Jón Óttar taldi stjórnvöld í Namibíu ekki hafa burði til að hafa uppi á leynireikningum

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu lýsir sex­menn­ingum sem eru grun­aðir um að hafa þegið mútur frá Samherja, og fimm Íslend­ingum undir for­ystu Þor­steins Más Bald­vins­sonar, sem skipu­lögðum glæpa­hóp. Rann­sak­andi Samherja átti í sam­skiptum við einn mann­anna í maí 2019.

Jón Óttar Ólafsson hefur starfað fyrir Samherja um margra ára skeið.
Jón Óttar Ólafsson hefur starfað fyrir Samherja um margra ára skeið.

Jón Óttar Ólafsson, ráð­gjafi og fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður sem starfað hefur fyrir Samherja árum saman, átti í tölvu­póst­sam­skiptum við einn þeirra sex manna, James Hatuikulipi, sem sitja í fang­elsi í Namibíu vegna gruns um að þiggja mútur frá Samherja, í maí árið 2019.

Til­gangur sam­skipt­anna var að lýsa yfir áhyggjum um að yfir­völd myndu upp­götva leyni­greiðslur sem Samherji greiddi inn á banka­reikn­ing félags­ins Tunda­vala, skráð í eigu Hatuikulipi, í Dúbaí. Nokkur hund­ruð millj­ónir króna runnu inn á reikn­inga þess frá Samherja á árunum 2014 til 2019. Í sam­skipt­unum reyndi Jón Óttar að slá á áhyggjur um að yfir­völd í Namibíu gætu haft upp á þeim greiðslum sem farið höfðu inn á leyni­reikn­inga í Dúbaí. „Við höfum lokað þeim reikn­ingum. Auk þess hafa þeir ekki burði til þess að fara á eftir flóknum aflands­við­skiptum,“ sagði í einum tölvu­póst­inum.

Frá þessu var fyrst greint í kvöld­fréttum RÚV í dag. Sú umfjöllun er unnin upp úr grein­ar­gerð rík­is­sak­sókn­ara Namibíu, þar sem kraf­ist er að eignir Samherja sem metnar eru á nokkra millj­arða króna, verði kyrr­settar. Í grein­ar­gerð­inni, sem Kjarninn fékk einnig aðgang að síð­degis í dag, er sex­menn­ing­unum og fimm Íslend­ingum, undir for­ystu Þor­steins Más Bald­vins­sonar for­stjóra Samherja, lýst sem skipu­lögðum glæpa­hóp.

Vildi draga athygli frá leynireikningum í Dúbaí

Í grein­ar­gerð­inni segir að James Hatuikulipi, sem er frændi tengda­sonar fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður rík­is­út­gerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Fischor, hafi sent Samherja beiðni 28. maí 2019 þar sem hann vildi að útbúin yrðu gögn sem myndu láta út fyrir að sá hluti kvóta­leigu sem greiddur var til félags í Dúbaí hefði verið greiddur með fiski sem var sendur til Angóla. Þannig mætti draga athygli rann­sak­enda frá fjár­mun­unum sem greiddir voru inn á leyni­reikn­inga í Dúbaí.

[adspot]Jón Óttar Ólafsson svar­aði tölvu­póst­inum sama dag og sagði: „Er ein­hver hætta á því að upp­hæð­irnar sem greiddar voru „úti” upp­götv­ist? Þeir vilja ekki búa til neina papp­íra sem fjalla um fisk­flutn­inga en að síðan komi slóð pen­ing­anna í ljós.“

Skömmu síðar skrif­aði hann í öðrum tölvu­pósti: „Ég held að þeir muni ekki hafa uppi á þeim greiðslum sem greiddar voru úr landi. Við höfum lokað þeim reikn­ingum. Auk þess hafa þeir ekki burði til þess að fara á eftir flóknum aflands­við­skiptum.“

Þegar James Hatuikulipi, eig­andi Dúbaí-félags­ins, var hand­tek­inn í nóv­em­ber á síð­asta ári, eftir að Kveikur, Stundin, Wikileaks og Al-Jazeera höfðu afhjúpað meintar mútu­greiðslur, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti Samherja og ráða­manna í Namibíu, var lagt hald á far­síma hans. Ofan­greind tölvu­póst­sam­skipti fund­ust þegar sím­inn var rann­sak­aður.

Í yfir­lýs­ingu sem Samherji birti rétt fyrir klukkan sjö í kvöld á heima­síðu sinni, vegna fyr­ir­spurna RÚV um sam­skipti Jóns Óttars við James Hatuikulipi, segir m.a. : „Við höfum alfarið neitað því að félög tengd Samherja hafi greitt mútur eða aðrar óeðli­legar greiðslur. Hvort sem það er í tengslum við rekst­ur­inn í Namibíu eða ann­ars staðar. Við lítum svo á að greiðslur, í tengslum við rekst­ur­inn í Namibíu, séu lög­mætar frá sjón­ar­hóli félaga sem tengj­ast Samherja. Í tengslum við rann­sókn á starf­sem­inni í Namibíu, sem ráð­ist var í með full­tingi norsku lög­manns­stof­unnar Wikborg Rein, voru þús­undir tölvu­pósta yfir­farnir. Við ætlum ekki að fara í opin­bera rök­ræðu við Rík­is­út­varpið um einn þess­ara tölvu­pósta.“

Undir yfir­lýs­ing­una skrif­aði Björgólfur Jóhanns­son, ann­ars for­stjóri Samherja.

Samskipti um greiðslur eftir að Jóhannes hætti

Við­skipta­hættir Samherja voru opin­beraðir í umfjöllun í nóv­em­ber 2019. Þar kom fram að fyr­ir­tækið hefði náð undir sig mjög verð­mætum hrossa­makríl­kvóta í land­inu með meintum mútu­greiðslum til tveggja ráð­herra í land­inu og manna í þeirra nán­ast hring. Þetta hafi átt sér stað um ára­bil og síð­ustu greiðsl­urnar verið milli­færðar fyrr á árinu 2019. Þær námu 1,4 millj­arði króna hið minnsta, sam­kvæmt því sem kom fram í umfjöllun Kveiks um málið. Ráð­herr­arnir tveir, Bernhard Esau fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Sacky Shang­hala fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, hafa setið í gæslu­varð­haldi ásamt fimm öðrum mönnum frá því seint á síð­asta ári á meðan að namibísk yfir­völd rann­saka mál þeirra. Á meðal ann­arra sem sitja í gæslu­varð­haldi er áður­nefndur James Hatuikulipi og frændi hans Tamson Hatuikulipi, tengda­sonur Esau.

Samherji hefur ætið haldið því fram að Jóhannes Stef­áns­son, sem starf­aði hjá Sam­herja í Namibíu fram á mitt ár 2016 og upp­ljóstr­aði um við­skipta­hætti fyr­ir­tæk­is­ins þar, hafi verið einn að verki þegar kom að greiðslum þar í landi sem stæð­ust ekki skoð­un. Sú afstaða getur þó ekki skýrt greiðslur sem áttu sér stað eftir að Jóhannes lét af störfum hjá Samherja.

Í við­tali við norska við­skipta­blaðið Dagens Nær­ingsliv í lok síð­asta árs sagði Björgólfur að greiðslur til félags James Hatuikulipi í Dúbaí, sem áttu sér stað á árinu 2019, að ekk­ert benti til þess að þær greiðslur væru ólög­legar. Greiðsl­urnar hafi verið fyrir kvóta auk greiðslna fyrir ráð­gjaf­ar­störf.

Unnið fyrir Samherja árum saman

Jón Óttar hefur unnið fyrir Samherja árum saman. Í nýlegu skaða­bóta­máli sem fyr­ir­tækið höfð­aði gegn Seðla­banka Íslands gerði Samherji alls skaða­bóta­kröfu upp á 306 millj­ónir króna. Tæpur helm­ingur þeirrar upp­hæðar, alls 135 millj­ónir króna, var vegna kostn­aðar við störf Jóns Óttars fyrir fyr­ir­tækið. Skaða­bóta­kröf­unni var hafnað og Samherji tap­aði mál­inu í hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

[links]Kjarninn greindi frá því í ágúst að Jón Óttar hefði allt frá því að umfjöllun Kveiks og Stund­ar­innar um við­skipta­hætti Sam­herja í Namibíu birt­ist þann 12. nóv­em­ber á síð­asta ári verið tíður gestur á Kaffi­fé­lag­inu, kaffi­húsi í miðbæ Reykja­vík­ur, einatt til að hitta á og ná tali af Helga Seljan – en þar hitt­ist hópur fólks iðu­lega á morgn­ana til að spjalla um dag­inn og veg­inn.

Kjarninn greindi enn fremur frá því að Jón Óttar hefði ítrekað sent Helga skila­boð, bæði í gegnum SMS og Facebook-­reikn­ing eig­in­konu sinn­ar. Ingi Freyr Vil­hjálms­son, blaða­maður á Stund­inni sem fjallað hefur um Sam­herja, fékk einnig send skila­boð þar sem honum var hótað „um­fjöll­un“.

Þá hefur Jón Óttar komið fram í mynd­böndum sem Samherji hefur látið vinna, þar sem blaða­menn sem fjallað hafa um Samherja hafa verið bornir þungum sökum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár