr­ir­spurnum sínum, en Joe Biden Banda­ríkja­for­seti til­kynnti fyrr í mán­uð­inum að aðgerð­irnar myndu kosta rík­is­sjóð 1,9 billjónir Banda­ríkja­dala.

Yellen svar­aði þing­mönn­unum að væntur fjár­laga­halli vegna aðgerð­anna væri ekki mesta hættan sem steðj­aði að þjóð­inni þessa stund­ina, hættu­legra væri að gera of lítið fyrir vinnu­mark­að­inn. „Hag­fræð­ingar eru ekki alltaf sama sinnis, en ég held að nú sé sam­hljómur milli þeirra: Án frek­ari aðgerða hættum við á lengri og sárs­auka­fyllri kreppu til skamms tíma og frek­ari löskun efna­hags­lífs­ins til langs tíma,“ hefur CBS eftir Yellen.

Þrepaskipt skattkerfi

Repúblikanar voru einnig áhuga­samir um það hvort Yellen hafði í hug á að snúa við skatta­lækk­unum sem Donald Trump, fyrrum for­seti Banda­ríkj­anna, kom á í valda­tíð sinni. Því svar­aði hún að skattar yrðu ekki hækk­aðir fyrr en að heims­far­aldr­inum loknum. Þessa stund­ina verði áhersla lögð á að veita hjálp­ar­að­stoð fyrir fjöl­skyldur lands­ins í stað skatta­hækk­ana.

Þrátt fyrir það sagði Yellen að hún myndi leita að leiðum til að breyta skatt­kerf­inu í þágu lág- og milli­tekju­fjöl­skyldna. Hún sagð­ist trúa á „sann­gjarnt og þrepa­skipt skatt­kerfi“ þar sem ríkir ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki borgi þeirra hlut. „Við þurfum að end­ur­byggja hag­kerfið okkar svo að það skili meiri hag­sæld fyrir fleiri laun­þega,“ bætti hún við.

Hörð við Kína

Ekki má þó búast við umskipt­ingum í sam­skiptum Kína og Banda­ríkj­anna verði Yellen settur fjár­mála­ráð­herra, en sam­kvæmt frétt Financial Times var hún mjög harð­orð í garð kín­verskrar efna­hags­stefnu í fyr­ir­spurna­tím­anum. Hún sagði það vera „óásætt­an­legt“ að kín­versk stjórn­völd hand­stýrðu gengi gjald­mið­ils þeirra, kín­verska yuans­ins, til að ná sam­keppn­is­for­skoti og bætti við að hún myndi standa gegn til­raunum allra ann­arra landa til að gera slíkt hið sama.

Einnig sagð­ist Yellen munu „taka á fólsku­legum, ósann­gjörnum og ólög­legum aðgerðum Kína,“ og nefndi þar dæmi um ólög­legar nið­ur­greiðslur til fyr­ir­tækja, stuldi á hug­verka­rétt­indum og við­skipta­hindr­anir. Að hennar sögn væri for­set­inn til­bú­inn að nota öll sín tól til að beita sér gegn þessum aðgerðum.

Þessar athuga­semdir Yellen eru ekki um margt frá­brugðnar þeim sem heyrð­ust frá síð­ustu Banda­ríkja­stjórn, sem var einnig fjand­sam­leg í garð efna­hags­stefnu Kína. Þó greinir Yellen á við Trump í geng­is­málum, þar sem hann var fylgj­andi því að Banda­ríkin fylgdu í fót­spor Kína og lækk­uðu gengi Banda­ríkja­dals til að bæta útflutn­ings­stöðu þeirra en hún er það alls ekki.

Meiri reglur um notkun rafmynta

Samkvæmt frétt frá miðl­inum Ars Technica sagð­ist Yellen einnig vilja setja notkun raf­mynta þrengri skorður, þar sem hún telur þær vera að miklu leyti not­aðar til að fjár­magna ólög­lega starf­semi. Í svari við fyr­ir­spurn frá öld­unga­þing­mann­inum Maggie Hassan um raf­myntir sagði hún að hún vilji skoða leiðir til að draga úr notkun raf­mynta og sjá til þess að ekki verði hægt að þvætta pen­inga í gegnum þær.

Yrði fyrsti kvenkyns fjármálaráðherrann

Yellen er sér­fræð­ingur í vinnu­mark­aðs­hag­fræði, en hún hefur kennt við háskól­ana Berkeley, Harvard og London School of Economics. Hún var seðla­banka­stjóri Banda­ríkj­anna á árunum 2014 til 2018 og sá þar um að vinda ofan af umfangs­mik­illi pen­inga­prentun sem bank­inn hafði ráð­ist í í kjöl­far efna­hag­skrepp­unnar árið 2008.

Hún var fyrsta konan til að gegna stöðu seðla­banka­stjóra, en ef öld­unga­deild Banda­ríkja­þings stað­festir til­nefn­ing­una mun hún einnig verða fyrsti kven­kyns fjár­mála­ráð­herra lands­ins í 231 árs sögu emb­ætt­is­ins.

Samkvæmt New York Times er búist við því að öld­unga­deildin sam­þykki til­nefn­ing­una, þar sem hún nýtur nægi­legs stuðn­ings þing­manna úr báðum flokkum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár