Samfélag er „ekki bara hagtölur“

„Það er svo óend­an­lega mik­ils virði að sam­fé­lagið virki þannig að okkur líði vel í því,“ sagði heil­brigð­is­ráð­herra á upp­lýs­inga­fundi rík­is­stjórn­ar­innar fyrr í dag. Á fund­inum voru kynntar hertar aðgerðir á landa­mær­unum.

Svandís Svavarsdóttir á fundi stjórnvalda í Safnahúsinu í apríl.
Svandís Svav­ars­dóttir á fundi stjórn­valda í Safna­hús­inu í apríl. Mynd: Bára Huld Beck

Meg­in­mark­mið stjórn­valda nú er að ná tökum á far­aldr­inum hér inn­an­lands með það fyrir augum að heil­brigð­is­kerfið ráði við þá bylgju sem við erum á núna sem og til þess að verja þá sem við­kvæm­astir eru. Þetta sagði Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra á upp­lýs­inga­fundi rík­is­stjórn­ar­innar sem hald­inn var í Safna­hús­inu við Hverf­is­götu í dag.

[links]

Á fund­inum voru kynntar hertar aðgerðir í landamæra­skimun. Nú munu allir komu­far­þegar þurfa að fara í skimun við kom­una til lands­ins, sæta fjög­urra til fimm daga sótt­kví og fara svo í seinni skimun.

Mikilvægt að fara að ráði sóttvarnayfirvalda

Svandís lagði áherslu á að ein­stak­lings­bundnar smit­varnir væru ef til vill það sem skipti mestu máli í bar­átt­unni við far­ald­ur­inn. „Ég vil líka leggja áherslu á það að hér eftir sem hingað til höfum við á Íslandi borið gæfu til þess að taka ákvarð­anir sem eru til­tölu­lega lítið íþyngj­andi fyrir sam­fé­lagið. Vegna þess að við leggjum mikla áherslu á það að sam­fé­lagið sé í gangi. Að það virki. Að fólk sé að hitt­ast, að fólk sé að tala saman. Að við höldum áfram að til eins og við höfum margoft sagt,“ sagði hún í kjöl­farið.

Hún sagði það einnig mjög mik­il­vægt að fara að ráði sótt­varna­yf­ir­valda, því þau viti best hvernig eigi að glíma við far­ald­ur­inn. „Það viljum við líka gera. Vegna þess að það er ákvörðun og það er líka ákvörðun sem er póli­tísk að leyfa stjórn­mál­unum að vera í aft­ur­sæt­inu þegar komið er að vís­inda­legum við­fangs­efnum. Að gera kröfu um það. Að setja sjálfan sig í annað sæti þegar komið er að vís­inda­legum áskor­unum.“

Hún sagði þekk­ingu á veirunni vaxa dag frá degi, þannig virki vís­indin. Hún sagði stjórn­völd og sam­fé­lagið þurfa að hafa sveigj­an­leika til þess að fylgja eftir sjón­ar­miðum sótt­varna­yf­ir­valda. Það hafi verið okkar gæfa hingað til og sagð­ist Svandís vilja að svo yrði áfram.

Ekki hægt að leggja hagrænt mat á allt

„Samfélag er nefni­lega ekki bara hag­tölur og sam­fé­lag er ekki bara rík­is­reikn­ing­ur­inn eða hag­vöxt­ur­inn eða hvað það er sem við viljum að það sé. Það er svo óend­an­lega mik­ils virði að sam­fé­lagið virki þannig að okkur líði vel í því. Og sumt af því er þannig að við getum ekki einu sinni sett á það eitt­hvað hag­rænt mat. Þó það fari ægi­lega í taug­arnar á okkur í stjórn­völd­unum að geta ekki sett hag­rænt mat á allt. Þá er sumt þannig að það er ein­fald­lega ekki hægt. Og það er það að lifa og hrær­ast í öfl­ugu og opnu sam­fé­lagi. Það er sam­fé­lag þar sem eru sterkir skólar. Þar sem er öruggt og öfl­ugt heil­brigð­is­kerfi og þar sem að menn­ing­ar­lífið blómstrar á hverjum ein­asta degi,“ sagði Svandís.

Hún sagði í kjöl­farið að ákvarð­anir stjórn­valda væru teknar með það í huga að sam­fé­lagið gæti verið þannig. Þá nýtti hún tæki­færið til að minna á þátt hvers og eins í bar­átt­unni við veiruna: Við erum öll almanna­varnir og það gildir í dag, það mun gilda enn um sinn og ef við hjálp­umst að þá munum við kom­ast í gegnum þetta saman.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár