Önnur gíslataka í austurhluta Parísar

Vopnaður maður heldur að minnsta kosti fimm manns í gísl­ingu í verslun í aust­ur­hluta Parísar. Versl­unin er í eigu gyð­inga í Port de Vincent á mörkum 12. og 20. hverfis í París.

Fréttir eru enn óljósar en AFP frétta­stofan í Frakk­landi segir að minnst tveir gíslar séu látnir þar. AP frétta­stofan segir nokkra alvar­lega slas­aða, en Reuters segir gísl­ana vera sex tals­ins og þar af sé einn alvar­lega slas­aður.

At least two killed in hostage drama east of Paris. Photo @MartinBureau1 #AFP pic.twitter.com/ZvcbbTgvNm

— AFP Photo Depart­ment (@AFPphoto) January 9, 2015

Lög­reglan hefur birt myndir og nafn­greint mann­inn í seinna gísla­töku­mál­inu, sem og konu sem er grunuð um aðild. Þau heita Amedy Coulibaly og Hayat Boumeddiene.

Hayat Boumeddienne et Amedy Coulibaly #Montrouge #Vincennes Cc @FrDesouche pic.twitter.com/Jzx5Rfqaa7 — Hérisson Dissident ن (@Herissident) January 9, 2015

Talið er að Coulibaly hafi myrt lög­reglu­konu í gær og að hann teng­ist hryðju­verka­mönn­unum sem réð­ust á starfs­fólk rit­stjórnar Charlie Hebdo á mið­viku­dag. Hryðju­verka­menn­irnir tveir, Saïd Kouachi og Chérif Kouachi, halda enn manni föngnum í iðn­að­ar­hús­næði norðan Parísar. Menn­irnir eru allir sagðir til­heyra sömu hryðju­verka­sellu, með tengsl við Al-Kaída.

This is the Kosher grocery (top left) in eastern Paris where 5 hosta­ges are being held by two armed men #CharlieHebdo pic.twitter.com/nCgL856wZ4 — Yury Barmin (@yurybarmin) January 9, 2015

Vitni að seinni gísla­tök­unni sagði frönskum fjöl­miðlum að mað­ur­inn hafi verið með Kalas­hnikov riffil, sams­konar vopn og Kouachi bræð­urnir. Hann hafi farið inn í versl­un­ina og hafið skot­hríð. Francois Hollande, for­seti Frakk­lands, situr nú neyð­ar­fund með yfir­mönnum her­mála og ráð­herrum í rík­is­stjórn lands­ins í aðgerð­ar­mið­stöð inn­an­rík­is­ráðu­neytis Frakka. Fréttin verður upp­færð.

Le président @fhollande supervise les opérations dans la "situation room" du ministère de l'Intéri­eur, @Place_Beauvau pic.twitter.com/QTYYJPcBNM — Élysée (@Elysee) January 9, 2015

Helstu atburðir síðustu daga


Smelltu á blöðr­urnar til að sjá upp­lýs­ingar um stað­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár