Ísland sker sig úr í bólusetningum

Hvergi á Norð­ur­lönd­unum eru bólu­setn­ingar gegn COVID-19 lengra á veg komnar en á Íslandi. Lægst er hlut­fallið í Svíþjóð en þar hafa um 55 pró­sent íbú­anna fengið að minnsta kosti fyrri skammt bólu­efnis.

Hlutfall bólusettra í hverju Norðurlandanna fyrir sig.
Hlutfall bólu­settra í hverju Norð­ur­land­anna fyrir sig. Mynd: Our World in data

Noregur og Svíþjóð reka lest­ina af Norð­ur­lönd­unum þegar kemur að hlut­falls­legum fjölda bólu­setn­inga. Ísland trónir á toppnum og Færeyjar fylgja þar á eftir.

Þegar bólu­setn­ingar hófust almennt á Norð­ur­löndum í jan­úar var gang­ur­inn í þeim á svip­uðu róli framan af. Í byrjun mars fór að draga í sundur og Finnar tóku for­ystu. Í lok apríl voru stórir bólu­setn­inga­dagar á Íslandi og í kjöl­farið má segja að stökk hafi verið tekið og fram úr nágranna­lönd­unum. Í lok apríl hafði um þriðj­ungur íbúa Íslands verið bólu­settur með að minnsta kosti einum skammti en innan við fjórð­ungur Dana sem þá ráku lest­ina. Allar götur síðan hefur Ísland verið með hæsta hlut­fall bólu­settra á hverjum tíma og allt frá því í maí hefur hlut­fallið verið umtals­vert hærra en á öðrum Norð­ur­löndum.

[adspot]

Í dag er staðan sú að tæp­lega 78 pró­sent íbúa lands­ins eru búnir að fá að minnsta kosti fyrri skammt bólu­efna, að því er fram kemur á heil­brigðis­töl­fræði­vefnum Our World in data. Færeyjar koma þar á eftir (um 67 pró­sent) og Danir og Finnar eru á svip­uðum slóðum (um 63 pró­sent). Í bæði Noregi og Svíþjóð er hlut­fallið undir 60 pró­sentum; 56 pró­sent í Noregi og 55 pró­sent í Svíþjóð. Þess ber þó að geta að tölur yfir bólu­setn­ingar eru birtar sjaldnar þar og þær nýj­ustu frá því fyrir helgi.

[links]Ef litið er til Evrópu í heild þá eykst mun­ur­inn stór­kost­lega. Aðeins 44 pró­sent álf­unnar hafa fengið sprautu, eina eða tvær. Ef horft er enn lengra út í heim kemur for­rétt­inda­staða Íslend­inga enn frekar í ljós. Talið er að innan við þrjú pró­sent íbúa Afríku hafi fengið bólu­setn­ingu. Fjórð­ungur jarð­ar­búa hefur fengið að minnsta kosti einn skammt af bólu­efni.

Stærsti bólu­setn­inga­dag­ur­inn á Íslandi hingað til var 30. júní en þá fengu 16.659 bólu­efni AstraZeneca og 226 bólu­efni Janssen. Íbúar hér á landi hafa þó flestir fengið bólu­efni Pfizer og eru nú yfir 116 þús­und manns full­bólu­settir með því.

Athuga­semd: Í frétt­inni er stuðst við upp­lýs­ingar af vefnum Our World Data þar sem safnað er saman marg­vís­legri töl­fræði víðs vegar um heim­inn og fjöl­miðlar vitna oft til. Mann­fjölda­tölur sem liggja töl­fræð­inni til grund­vallar geta hins vegar verið nokk­urra ára og sam­an­burð­ur­inn á milli landa því ekki 100 pró­sent áreið­an­legur þótt hann gefi vissu­lega sterka vís­bend­ingu um stöð­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár