Vilja að einkafyrirtæki geti nýtt sér fyrirhugað stafrænt pósthólf stjórnvalda

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra lagði nýlega fram frum­varp um staf­rænt póst­hólf stjórn­valda sem á að stuðla að skil­virk­ari þjón­ustu hins opin­bera og auka gagn­sæi og hag­kvæmni. Í umsögnum við frum­varpið er kallað eftir því að gild­is­svið lag­anna verði rýmkað.

Nauð­syn­legt er að víkka gild­is­svið nýs laga­frum­varps um staf­rænt póst­hólf stjórn­valda til þess að fyr­ir­tæki í einka­geir­anum geti einnig nýtt sér póst­hólfið að mati Creditinfo og Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja (SFF). Þetta kemur fram í umsögnum við frum­varpið sem þau hafa sent frá sér.

Frumvarp til laga um staf­rænt póst­hólf í mið­lægri þjón­ustu­gátt stjórn­valda var nýlega lagt fram af Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Markmið lag­anna er „að stuðla að skil­virkri opin­berri þjón­ustu, auka gagn­sæi við með­ferð mála og hag­kvæmni í stjórn­sýslu og tryggja örugga leið til að miðla gögnum til ein­stak­linga og lög­að­ila. Jafn­framt er það mark­mið lag­anna að meg­in­boð­leið stjórn­valda við ein­stak­linga og lög­að­ila verði staf­ræn og mið­læg á einum stað.“

Frum­varpið kveður á um að stjórn­völd skuli starf­rækja staf­rænt póst­hólf í mið­lægri þjón­ustu­gátt stjórn­valda. Þar hafi ein­stak­lingar og lög­að­ilar aðgang að eigin póst­hólfi með raf­rænni auð­kenn­ingu. Þar megi nálg­ast gögn, jafnt rituð sem í öðru formi, sem verða til við með­ferð máls hjá stjórn­völdum, svo sem til­kynn­ingar, ákvarð­anir, úrskurði, ákvaðir og aðrar yfir­lýs­ingar.

Fyrirtækjum skylt samkvæmt lögum að senda tilkynningar

Í umsögn Creditinfo kemur fram að lög og reglur skylda einka­að­ila á mörgum sviðum til að senda ein­stak­lingum og lög­að­ilum til­kynn­ingar á skráð lög­heim­ili. Creditinfo sé eitt slíkra fyr­ir­tækja en því er skylt að senda ein­stak­lingum og lög­að­ilum til­kynn­ingar um fyr­ir­hug­aðar skrán­ingar á van­skila­skrá.

Þar er einnig vakin athygli á því að fleiri munu geta nýtt sér póst­hólfið þegar fram í sækir. Til dæmis lög­menn í tengslum við mál sem falla undir rétt­ar­fars­lög sem og aðrir einka­að­ilar sem birta ýmsar til­kynn­ingar sem byggj­ast á lögum eða stjórn­valds­fyr­ir­mælum. Í frum­varp­inu er gert ráð fyrir að það verði í höndum ráð­herra að ákveða hverjum verði heim­ilt að birta gögn í staf­rænu póst­hólfi og hvaða skil­yrði hvaða skil­yrði við­kom­andi þurfa að upp­fylla.

Því telur Creditinfo það nauð­syn­legt að víkka gild­is­svið fyr­ir­hug­aðra laga. Í umsögn fyr­ir­tæk­is­ins segir „Creditinfo telur að ef Ísland á að mæta þeim áskor­unum og nýta þau tæki­færi sem fel­ast í sífellt örari tækni­breyt­ingum sé nauð­syn­legt að víkka gild­is­svið fyr­ir­hug­aðra laga þannig að þau nái í það minnsta jafn­framt til þeirra til­kynn­inga sem einka­að­ilum ber að senda sam­kvæmt lögum, reglum settum af hinu opin­bera eða stjórn­valds­fyr­ir­mælum. Telur félagið því nauð­syn­legt að kveðið verði á um það í lögum hvaða öðrum en opin­berum aðilum verði heim­ilt að birta gögn í staf­rænu póst­hólfi og hvaða skil­yrði þeir aðilar þurfa að upp­fylla.“

Með slíkri breyt­ingu yrðu mark­mið laga­setn­ing­ar­innar um aukið gagn­sæi, réttar­ör­yggi og hag­ræði tryggð frekar að mati Creditinfo.

Fjármálafyrirtæki og vátryggingafélög fái að nota pósthólfið

Umsögn SFF er í meg­in­dráttum sam­bæri­leg þeirri frá Creditinfo. Þar segir að fjár­mála­fyr­ir­tæki og vátrygg­inga­fé­lög gætu fallið í flokk þeirra einka­að­ila sem síðar munu fá heim­ild til að birta gögn í póst­hólf­inu. Enda beri þeim skylda til að birta við­skipta­vinum margs konar til­kynn­ingar og upp­lýs­ingar sam­kvæmt ýmsum sér­lögum.

Í umsögn SFF er gerð athuga­semd að ekki sé sér­stak­lega minnst á hug­takið „var­an­legur mið­ill“ í frum­varp­inu en sam­kvæmt lögum ber fjár­mála­fyr­ir­tækjum og vátrygg­inga­fé­lögum skylda til að birta við­skipta­vinum upp­lýs­ingar á pappír eða öðrum var­an­legum miðli.

„Frum­varpið kveður ekki sér­stak­lega á um að birt­ing í póst­hólf­inu upp­fylli kröfur um að vera birt­ing á var­an­legum miðli. Til þess að taka af allan vafa um það leggja SFF til að skerpt verði á ákvæðum frum­varps­ins hvað þetta varðar þannig að fjár­mála­fyr­ir­tæki og vátrygg­inga­fé­lög fái skýran val­kost að nota póst­hólfið sem eina leið af fleirum til að birta við­skipta­vinum upp­lýs­ingar á var­an­legum miðli,“ segir í umsögn SFF.

Sparnaður upp á 300 til 700 milljónir á ári

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir frum­varpið muni hafa áhrif á almenn­ing allan verði það sam­þykkti. Það muni tryggja betra aðgengi að gögnum frá rík­is­stofn­unum auk þess sem hægt verði að nálg­ast gögn á fleiri vegu en nú. Biðtími muni stytt­ast auk þess sem öryggi send­inga muni aukast til muna.

Þá munu þessar breyt­ingar leiða til sparn­aðar til rík­is­sjóðs til langs tíma. Til að mynda sé kostn­aður við póst­burð­ar­gjöld rík­is­ins um 439 millj­ónir króna á ári. Auk kostn­aðar við póst­send­ingar muni kostn­aður við umsýslu starfs­manna, prentun og fleira spar­ast. „Má því ætla að breytt fyr­ir­komu­lag við birt­ingar hafi í för með sér hag­ræð­ingu fyrir rík­is­sjóð á bil­inu 300–700 millj. kr. á ári,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Þá er í grein­ar­gerð einnig sagt að frum­varpið muni hafa jákvæð áhrif á umferð, kolefn­islosun og tíma­notkun almenn­ings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár