Mynd: Bára Huld Beck

Árið 2019: Ráðherra vill styðja flesta einkarekna fjölmiðla en nokkrir Sjálfstæðismenn á móti

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra lagði loks fram frum­varp um stuðn­ings­kerfi við einka­rekna fjöl­miðla snemma árs, en aðgerð­irnar hafa verið í und­ir­bún­ingi frá lokum árs 2016. Málið er erfitt innan rík­is­stjórn­ar­flokk­anna og illa gekk að mæla fyrir því.

Lilja D. Alfreðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­­ar­­mála­ráð­herra, kynnti þann 31. jan­úar drög að frum­varpi um breyt­ingar á fjöl­miðla­lög­­um.

Meg­in­efni frum­varps­ins sner­ist um að veita stjórn­­völdum heim­ild til að styðja við rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla í formi end­­ur­greiðslu á allt að 25 pró­­sent af til­­­teknum hluta ­rit­­stjórn­­­ar­­kostn­að einka­rek­inna fjöl­miðla. Skil­yrði fyrir styrknum áttu að vera að við­tak­endur upp­­­fylltu ýmis skil­yrði fjöl­miðla­laga, efni þeirra væri fjöl­breytt og fyrir allan almenn­ing og bygg­ðist á frétt­um, frétta­tengdu efni og sam­­fé­lags­um­ræðu í víðum skiln­ing­i.

Lagt var til að lögin tækju gildi 1. jan­úar 2020 og end­­ur­greiðslur myndu mið­ast við rekstr­ar­árið 2019.

Gert var ráð fyrir end­­ur­greiðslu­hæfur kostn­aður yrði bund­inn við beinan launa­­kostnað blaða- og frétta­­manna, rit­­stjóra og aðstoð­­ar­­rit­­stjóra, mynda­­töku­­manna, ljós­­mynd­­ara og próf­­arka­­les­­ara auk verk­taka­greiðslna fyrir sömu störf, í frum­varps­drög­un­­um.

Hlut­fall end­­ur­greiðslu yrði að hámarki 25 pró­­sent af kostn­aði við fram­an­­greint, þó ekki hærri en 50 millj­­ón­ir til hvers umsækj­anda vegna síð­­ast­lið­ins árs. Jafn­­framt kom fram í frum­varps­drög­unum að heim­ild væri til að veita stað­bundnum fjöl­miðlum við­­bótar end­­ur­greiðslu.

Í frum­varps­drög­unum var lagt til að fram­lag rík­is­ins yrði um 350 millj­ónir króna vegna þessa.

Miklar breytingar á skömmum tíma

Ástæða þess að ráð­ist var í þessa veg­ferð var sú að rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla hefur kúvenst vegna tækni- og upp­­lýs­inga­­bylt­ing­­ar­innar sem hefur ger­breytt neyt­enda­hegðun og gengið nán­­ast frá hefð­bundnum tekju­­mó­d­elum fjöl­miðla. Fyrir vikið vilja færri greið fyrir fréttir og frétta­vinnslu og hefur gert það að verkum að nýjar teg­undir miðla, sér­­­stak­­­lega sam­­­fé­lags­mið­l­­­ar, eru farnir að taka til sín sífellt stærri sneið af tekjum sem áður runnu til íslenskra miðla.

Í skýrslu nefndar um rekstr­­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla hér á landi, sem skipuð var í lok árs 2016 kom fram að rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla sé svo erf­iður að það gefi stjórn­­völdum til­­efni til að stuðla að bættu rekstr­­ar­um­hverfi þeirra.

Björgvin Guðmundsson, sem var formaður nefndarinnar sem skoðaði rekstrarumhverfi fjölmiðla, afhendir ráðherra skýrslu nefndarinnar. Mynd: Mynd. Aðsend
Björgvin Guð­munds­son, sem var for­maður nefnd­ar­innar sem skoð­aði rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla, afhendir ráð­herra skýrslu nefnd­ar­innar. Mynd: Mynd. Aðsend

Það rekstr­ar­um­hverfi sem íslenskum einka­reknum fjöl­miðlum er sniðið er auk þess í and­stöðu við það sem tíðkast víð­ast hvar í Evr­ópu. Þannig eru beinir rík­is­styrkir til einka­rek­inna fjöl­miðla á öllum Norð­ur­lönd­un­um, í Frakk­landi, Lúx­em­borg, Lett­landi og Ítal­íu.

Á hinum Norð­ur­lönd­un­um, sem eru þau sam­fé­lög sem Ísland ber sig mest saman við, má rekja rekstr­ar­stuðn­ing hins opin­bera til einka­rek­inna fjöl­miðla aftur til árs­ins 1990. Í Nor­egi og Sví­þjóð hefur stuðn­ing­ur­inn verið auk­inn umtals­vert und­an­farin miss­eri. Dönsk stjórn­völd kynntu einnig aðgerðir til að bregð­ast við rekstr­ar­stöðu fjöl­miðla í fyrra, sem fólust meðal ann­ars í því að draga saman umfang DR, danska rík­is­sjón­varps­ins.

Und­ir­liggj­andi var að tryggja að gagn­rýnin umræða, aðhald, fjöl­breyttar skoð­anir og sjón­ar­mið, menn­ing­ar­leg fjöl­breytni, rann­sókn­ar­blaða­mennska séu grund­völlur hvers lýð­ræð­is­rík­is. Til þess að ná því mark­miði þurfa fjöl­miðlar að vera fjöl­breyttir og í eigu ólíkra aðila.

Gagn­rýnendur þess að ríkið styrki einka­rekna fjöl­miðla halda því fram að slíkir styrkir geti grafið undan sjálf­stæði fjöl­miðl­anna. Að þeir muni ekki bíta hend­ina sem fóðrar þá og þar af leið­andi muni þeir ekki sinna aðhalds­hlut­verki sínu nægi­lega vel.

Sagði stjórnarmeirihluta fyrir málinu

Frum­varpið var kynnt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í jan­úar og fjöl­margar athuga­semdir bár­ust við það, meðal ann­ars frá flest öllum fjöl­miðlum lands­ins. Margar voru jákvæðar en athygli vakti að tvö af stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tækjum lands­ins, Torg sem gefur út Frétta­blað­ið, og Árvakur sem gefur m.a. út Morg­un­blað­ið, gerðu miklar athuga­semdir við að stærri fjöl­miðlar fengu ekki meira og vildu að minni miðlar fengu ekk­ert.

Lilja sagði í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í mars síð­ast­liðnum að það væri stjórn­ar­meiri­hluti fyrir frum­varp­inu þrátt fyrir að það hefði verið gagn­rýnt úr ýmsum átt­um, meðal ann­ars af hluta þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks.[

Eftir sam­ráðs­ferlið voru gerðar breyt­ingar á frum­varp­inu og meðal ann­ars bætt við stuðn­ingi sem næmi allt að 5,15 pró­sent af launum starfs­fólks á rit­stjórn sem fellur undir lægra skatt­þrep tekju­skatts­stofna. Kostn­aður við það er met­inn um 170 millj­ón­ir, en við end­ur­greiðsl­urnar áfram um 350 millj­ón­ir, sam­tals um 520 millj­ónir á árs­grund­velli.

Langstærstur hlut­inn af heild­ar­upp­hæð­inni myndi renna til stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tækja lands­ins, Sýn­ar, sem skráð er á mark­að, Árvak­urs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, og síðan Torgs ehf., sem gefur út Frétta­blað­ið og ýmsa aðra miðla.

Nú útgáfa af fjöl­miðla­frum­varp­inu var kynnt á rík­is­stjórn­ar­fund­i í byrjun maí. Frum­varp­inu var dreift á Alþingi þann 20 maí en það komst þó ekki til umræðu á Alþingi áður en þingið fór í sum­ar­leyf­i. Meg­in­á­stæða þess var mikil and­staða hluta þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem vildu miklar breyt­ingar á því þrátt fyrir að ráð­herrar flokks­ins hefðu þegar afgreitt málið út af borði rík­is­stjórn­ar­innar.

Málið frestast vegna ósættis

Í haust stóð til að mæla fyrir mál­inu í sept­em­ber en því var sífellt frestað vegna óróa um málið milli stjórn­ar­flokk­anna. Í lok nóv­em­ber spurð­ist út að óiá­nægju­öflin í Sjálf­stæð­is­flokknum hefðu fengið það í gegn að end­ur­greiðslu­hlut­fallið yrði lækkað í 20 pró­sent en í byrjun des­em­ber kom í ljós, þegar breytt frum­varp var lagt fram, að það hefði verið lækkað enn meira. End­ur­greiðslan sam­kvæmt því verður 18 pró­sent og hinn sér­staki við­bót­ar­stuðn­ingur, sem nemur allt að fjórum pró­sentum af þeim hluta af launum launa­manna fjöl­mið­ils sem falla undir lægra skatt­þrep tekju­skatts­stofns, lækkar úr 5,15 pró­sentum í upp­haf­legu frum­varpi Lilju í fjögur pró­sent. Kostn­að­ur­inn við frum­varpið var tak­mark­aður við þær 400 millj­ónir króna sem þegar hefur verið tryggðar til mála­flokks­ins á fjár­lögum, sem sam­þykkt voru í des­em­ber 2019.

Lilja náði loks að mæla fyrir frum­varp­inu, eftir mikil átök bak við tjöldin, 16. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Á sama tíma lögðu fjórir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fram eigið frum­varp um hvernig stuðn­ingur við einka­rekna fjöl­miðla ætti að vera. Samkvæmt því yrði hann allur í gegnum afnám trygg­ing­ar­gjalds á fjöl­miðla. Engin kostn­að­ar­grein­ing fylgir frum­varp­inu en við­mæl­endur Kjarnans telja að það myndi kosta umtals­vert meira en frum­varp Lilju og að þeir pen­ingar myndu að nán­ast öllu leyti enda hjá þremur stærstu fjöl­miðla­sam­steypum lands­ins: Torgi, Árvakri og Sýn.

Frumvarp Lilju er nú til með­ferðar hjá alls­herjar- og mennta­mála­nefnd sem hefur kallað eftir umsögnum fyrir 10. jan­úar næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2019

Mest lesið undanfarið ár