Fimm leikir þar sem England féll úr leik

Eng­lend­ingar hafa ekki unnið titil á stór­móti í 50 ár eða þegar Bobby Moore lyfti bik­arnum á HM 1966. Ísland leikur gegn Englandi á EM 2016 á mánu­dag. Magnús Hall­dórs­son tók saman eft­ir­minni­lega leiki þar sem enska liðið féll úr leik.

Wayne Rooney og Jamie Vardy eru lykilmenn í liði Englands á EM 2016.
Wayne Rooney og Jamie Vardy eru lyk­il­menn í liði Englands á EM 2016.

Ísland mætir Englandi í Nice í 16 liða úrslitum á EM í Frakk­landi á mánu­dag­inn. Spennan er áþreif­an­leg. Ísland hefur aldrei fyrr kom­ist í úrslita­keppni stór­móts og skráir nýjan og ótrú­legan kafla í sögu­bækur fót­bolt­ans með fram­göngu sinni. England á að baki ríka hefð og sögu, en mikil drama­tík hefur jafnan fylgt lið­inu í útslátt­ar­keppnum á stór­mótum síð­ustu ára­tug­ina. Kjarninn kaf­aði ofan í örlög Englands á stór­mótum, þar sem tárin eru aldrei langt undan, og tók saman fimm eft­ir­minni­lega leiki þar sem England féll úr keppni.

HM 1986

„Hönd guðs“ réði úrslitum

Hinn 22. júní 1986 mætt­ust England og Argent­ína í 16 liða úrslitum á HM í Mexíkó. Raf­magnað and­rúms­loft spennu ein­kenndi leik­inn, og öll spjót beindust að snill­ingnum Diego Maradona. Hvernig ætl­aði England að stöðva hann? Í liði Eng­lend­inga var Gary Lineker í fram­lín­unni, og var hann ávallt lík­legur til að skora. Drama­tíkin í leiknum var mikil. Maradona byrj­aði á því að skora mark með hendi, og gerði leik­menn enska liðs­ins gjör­sam­lega vit­stola af reiði. Eftir leik sagði hann að „hönd Guðs“ hefði skorað markið. Seinna markið var síðan til að kór­óna ótrú­legan leik Maradona, en frá fyrstu mín­útu var hann allt í öllu í leik argentíska liðs­ins. Maradona ein­lék í gegnum vörn Englands frá miðju og skor­aði eitt glæsi­leg­asta mark sög­unnar.

Í 22 manna hóp Argent­ínu voru aðeins sjö leik­menn sem spil­uðu Evrópu, en liðs­heildin var ógn­ar­sterk með Maradona sem gim­stein­inn í sókn­ar­leiknum. Undir lok leiks­ins minnk­aði svo Gary Lineker mun­inn eftir að John Barnes lék upp vinstri væng­inn og sendi fyrir markið, beint á koll­inn á Lineker. En lengra komst England ekki. Eftir leik­inn fóru breskir fjöl­miðlar ham­förum, og gagn­rýndu dóm­ar­ann fyrir að leyfa marki Maradona að standa.

HM 1990

Enska þjóðin grét með Gazza

Fjórum árum eftir drama­tík­ina í Mexíkó var England nú með ferskt lið á Ítalíu, sem var samt ekki talið lík­legt til mik­illa afreka. En það voru hæfi­leik­a­ríkir leik­menn í lið­inu, þar á meðal hinn magn­aði Paul Gascoigne, Gazza, sem var prímus­mót­or­inn á miðj­unni. Enska liðið komst alla leið í und­an­úr­slit, og mætti þar Þjóð­verjum, með Lothar Matthaus á hápunkti fer­ils­ins. Jafnræði var með lið­unum í leiknum, en Gazza – sem var og er mikil til­finn­inga­vera – missti sig eitt augna­blik og tækl­aði leik­mann Þjóð­verja illa og fékk gult spjald. Eitthvað sem hann hafði forð­ast að gera allan leik­inn. Þetta þýddi að Gazza gæti ekki leikið úrslita­leik­inn. Þetta kall­aði fram miklar til­finn­ingar, og brast Gazza í grát. Hann hélt þó áfram að spila, og reyndi að jafna sig. Gary Lineker kall­aði á Bobby Robson, þjálf­ara, og sagði honum að Gazza væri ekki í jafn­vægi.

Leik­ur­inn hélt áfram, og end­aði í víta­spyrnu­keppni, þar sem Þjóð­verjar höfðu betur. Enska þjóðin grét með Gazza, og fjöl­miðl­arnir bresku veltu sér upp úr atvik­inu mán­uðum saman. Að lokum fór það svo að Þjóð­verjar unnu HM, eftir að hafa lagt Argent­ínu að velli, 1-0, með marki Andreas Brehme úr víta­spyrnu. Aldrei hefði átt að dæma víta­spyrn­una þar sem Rudi Völler lét sig falla innan teigs og fiskaði víta­spyrn­una þannig.

EM 1996

Andlegi styrkurinn ekki til staðar

Evr­ópu­keppnin var haldin í Englandi 1996, og þar fór fram­herj­inn Alan Sherear fyrir liði heima­manna sem fyr­ir­liði. Liðið var vel skipað með Gazza í góðu formi. Með hann upp á sitt besta var liðið til alls lík­legt. En fót­bolti er íþrótt þar sem tvö lið keppa og Þjóð­verjar vinna að lokum. Eða þannig lýsti Gary Lineker örlögum and­stæð­inga þeirra, í eitt skiptið. Eftir snilld­ar­til­þrif Gazza í keppn­inni, þar sem hann skor­aði meðal ann­ars stór­glæsi­legt mark gegn Skotum, þar sem mið­vörð­ur­inn frá­bæri Colin Hendry var grátt leik­inn, þá mætt­ust Eng­lend­ingar og Þjóð­verjar aftur, líkt og árið 1990. Aftur var það í und­an­úr­slitum, og aftur var það víta­spyrnu­keppni að lokum.

Fjöl­miðlar í Bret­landi eru frægir fyrir að vera mis­kunn­ar­lausir, þegar kemur að árangri lands­liðs­ins, og þá sér­stak­lega ein­stak­lings­mi­s­tökum. Krafan var ein­föld fyrir mótið; nú ætti England að fara alla leið. Í þetta skiptið var það Gareth Southgate sem reynd­ist örlaga­valdur, en hann var sá eini sem mis­not­aði víta­spyrnu sína. David Seaman átti ekki roð í öruggar spyrnur Þjóð­verja. Hann var nið­ur­lægður í breskum fjöl­miðlum eftir á, og fékk hverja fyr­ir­sögn­ina á fætur annarri um sig dag­ana á eftir. Tapið var gríð­ar­lega svekkj­andi, en sýndi að enska liðið virt­ist ein­fald­lega ekki búa yfir nægi­legum and­legum styrk til að fara alla leið. Góðir leik­menn væri ein­fald­lega ekki nóg.

HM 1998

David Beckham verður skúrkurinn

Spenn­andi kyn­slóð leik­manna var nú farin að setja mark sitt á enska lands­liðið, með hinn frá­bæra Paul Scholes á miðj­unni, og gull­dreng­inn David Beckham á hægri vængnum. Átján ára fram­herji frá Liverpool, Michael Owen, stal sen­unni þegar komið var fram í átta liða úrslitin, þegar England og Argent­ína mætt­ust. Owen átti þá magn­aðan sprett, frá miðju vall­ar­ins, og kom Englandi yfir, 2-1, í bráð­fjör­ugum fyrri hálf­leik.

En drama­tíkin, sem alltaf eltir enska liðið þegar í útslátt­ar­keppni á stór­móti er komið, birt­ist svo nokkuð óvænt í seinni hálf­leik. Þá var David Becham rek­inn af velli, fyrir að sparka í Diego Simone, núver­andi þjálf­ara Atletico Madrid. Nánast um leið og atvikið átti sér stað, mátti skynja reiði enskra fjöl­miðla út í Beckham.

Seinni hálf­leik­ur­inn var mikið til nauð­vörn hjá Englandi, þar sem mið­verð­irnir sterku, Tony Adams og Sol Campbell, sköll­uðu bolt­ann frá. Þegar kom að víta­keppni, þá tóku sig upp kunn­ug­leg atriði. Leikmenn fóru á taugum, og England féll úr keppni. Fjöl­miðl­arnir fundu söku­dólg­inn strax í Beckham, og var hann nið­ur­lægður vikum saman í bresku blöð­unum, fyrir að láta reka sig útaf.

HM 2010

Væntingarnar stoppa gegn Þýskalandi

Sextán liða úrslitin og Þjóð­verjar eru and­stæð­ing­ur­inn, einu sinni sem oftar þegar England er ann­ars vegar. Þar stoppa yfir­leitt vænt­ing­arnar, og það var engin und­an­tekn­ing á HM í Suður-Afríku 2010. Þá mætt­ust þessar þjóðir í átta liða úrslitum. Steven Gerrard var með fyr­ir­liða­bandið og með honum á miðj­unni voru Gareth Barry og Frank Lampard. Þetta var hryggjar­stykkið í lið­inu, sem þótti til alls lík­legt fyrir mótið, en í fram­lín­unni var Wayne Rooney.

Öllu var tjaldað til. Fabio Capbello, Ítalinn reynslu­mikli, var þjálf­ari liðs­ins. Eftir fremur hæga byrjun, komst England inn í útslátt­ar­keppn­ina. Liðið skíttap­aði fyrir Þjóð­verjum, 4-1. En þrátt fyrir það, náðu breskir fjöl­miðlar að gera sér lengi vel mat úr því að Lampard hefði skorað mark, sem hefði átt að standa. Þegar hann skaut bolt­anum í slána og inn í markið, en dóm­ar­inn lét leik­inn halda áfram, þrátt fyrir að bolt­inn hefði aug­ljós­lega farið yfir lín­una. Þetta töldu margir grein­endur í Englandi, að hefði verið vendi­punktur í leiknum. En stað­reyndin var sú, að enska liðið stóðst því þýska ekki snún­ing í leiknum, og átti aldrei mögu­leika, þrátt fyrir að Matthew Upson hafi minnkað mun­inn í 1-2 í fyrri hálf­leik. Taug­arnar voru þandar og pressan um árangur var mikil. Enn einu sinni náði enska liðið ekki að stand­ast þessa stöðu. Í hill­unni, hjá þess­ari heima­þjóð fót­bolt­ans, er einn stór tit­ill, frá því á HM 1966 í Bret­landi. Biðin er nú 50 ár.

EM 2016

Meiri pressa á Englendingum gegn Íslandi

Enska liðið núna er um margt ólíkt þeim sem hafa verið á stór­mótum und­an­farna ára­tugi. Í lið­inu er Wayne Rooney þekkt­astur leik­manna, en efni­legir ungir leik­menn eru farnir að láta að sér kveða, og virð­ast óhræddir við hvaða and­stæð­ing sem er. En þegar kemur að leiknum gegn Íslandi, þá er enska liðið sann­ar­lega það lið sem er með meiri pressu á sér og kröfu um sigur. Sagan sýnir að sú staða er oft ekki góð fyrir England þar sem pressan reyn­ist leik­mönnum oft erfið. Þeir kikna undan henni og gera mis­tök, sem leiðir til þess að liðið fellur úr keppni. Samt hefur England oft kom­ist langt í loka­keppni, og því má ekki gleyma. Ísland getur ekki van­metið neinn and­stæð­ing – eins og gefur auga leið – en það á mögu­leika gegn enska lands­lið­inu, sem er nú komið með fram fimmtu kyn­slóð­ina af leik­mönnum sem aldrei hefur kynnst því að vinna stóran titil með lands­liði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

em2016

Fréttirem2016

Starfs­fólk KSÍ fær bón­us­greiðslur vegna EM

Starfs­fólk Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) fær greitt launa­upp­bót sökum álags í tengslum við þátt­töku A-lands­liðs karla á EM í Frakk­landi í sumar, þar sem liðið komst í átta liða úrslit. Uppbótin mun sam­svara mán­að­ar­launum hvers starfs­manns. Stjórn KSÍ sam­þykkti þetta á fundi í júlí. Frá mál­inu er greint í Frétta­blað­inu í dag. Geir Þor­steins­son, for­maður KSÍ, bar fram til­lög­una þegar hún...
Fréttirem2016

Eft­ir­spurn eftir gist­ingu í Frakk­landi jókst mest meðal Íslend­inga

Tífalt fleiri Íslend­ingar leit­uðu eftir gist­ingu í Frakk­landi á fyrri hluta þessa árs en í fyrra á vef Hotels.com, enda náði íslenska landsiðið í knatt­spyrnu langt á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu sem fram fór í Frakk­landi í júní. Sam­an­borið við önnur lið sem náðu jafn langt og Ísland í keppn­inni juk­ust leitir Íslend­inga mest. Að jafn­aði fjölg­aði leitum að hót­el­her­bergjum í Frakk­landi um...
Pistillem2016

Þórður Snær Júlíusson

Þegar Arnór Ingvi tryggði Portú­gölum Evr­ópu­meist­ara­titil

Úrslita­leikir hafa til­hneig­ingu til að vera leið­in­legir. Þeir sem hafa ekki verið það eru telj­andi á fingrum ann­arar handar. Mexíkó 1986, kannski úrslita­leikur EM 2000, úrslita­leikur meist­ara­deild­ar­innar í Istanbúl árið 2005 koma upp í hug­ann. Þótt ýmsir leikir hafi inni­haldið hádramat­ísk augna­blik, t.d. magn­aður sigur Manchester United á Bayern Munich árið 1999, þá var leik­ur­inn sjálfur að mestu hund­leið­in­legur. Úrslita­leikur...
Erlentem2016

Portúgal Evr­ópu­meist­arar eftir sigur á Frökkum

Portúgal er Evr­ópu­meist­ari eftir að hafa sigrað Frakk­land 1-0 í úrslita­leik EM 2016. Eina mark leiks­ins var skorað af vara­mann­inum Eder, sem á 109 mín­útu leiks­ins. Heima­menn í Frakk­landi höfðu þótt mun sig­ur­strang­legri fyrir leik­inn og sig­ur­líkur þeirra þóttu ekki minnka þegar Cristiano Ronaldo, einn besti knatt­spyrnu­maður sög­unnar, þurfti að fara meiddur af velli um miðjan fyrri hálf­leik. Fyrir leik­inn...
Erlentem2016

Kolbeinn við það að verða kos­inn leik­maður EM á vef Sky

Kolbeinn Sig­þórs­son, fram­herji íslenska lands­liðs­ins og franska liðs­ins Nantes, er í efsta sæti í kosn­ingu á leik­manni EM hjá Sky. Kolbeinn hefur fengið yfir 20 þús­und atkvæði en Antoine Griezmann, helsta stjarna franska lands­liðs­ins, situr í öðru sæti með um 18 þús­und atkvæði. EM lýkur síðar í dag með úrslita­leik heima­manna í Frakk­landi gegn liði Portúgal. Íslenska lands­liðið datt sem...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár