Biðst afsökunar á að tilkynning um 30 prósent leiguhækkun hafi ekki verið nærgætnari

Stjórn­ar­for­maður Ölmu leigu­fé­lags segir að 30 pró­sent hækkun á leigu leigu­taka félags­ins hafi verið „full­kom­lega eðli­leg aðlögun að gjör­breyttu mark­aðs­verði í mið­borg­inni.“ Það hefði þó mátt til­kynna hana með nær­gætn­ari hætti.

Gunnar Þór Gíslason, stjórn­ar­for­maður Ölmu leigu­fé­lags og einn helsti eig­andi þess, segir að 30 pró­sent hækkun á leigu til leigu­taka félags­ins sem rataði nýverið í fréttir hafi verið full­kom­lega eðli­leg aðlögun að gjör­breyttu mark­aðs­verði í mið­borg­inni. Eftir nán­ari skoðun skuli það þó „ fús­lega við­ur­kennt að standa hefði mátt með nær­gætn­ari hætti að til­kynn­ing­unni um nýtt leigu­verð þegar hækkun var jafn mikil og raun bar vitni. Á því er beðist afsök­unar.“

Þetta kemur fram í grein sem Gunnar skrifar í Frétta­blaðið í dag.

[links]Fyrir rúmri viku greindi Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, frá því á Facebook-­síðu sinni að hann hefði fengið tölvu­póst frá leigu­taka á almennum leigu­mark­aði. Póst­ur­inn var frá konu sem heit­ir Brynja Bjarna­dótt­ir, er 65 ára ein­stæð kona og sjúk­lingur sem leigir hjá Ölmu íbúða­fé­lagi. „Alma býður henni nýj­an 12 mán­aða leig­u­­samn­ing sem mun taka gildi frá byrj­­un fe­brú­ar á næsta ári með hækk­­un upp á 75.247 kr. á mán­uði miðað við vísi­­tölu í nóv­­em­ber, sem var 555,6 en er kom­in 560,9. Það þýðir að hækk­­un­in sem henni stend­ur til boða verður 78.347 kr. á mán­uði frá og með fe­brú­ar næst­kom­andi en fer að öll­um lík­­ind­um hækk­­andi fram að þeim tíma.“ Leiga Brynju myndi sam­kvæmt þessu hækka upp í 328 þús­und krónur á mán­uði.

Þessi skila­boð vöktu hörð við­brögð víða. Rætt var um þau á þingi þar sem Ást­hildur Lóa Þórs­dótt­ir, þing­maður Flokks fólks­ins, fór fram á að sett yrðu neyð­ar­lög til að verja heim­ili lands­ins fyrir hækk­unum eins og þess­um. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, tók undir gagn­rýn­ina og sagði hækk­un­ina „ófor­svar­an­lega“. Ekki væri hægt að þola hvaða fram­komu sem er gagn­vart leigj­end­um.

Hafa endurskoðað verkferla

Gunnar segir í grein sinni í dag að sumir hafi talað um þessa hækkun í fleir­tölu og gefið þannig í skyn að Alma hafi hækkað húsa­leigu til allra við­skipta­vina sinna um 30 pró­sent. „Það er alrangt. Þær hækk­anir sem hluta af leigj­endum okkar var til­kynnt um að kæmu til fram­kvæmda í upp­hafi næsta árs voru að með­al­tali innan við tíu pró­sent. Þetta til­tekna til­felli kom upp vegna þess að verið var að upp­reikna og end­ur­nýja samn­ing sem upp­haf­lega var stofnað til þegar leigu­verð í mið­bænum var lágt í miðjum kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Sá veru­leiki er allt annar í dag.“

[adspot]Hann upp­lýsir í grein­inni að Alma hafi þegar brugð­ist við vegna þeirra mis­taka sem urðu við til­kynn­ingu á hækkun á leigu Brynju og þeirrar umræðu sem skap­að­ist í kjöl­farið. „Við höfum end­ur­skoðað verk­ferla okkar þannig að við munum héðan í frá setja hækk­unum leigu­verðs við end­ur­nýjun samn­inga ákveðin mörk, bæta upp­lýs­inga­gjöf okkar og sam­skipti við við­skipta­vini og auka sveigj­an­leika þeirra leigu­taka okkar sem vilja leita á önnur mið.“

Gunnar segir að á leigu­mark­aði gildi sömu lög­mál og við fast­eigna­kaup. „Leigu­verð hlýtur alltaf að fylgja kostn­aði og mark­aði. Rétt eins og kaup­verð íbúða. Þegar grannt er skoðað er annað óhugs­andi. Og hefur ekk­ert með græðgi að gera heldur eðli­lega fram­legð af því fjár­magni sem bundið er í rekstr­inum.“

Hvatt til sniðgöngu á vörum framleiddum af eigandanum

Eig­andi Ölmu er fjár­fest­inga­fé­lagið Langisjór. Það er stór­tækt í mat­væla­fram­leiðslu og á meðal ann­ars Mata hf., Mat­fugl ehf. Sal­at­húsið ehf. og Síld og fisk ehf. Langisjór hagn­að­ist alls um 13,7 millj­arða króna í fyrra og eigið fé þess var 23 millj­arðar króna. Félagið er að í eigu fjög­urra systk­ina: Egg­erts, Guð­nýjar Eddu, Gunn­ars Þórs og Hall­dórs Páls Gísla­sona og fjöl­skyldna þeirra. Á sam­fé­lags­miðlum síð­ustu daga hafa margir hvatt til þess að allar vörur sem fyr­ir­tæki í eigu Langa­sjávar selja verði snið­gengn­ar. Á meðal þeirra er Gunnar Smári Egils­son, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands. Færslu hans hefur verið deilt yfir 1.700 sinn­um.

Alma hagn­að­ist um 12,4 millj­arðar króna í fyrra. Ofan á það nam hagn­aður félags­ins á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2022 4,7 millj­örðum króna. Sam­an­lagt hagn­að­ist félagið því um 17,1 millj­arð króna á 18 mán­uð­um, eða um 950 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði. Hagn­að­ur­inn er að mestu til­kom­inn vegna mats­breyt­inga á eignum og hækkun á virði hluta­bréfa sem Alma á í. Þar er um að ræða hluti í fast­eigna­fé­lög­unum Eik, Reitum og Reg­inn sem öll eru skráð á mark­að. Þeir hlutir eru í gegnum dótt­ur­fé­lagið Brim­garða, sem er stærsti ein­staki eig­andi Eikar með 16,5 pró­sent hlut, stærsti einka­fjár­festir­inn í Reitum með 5,6 pró­sent hlut og í Reg­inn með 3,9 pró­sent hlut.

Þessi þrjú fast­eigna­fé­lög eru langstærstu slíku félögin á Íslandi. Sam­eig­in­legt heild­ar­mark­aðsvirði þeirra er um 159 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár