Borgun: Beittum sambærilegum aðferðum og tíðkast á EES-svæðinu

Borgun hafnar því að hafa stór­aukið umsvif sín erlendis með við­skiptum við aðila sem önnur fyr­ir­tæki hafa forð­ast.

Borgun telur sig hafa farið að lögum og fram­kvæmt áreið­an­leikakann­anir á við­skipta­vinum sam­kvæmt „verk­lags­hefð á Evrópska efna­hags­svæð­inu þegar sam­bæri­leg við­skipti eru ann­ars vegar,“ að því er segir í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu. Þá er því alfarið hafnað að stór­aukin umsvif Borgunar utan­lands teng­ist vafasömum við­skiptum sem önnur korta­fyr­ir­tæki vilja ekki sinna.

Eins og greint hefur verið frá, þá hefur FME vísað málum til hér­aðs­sak­sókn­ara þar sem nú fer fram grein­ing­ar­vinna og rann­sókn á því, hvort ástæða sé til frek­ari aðgerða, þar með talið útgáfa ákæru. Íslands­banki, stærsti eig­andi Borgunar, hefur form­lega kraf­ist skýr­inga á mál­inu af hálfu Borgun.

[adspot]

Í til­kynn­ing­unni frá Borgun segir: „Borgun telur sig hafa fram­kvæmt áreið­an­leika­kannir á við­skipta­vinum sam­kvæmt verk­lags­hefð á Evrópska efna­hags­svæð­inu þegar sam­bæri­leg við­skipti eru ann­ars vegar. FME hefur hins vegar gert athuga­semdir við hvernig gagna hefur verið aflað og hvernig áreið­an­leiki þeirra hefur verið tryggður. Borgun tekur athuga­semdum FME alvar­lega eins og fram kom í yfir­lýs­ingu Borgunar sl. föstu­dag. Fyr­ir­tækið mun tryggja í sam­starfi við FME að starf­semin full­nægi ítr­ustu skil­yrðum laga m.t.t. könn­unar á áreið­an­leika við­skipta­manna og skyldum þáttum. Unnið er að inn­leið­ingu þeirra ráð­staf­ana, sem Borgun þarf að grípa til, og stefnt er að því að allri vinnu af hálfu Borgunar til að upp­fylla kröfur FME um úrbætur verði lokið innan tveggja mán­aða. Rangt er að Borgun hafi ekki fram­fylgt fyr­ir­mælum FME. Borgun hefur þegar sagt upp öllum við­skiptum sem FME gerði kröfu um að yrði sagt upp.

Ranglega hefur verið full­yrt að stór­aukin um­svif Borgunar utan­lands teng­ist vafasömum við­skiptum sem önnur korta­fyr­ir­tæki vilji ekki sinna.

Borgun hefur starfað á alþjóð­legum greiðslu­miðl­un­ar­mark­aði frá því um árið 2000. Við­skiptin hafa vaxið jafnt og þétt á síð­ustu árum. Fyr­ir utan hefð­bundna smá­sölu­verslun þá vegur eng­inn ein­stak­ur við­skipta­flokk­ur meira en um það bil 2% af heild­ar­við­skipt­um Borg­un­ar. Áhætt­an af við­skipta­flokk­um er mis­mik­il og af mis­mun­andi ástæðum, svo sem end­ur­kröfu­á­hætta, orð­spors­á­hætta og upp­gjörs­á­hætta. Borgun upp­fyllir öll skil­yrði alþjóð­legu korta­fé­lag­anna í starf­semi sinni.

Á und­an­förn­um árum hef­ur Borg­un lagt megin áherslu utan Íslands á al­menna smá­sölu­versl­un í Ung­verja­landi, Tékk­landi og Bret­landi, auk sér­hæfðrar greiðslu­miðlun­ar svo sem sjálf­sala og fleira. Borg­un þjón­ar nú þús­undum við­skipta­vina á þess­um svæðum og u.þ.b. 25 þús­und sjálf­sö­lum í Evrópu,“ segir í til­kynn­ingu Borgunar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár