Ómöguleg staða að pólitískt kjörinn ráðherra veiti sérstakar fjárheimildir til rannsókna

Það er ómögu­legar aðstæður fyrir bæði ákæru­valdið og stjórn­mála­menn að vera í að vera að bregð­ast við með sér­stökum fjár­heim­ildum þegar ráð­ast þarf í stórar rann­sóknir. Pen­ing­arnir þurfa ein­fald­lega að vera til staðar.

Helgi Magnús Gunn­ars­son vara­rík­is­sak­sókn­ari segir það vera lyk­il­at­riði að ákæru­valdið sé sjálf­stætt. „Með sjálf­stæði á ég við að það séu engin utan­að­kom­andi öfl, pen­inga­öfl eða póli­tísk sem hafi áhrif á afgreiðslur saka­mála. Það er mjög mik­il­vægt. Stærsti þátt­ur­inn í sjálf­stæði ákæru­valds­ins er að það hafi pen­inga til að sinna þeim verk­efnum sem ákæru­valdið á að sinna. Besta leiðin til að skerða sjálf­stæði ákæru­valds­ins og skerða getu þess til að rann­saka og sak­sækja mál er að passa upp á að það hafi ekki næga pen­inga. Það er ósköp ein­falt.“

Þetta er meðal þess sem kom fram í ítar­legu við­tali Kjarnans við Helga Magnús sem birt var á annan í jólum. 

Gefið í og dregið úr

Hrun­málin, þ.e. saka­málin sem urðu vegna banka­hruns­ins, voru sótt af miklum krafti og mörg þeirra skil­uðu þungum dómum yfir þeim sem sátu á saka­manna­bekk í þeim. Í miðri á, þ.e. árið 2013, var hins vegar ráð­ist í mik­inn nið­ur­skurð á fram­lögum til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara, sem gerði það meðal ann­ars að verkum að emb­ættið gat ekki klárað rann­sókn á mörgum málum tengdum hrun­inu.

[links]Nýlega, þegar Sam­herj­a­málið svo­kall­aða kom upp á yfir­borðið, varð svo harð­vítug póli­tísk umræða um hvers konar fjár­heim­ildir emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara, sem sinnir nú efna­hags­brota­rann­sóknum, þyrfti til að geta tek­ist á við það. Í minn­is­blaði sem Ólafur Þór Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari sendi til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í nóv­em­ber kom fram að um hund­rað mál biði rann­sóknar hjá emb­ætt­inu og að núver­andi starfs­manna­fjöldi dygði ekki til að sinna öllum þeim rann­sókn­ar­verk­efnum sem það þarf að takast á við að óbreyttu, hvað þá við­bót­ar­málum af stærra umfangi. Meiri fjár­muni þyrfti til.

Ómöguleg staða bæði fyrir ákæruvaldið og stjórnmálamenn

Helgi Magnús segir þetta ein­fald­lega ómögu­lega stöðu að vera í að póli­tísk kjör­inn ráð­herra sé að veita sér­stak­lega fjár­heim­ildir til rann­sókna eða sak­sókna á til­teknum málum. „Í okkar smáa og fámenna kerfi koma reglu­lega upp stór mál sem setja alla verk­efna­stöðu á hlið­ina. Ef slík mál eiga að fá full­nægj­andi fram­gang innan eðli­legs tíma þarf oft tíma­bundið að fjölga starfs­mönnum og kosta meiru til einnig vegna ann­arra mála sem ann­ars geta lent á bið. Til þess þarf að tryggja pen­inga og fjár­veit­inga­valdið er hjá Alþingi en oft­ast með milli­göngu ráð­herra sem gera til­lögur um fjár­út­látin. Slíkar ákvarð­anir um fjár­út­lát í ein­stökum málum eru óheppi­legar. Í fyrsta lagi býður þetta upp á það að, ef við værum með þannig stjórn­mála­menn að þeir vilji hafa áhrif á nið­ur­stöðu stórra efna­hags­brota­mála gegn fjár­sterkum aðilum sem gætu verið tengdir þeim á ein­hvern hátt, að þeir vilji nú kannski ekk­ert að þetta eða hitt málið fái fram­gang. Þetta býður líka heim þeirri hættu að stjórn­mála­menn eru settir í þá aðstöðu að trú­verð­ug­leiki þeirra er alltaf undir.“

[adspot]Hann segir að hæfi geti virkað á ýmsa vegu. „Hæfi getur bæði virkað þannig að ef þú ert van­hæfur, vegna tengsla við ein­hvern aðila máls, þá getur þú mis­notað aðstöðu þína þeim í hag sem er þér tengdur, en þú getur líka lent í því að til að sanna að þú sért ekki að mis­nota aðstæður þínar þá geng­urðu lengra en til­efni er til og brýtur á þeim hinum sama. Hæfi snýst því ekki endi­lega um raun­veru­lega mis­notkun á stöðu ein­hverjum til góðs eða ills heldur að það sé hægt að treysta því að slíkt ger­ist ekki. Þetta er ómögu­legar aðstæður fyrir bæði ákæru­valdið og stjórn­mála­menn að vera í.“

Helgi Magnús seg­ist hafa rætt þessi mál við rík­is­sak­sókn­ara á hinum Norð­ur­lönd­unum á fundi þeirra fyrir nokkrum árum þar sem sjálf­stæði ákæru­valds­ins var til umfjöll­unar og hvort fram­gangur ein­stakra stórra mála ráð­ist af sér­stökum fjár­heim­ildum sem veittar eru utan hins venju­lega ramma fjár­laga. Í máli þeirra hafi komið fram að þar væri ætið svig­rúm innan ákæru­valds­ins til að færa til fé þegar það þarf á því að halda þegar ein­hver stór­mál koma upp.

Hægt er að lesa við­talið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2019

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár