Átta hlutir sem þú þarft að vita um EM 2016

Ísland tekur þátt í loka­móti Evr­ópu­meist­ara­móts karla í knatt­spyrnu í fyrsta sinn. Fyrir þá sem ekki fylgj­ast reglu­lega með fót­bolta getur verið erfitt að átta sig á hvað snýr upp og hvað niður.

Evr­ópu­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu hefst með opn­un­ar­leik Frakka og Rúmena í París í dag. Ísland tekur þátt í Evr­ópu­meist­ara­mót­inu í fyrsta sinn í knatt­spyrnu­sög­unni. Það er því ekki að undra að þeir Íslend­ingar sem ekki fylgj­ast reglu­lega með fót­bolta viti ekk­ert hvað við erum búin að koma okkur útí. Hér eru nokkrar algengar spurn­ingar sem þú þorðir ekki að spurja og svör við þeim.

Hvernig fer mótið fram?

Alls hlutu 24 lið þátt­töku­rétt á Evr­ópu­meist­ar­mót­inu (EM) í ár. Mótið er leikið í fimm skrefum; riðla­keppni, 16 liða úrslitum, 8 liða úrslitum, und­an­úr­slitum og úrslitum. Liðunum er skipt í sex riðla þar sem fjögur lið eru í hverjum riðli. Liðin fjögur leika svo öll þrjá leiki, einn við hverja þjóð í riðl­inum, sam­tals sex leiki.

Þá tekur úrslita­keppnin við og gilda nú nýjar reglur ef lið standa jöfn eftir 90 mín­útna leik. Þá tekur við fram­leng­ing og ef ekki tekst að finna sig­ur­veg­ara í fram­leng­ingu þá er gripið til víta­spyrnu­keppni. Tvö lið úr hverjum riðli kom­ast í 16 liða úrslit auk fjög­urra liða sem lentu í þriðja sæti í riðl­unum sínum. Þar ræður árangur lið­anna í þriðja sæti því hvort liðið kom­ist áfram.

Sig­ur­veg­arar úr átta leikjum í 16 liða úrslitum kom­ast þá áfram í 8 liða úrslit og fjögur lið þaðan áfram í und­an­úr­slit. Sig­ur­veg­ar­arnir úr þeim tveimur leikjum takast svo á í úrslitum 10. júlí.

Á Ísland séns á að verða evrópumeistari?

Það verður að telj­ast í besta falli mjög langsóttur draumur. En miði er mögu­leiki! Grikkir mættu til leiks árið 2004, léku allar stærstu knatt­spyrnu­þjóðir Evrópu grátt með þaul­skipu­lögðum varn­ar­leik og stóðu á end­anum uppi sem sig­ur­veg­ari. Svo það er allt hægt.

Þeir sem eru að telja lukku­dís­irnar sínar, halda að him­in­tunglin standi akkúrat rétt eða eru bara til í að eyða nokkrum krónum geta opnað upp­á­halds veð­bank­ann sinn og sett á Ísland til að sigra mótið. Ef Ísland vinnur svo má búast við að upp­hæðin 125-fald­ist. Þeir allra bjart­sýn­ustu ættu samt að setja pen­ing á Albani sem taldir eru ólík­leg­astir. Gróðinn verður samt fínn ef allt gengur upp; upp­hæðin mun ekki nema 500-fald­ast. (Miðað er við stuðla bet365 fimmtu­dag­inn 9. júní).

Hvenær eru leikir Íslands?

Íslenska liðið hefur nú komið sér fyrir í bæki­stöðvum sínum í Annecy-le-Vieux í vest­ur­hluta Frakk­lands. Liðið leikur alls þrjá leiki í riðla­keppn­inni og aldrei á sama stað. Það hefur reynst íslenskum stuðn­ings­mönnum nokkur haus­verkur, enda um nokkuð langan veg að fara milli leikja. Ísland er í F-riðli með Portúgal, Aust­ur­ríki og Ung­verja­landi.

Keppnisstaðir Íslands eru merktir appelsínugulir. Aðrir keppnisstaðir eru merktir fjólubláir.

Ísland leikur fyrsta leik sinn þriðju­dag­inn 14. júní í Saint-Étienne, ekki langt frá Annecy-bæki­stöðv­unum. Leik­ur­inn hefst klukkan 19:00 að íslenskum tíma og munu okkar menn etja kappi við Portúgal. Með Portúgal leikur Christiano Ronaldo, einn besti leik­maður heims. Portúgal hefur aldrei orðið Evr­ópu­meist­ari en varð í öðru sæti á eftir Grikkjum árið 2004.

Annar leikur Íslands í riðla­keppn­inni verður gegn Ung­verjum laug­ar­dag­inn 18. júní í Marseille í Suður-Frakk­landi. Leik­ur­inn hefst klukkan 16:00 að íslenskum tíma. Ung­verjar eru góðir í fót­bolta og harðir í horn að taka enda skipa þeir nú 20. sæti á list­anum yfir sterk­ustu fót­bolta­þjóðir heims. Ung­verja­land hefur aldrei orðið Evr­ópu­meist­ari en urðu í þriðja sæti árið 1964.

Síðasti leikur Íslands í riðla­keppn­inni er gegn Aust­ur­ríki mið­viku­dag­inn 22. júní í París. Leik­ur­inn hefst klukkan 16:00 að íslenskum tíma, svo gera má ráð fyrir að fót­boltaunn­endur muni vilja fara fyrr heim úr vinn­unni þann dag­inn. Aust­ur­ríki hefur aldrei unnið mótið enda aðeins tekið þátt tvisvar. Það voru tvö síð­ustu mót árið 2008 og 2012. Aust­ur­ríki er 10 sæti yfir bestu fót­bolta­þjóðir í heimi og hefur aldrei farið hærra.

Hverjir eru sigurstranglegastir á mótinu?

Frakkar eru, áður en mótið hefst, taldir sig­ur­strang­leg­astir í veð­bönkum. Frakkar hafa tvisvar orðið Evr­ópu­meist­arar, fyrst árið 1984 og svo árið 2000. Þýska­land er sú þjóð sem er talin eiga næst mestan séns á að hreppa gullið, rétt á undan Spán­verjum.

Hvaða stórstjörnur mæta til leiks?

Evrópa er mikil fót­bolta­álfa og þaðan koma margir af bestu leik­mönnum heims. Þeir sem ekki fylgj­ast reglu­lega með fót­bolta ættu samt að hafa heyrt nöfn á borð við Christiano Ronaldo, Wayne Rooney, Zlatan Ibrahimovich og Tomas Müller.

Hversu lengi stendur mótið?

Mótið stendur í heilan mánuð frá 10. júní til 10. júlí. Leikið er á tíu leik­vöngum vítt og breitt um Frakk­land og í öllum helstu borgum lands­ins. Ísland keppir 14. júní, 18.júní og 22. júní í Saint-Étienne, Marseille og París. Leikir Íslands gætu orðið fleiri komumst við í úrslita­keppn­ina.

Í hvaða litum spilar Ísland?

Ísland tekur tvo bún­inga með sér til Frakk­lands. Aðal­bún­ing­ur­inn er blár og vara­bún­ing­ur­inn er hvítur. Mark­menn­irnir spila hins vegar í öðru­vísi treyjum. Þær geta verið eit­ur­grænar eða svartar, eftir því við hvaða þjóð kappi er att.

Hverjir unnu síðast og þar áður?

Keppnin fer fram á fjög­urra ára fresti og hefur gert síðan 1960. Í síð­ustu tvö skiptin, árið 2012 og 2008, hefur Spánn staðið uppi sem sig­ur­veg­ari. Fyrrum herra­þjóð okkar, Danir, hafa einu sinni unnið árið 1992.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

em2016

Fréttirem2016

Starfs­fólk KSÍ fær bón­us­greiðslur vegna EM

Starfs­fólk Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) fær greitt launa­upp­bót sökum álags í tengslum við þátt­töku A-lands­liðs karla á EM í Frakk­landi í sumar, þar sem liðið komst í átta liða úrslit. Uppbótin mun sam­svara mán­að­ar­launum hvers starfs­manns. Stjórn KSÍ sam­þykkti þetta á fundi í júlí. Frá mál­inu er greint í Frétta­blað­inu í dag. Geir Þor­steins­son, for­maður KSÍ, bar fram til­lög­una þegar hún...
Fréttirem2016

Eft­ir­spurn eftir gist­ingu í Frakk­landi jókst mest meðal Íslend­inga

Tífalt fleiri Íslend­ingar leit­uðu eftir gist­ingu í Frakk­landi á fyrri hluta þessa árs en í fyrra á vef Hotels.com, enda náði íslenska landsiðið í knatt­spyrnu langt á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu sem fram fór í Frakk­landi í júní. Sam­an­borið við önnur lið sem náðu jafn langt og Ísland í keppn­inni juk­ust leitir Íslend­inga mest. Að jafn­aði fjölg­aði leitum að hót­el­her­bergjum í Frakk­landi um...
Pistillem2016

Þórður Snær Júlíusson

Þegar Arnór Ingvi tryggði Portú­gölum Evr­ópu­meist­ara­titil

Úrslita­leikir hafa til­hneig­ingu til að vera leið­in­legir. Þeir sem hafa ekki verið það eru telj­andi á fingrum ann­arar handar. Mexíkó 1986, kannski úrslita­leikur EM 2000, úrslita­leikur meist­ara­deild­ar­innar í Istanbúl árið 2005 koma upp í hug­ann. Þótt ýmsir leikir hafi inni­haldið hádramat­ísk augna­blik, t.d. magn­aður sigur Manchester United á Bayern Munich árið 1999, þá var leik­ur­inn sjálfur að mestu hund­leið­in­legur. Úrslita­leikur...
Erlentem2016

Portúgal Evr­ópu­meist­arar eftir sigur á Frökkum

Portúgal er Evr­ópu­meist­ari eftir að hafa sigrað Frakk­land 1-0 í úrslita­leik EM 2016. Eina mark leiks­ins var skorað af vara­mann­inum Eder, sem á 109 mín­útu leiks­ins. Heima­menn í Frakk­landi höfðu þótt mun sig­ur­strang­legri fyrir leik­inn og sig­ur­líkur þeirra þóttu ekki minnka þegar Cristiano Ronaldo, einn besti knatt­spyrnu­maður sög­unnar, þurfti að fara meiddur af velli um miðjan fyrri hálf­leik. Fyrir leik­inn...
Erlentem2016

Kolbeinn við það að verða kos­inn leik­maður EM á vef Sky

Kolbeinn Sig­þórs­son, fram­herji íslenska lands­liðs­ins og franska liðs­ins Nantes, er í efsta sæti í kosn­ingu á leik­manni EM hjá Sky. Kolbeinn hefur fengið yfir 20 þús­und atkvæði en Antoine Griezmann, helsta stjarna franska lands­liðs­ins, situr í öðru sæti með um 18 þús­und atkvæði. EM lýkur síðar í dag með úrslita­leik heima­manna í Frakk­landi gegn liði Portúgal. Íslenska lands­liðið datt sem...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár