Endurkoma „4-4 f***ing 2“

Ísland er kannski fámenn­asta þjóðin á EM í Frakk­landi, en með 4-4-2 leikk­erfið getur það vel náð langt.

Eitt besta atriði kvik­mynda­sög­unnar (!) er þegar Mike Bassett (Ricky Tom­l­in­son), lands­liðs­þjálf­ari Englands, heldur blaða­manna­fund til að til­kynna um það eitt, að enska lands­liðið, undir hans stjórn, muni spila leikk­erfið „4-4 f***ing two“. Liðsval Bassetts var umdeilt, svo ekki sé dýpra í árina tekið, og íhalds­semi hans fór ævin­týra­lega í taug­arnar á blaða­mönnum og aðdá­endum.

Leikkerfið í forgrunni

Meist­ara­verkið Mike Bassett England Manager – sem lík­lega telst ekki meist­ara­verk í huga neinna nema þeirra sem hafa brenn­andi áhuga á enskum fót­bolta og menn­ing­unni í kringum hann – setur leikk­erfið 4-4-2 í for­grunn. Fjórir varn­ar­menn, fjórir miðju­menn og tveir fram­herjar. Enska knatt­spyrnan upp á gamla mát­ann. Myndin kom út árið 2001 og er „költ“ skrímsli nú þegar, fyrir þá sem ekki til þekkja.

Í seinni tíð hefur þetta kerfi dottið úr tísku, ef þannig má að orði kom­ast. Algeng­ast er að lið leiki með einn leik­mann fremstan, eða þrjá séu kant­menn­irnir teknir með. Mörg af stóru félög­unum í Evr­ópu­bolt­anum hafa gert þetta, og vissu­lega með góðum árangri. Leikk­erfin 4-3-3 eða 4-5-1 eru algeng­ust, þar sem þau þykja sveigj­an­legri og henta betur nútíma­fót­bolta. Eða þannig er í það minnsta stundum rætt um þau.

Barcelona, Real Madrid, FC Bayern, Atletico Madrid, PSG og Chelsea – svo dæmi séu tekin – hafa öll not­ast við þessi leikk­erfi und­an­farin ár.

Það er komið aftur

En tvö dæmi um vel heppn­aða „end­ur­komu“ 4-4-2 leikk­erf­is­ins, á stærsta svið fót­bolt­ans, koma upp í hug­ann. Auðvitað finnst mér aug­ljós­ast að benda á íslenska lands­liðið, undir stjórn Lars Lagerback og Heimis Hall­gríms­sonar.

Frá fyrsta blaða­manna­fund­inum hjá Lars hefur það legið fyrir að 4-4-2 yrði leikk­erfi íslenska lands­liðs­ins. Ólíkt blaða­manna­fund­inum hjá Bassett, þá kom Lagerback þessu til skila með yfir­veg­uðum hætti.

Það þarf ekki að rekja sög­una í smá­at­riðum, en Ísland er á EM, fámennsta þjóðin í sög­unni til að ná svo langt, og komið með fyrsta stigið eftir frá­bært 1-1 jafn­tefli við sterkt lið Portúgal.

Bar­áttu­svipur skín af hverju and­liti leik­manna og leikk­erfið 4-4-2 hleður upp vegg sem and­stæð­ingum hefur reynst erfitt að brjóta niður, og sóknin er beitt. Lyk­il­menn í varn­ar­leiknum eru fram­herj­arnir, Kolbeinn Sig­þórs­son og Jón Daði Böðv­ars­son, sem láta finna fyrir sér. Kolbeinn vann til dæmis 18 skalla­ein­vígi í leiknum gegn Portúgal. Mark Íslands kom líka upp úr kunn­ug­legum hjól­förum 4-4-2 leikk­erf­is­ins. Kant­mað­ur­inn laumar sér á fjar­stöng­ina, fyrir aftan bak­vörð­inn, og setur bolt­ann inn eftir fyr­ir­gjöf frá kant­mann­inum hinu megin, Jóhanni Berg Guð­munds­syni.

Ísland er til alls lík­legt á mót­inu, og ekk­ert lið mun valta yfir skipu­lagið. Svo mikið er víst.

Leicester minnir á Blackburn

Hitt dæmið sem nefna má um vel heppn­aða end­ur­komu 4-4-2 leikk­erfis er hjá meist­ara­liði Leicester City í ensku úrvals­deild­inni. Þar kom gamli ref­ur­inn Claudio Ranieri að stjórn félags­ins, og byrj­aði á því að festa niður leik­skipu­lag sem liðið myndi vinna eftir, alveg sama á hverju gengi. Til að gera langa sögu stutta, þá tókst Leicester hið ómögu­lega, sem var að vinna deild­ina, með fast­mótað 4-4-2 leikk­erfi. Það sem reynd­ist and­stæð­ing­unum erf­ið­ast, var að brjóta niður leik­skipu­lagið og dugn­að­inn, frá fremsta manni til hins aftasta. Allir hjálp­uð­ust að, og lögðu sitt af mörkum. Tveir fram­herjar, fjórir miðju­menn og fjórir varn­menn, með traustan mark­vörð milli stang­anna.

Liðið minnti um margt á meist­ara­lið Blackburn Rovers frá 1995, þar sem 4-4-2 leikstíll­inn var aðals­merkið. Og byrj­un­ar­liðið var allt skipað breskum leik­mönnum sem vildu fá bolt­ann út á kant og gefa fyrir á hættu­lega fram­herja, Alan Shearer og Chris Sutton. Í mark­inu var Tim Flowers, og varn­ar­línan var skipuð Le Saux, Jeff Kenna, Colin Hendry - sem fórn­aði sér fyrir liðið þegar á þurfti að halda - og Ian Pearce (Henning Berg kom svo inn í liðið reglu­lega). Á miðj­unni voru Jason Wilcox, David Batty, Tim Sherwood og Stuart Ripley. Þetta lið fór alla leið og vann tit­il­inn. Spilaði gríð­ar­lega hraðan á ástríðu­mik­inn bolta, þar sem allir börð­ust hver fyrir annan og fóru í gegnum súrt og sætt (aðal­lega sætt samt) sem lið. Kunn­ug­legt?

Ekkert basl á okkur

Bassett átti í bölv­uðu basli með enska lands­liðið, ekki síst eftir að liðspartýið á HM í Brasilíu fór út um þúfur. Hann end­aði sjálfur ofurölvi uppi á borði. Hálf­leiks­ræðan gegn Mexíkó – ægi­legur fúk­yrða­flaumur – skil­aði heldur engum árangri. „England tap­aði, 4-0.“

Lars og Heimir eru hins vegar með lið í hönd­unum sem þarf ekki að fá neinn fúk­yrða­flaum framan í sig til að virka. Það eru allir með sín hlut­verk á hreinu og þannig hefur það verið frá fyrsta degi þeirra í starfi. Ísland er til alls lík­legt með 4-4-2 ræki­lega neglt niður, og ástríðu­fulla góða leik­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

áframÍsland

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár