Hlutfall heimilanna í heilbrigðisútgjöldum lækkar

Íslensk heim­ili standa undir 15 pró­sentum af útgjöldum til heil­brigð­is­mála. Árið 2010 var hlut­fallið 18 pró­sent. Stefnt er að því að það verði 13-14 pró­sent árið 2025 og þá hvað lægst af Norð­ur­lönd­unum.

Stefnt að frekari lækkun
Stefnt að frek­ari lækkun Verja á fjórum millj­örðum króna fram til árs­ins 2025 til að lækka hlut­deild íslenskra heim­ila í útgjöldum til heil­brigð­is­mála. Mynd: Landspítali/Þorkell

Greiðslu­hlut­fall íslenskra heim­ila af heil­brigðis­út­gjöldum hefur lækkað um tæp þrjú pró­sentu­stig síð­asta ára­tug. Árið 2010 stóðu heim­ilin undir 18,3 pró­sentum af heild­ar­út­gjöldum til heil­brigð­is­mála en árið 2019 var hlut­fallið komið niður í 15,6 pró­sent. Heimilin greiddu rúma 40 millj­arða króna árið 2019 til heil­brigð­is­mála.

Þetta kemur fram í skýrslu heil­brigð­is­ráð­herra um mat á því hvernig eigi að lág­marka kostnað sjúk­linga vegna lang­vinnra og lífs­hættu­legra sjúk­dóma. Í fjár­mála­á­ætlun fyrir árin 2021-2025 er gert ráð fyrir að fjög­urra millj­arða króna hækkun á fjár­veit­ingum sem nýta á til að lækka greiðslu­þátt­töku sjúk­linga, 800 millj­örðum króna ár hvert. Áætlað er að það kosti hið opin­bera um tvo millj­arða króna að lækka hlut­deild heim­il­anna í útgjöldum til heil­brigð­is­mála um eitt pró­sent og er því gert ráð fyrir að hlut­deildin verði komin niður í 13 til 14 pró­sent árið 2025. Ef það gengur eftir verður Ísland á pari við eða neðar en hin Norð­ur­löndin, sé miðað við stöð­una í dag.

Hlut­deild íslenskra heim­ila í heil­brigðis­út­gjöldum hefur síð­asta ára­tug verið einna hæst á Norð­ur­lönd­unum, þó ívið lægri heldur en í Finn­landi þar sem hlut­fallið hefur alla jafna verið 18-19 pró­sent. Á Íslandi var hlut­fallið almennt 18 pró­sent til árs­ins 2016 en síðan hefur það lækkað og sam­kvæmt bráða­birgða­tölum fyrir árið 2019 var það rúm 15 pró­sent. Í Danmörku hefur sama hlut­fall alla jafna verið 14 pró­sent síð­asta ára­tug og 14-15 pró­sent í Noregi og Svíþjóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hug­sjóna­flokkur verður að borg­ara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síð­ustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trú­verð­ug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokk­ur­inn tal­aði áður skýrt á móti. Samhliða hefur rót­tækt fólk úr gras­rót­inni yfir­gefið Vinstri græn, kjós­enda­hóp­ur­inn breyst, hratt gengið á póli­tíska inn­eign Katrínar Jak­obs­dóttur og fylgi flokks­ins hrunið. Þetta er fórn­ar­kostn­aður þess að kom­ast að völdum með áður yfir­lýstum póli­tískum and­stæð­ingum sínum.

10 mín. lestur

ÚttektRíkisstjórn Katrínar

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár