Illugi vann fyrir Orku Energy í Singapúr - Sérþekking hans háskólapróf og MBA-nám

Þau störf sem Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, vann fyrir Orku Energy á árinu 2011 voru vegna verk­efnis í Singapúr. Aðspurður um hvaða sér­þekk­ingu hann hafði til að sinna þeim störfum sem hann sinnti svarar Illugi: „Próf í hag­fræði frá Háskóla Íslands og MBA frá London Business School“.

Heild­ar­greiðslur Illuga vegna starfa fyrir Orku Energy voru um 5,6 millj­ónir króna fyrir skatt. Líkt og fram hefur komið voru laun hans greidd fyr­ir­fram en síðan gefin út launa­seð­ill í febr­úar 2011. Hann var birtur á Twitter-síðu Þor­björns Þórð­ar­sonar, frétta­manns á Stöð 2, á föstu­dag.


Launa­seð­ill Illuga Gunn­ars­sonar frá Orku Energy gef­inn út í febr­úar 2012. Launa­upp­gjör vegna vinnu á árinu 2011. pic.twitter.com/vvM5hIh4xJ


— Þorbjörn Þórð­ar­son (@thorbjornth) October 9, 2015

Kjarninn spurði Illuga einnig hvort Haukur Harð­ar­son, stjórn­ar­for­maður Orku Energy, hefði verið með í veiði­ferð í Vatns­dalsá sem Illugi fór í í fyrra­sumar. Illugi svar­aði því til að hann veiti ekki fjöl­miðlum upp­lýs­ingar um ferðir ein­stak­linga eða um aðra per­sónu­hagi þeirra.

Segist engin lán hafa fengið


Illugi hefir legið undir ámæli vegna tengsla sinn við Hauk Harð­ar­son, stjórn­ar­for­mann fyr­ir­tæk­is­ins Orku Energy. Haukur réð Illugu sem ráð­gjafa fyr­ir­tækis síns á meðan að Illugi var í launa­lausu leyfi frá þing­störfum vegna rann­sóknar á pen­inga­mark­aðs­sjóði Glitnis, Sjóði 9, þar sem Illugi sat í stjórn fyrir banka­hrunið. Haukur keypti síðan íbúð Illuga af honum í fyrra­sumar og leigði honum hana síðan aftur. Illugi var þegar orð­inn ráð­herra þegar hann seldi íbúð­ina, en það gerði hann eftir að „nokkur fjár­hags­leg áföll“ höfðu dunið á honum.

Fjöl­miðar hafa ítrekað óskað frek­ari skýr­inga á ýmsum flötum máls­ins frá Illuga und­an­farna mán­uði, en án árang­urs. Hann tjáði sig loks um hluta máls­ins í við­tali við Frétta­blaðið á föstu­dag og við­ur­kenndi þá að það hefðu verið mis­tök að svara ekki fjöl­miðlum. Ekkert í mál­inu kalli hins vegar á afsögn hans sem ráð­herra eða þing­manns.

Síðar sama dag kom Illugi í við­tal í beinni útsend­ingu við frétta­stofu Stöðvar 2 til að útskýra meintar lán­veit­ingar Orku Energy til sín. Samkvæmt launa­seðl­inum var ekki um lán að ræða heldur fyr­ir­fram­greidd heild­ar­laun upp á 5,6 millj­ónir króna. Samtals nam fyr­ir­fram­greiðslan 2.950 þús­und krónum.

Í svörum sínum við fyr­ir­spurn Kjarnans ítrekar Illugi að hann hafi ekki fengið neitt lán frá Hauki.

Segir yfirlýsingar um spillingu fráleitar


Í Morg­un­blað­inu í morgun birt­ist aðsend grein eftir Illuga. Í grein­inni ítrekar ráð­herr­ann að hann telji ekk­ert í sam­skiptum sínum við Orku Energy gera hann fjár­hags­lega háðan fyr­ir­tæk­inu og að hann hafi ekki veitt fyr­ir­tæk­inu "aðstoð umfram það sem aðrir ráð­herrar og ráða­menn hafa gert á und­an­förnum árum. Yfir­lýs­ingar um spill­ingu eru því frá­leitar og munu að mínu mati dæma sig sjálfar þegar fram líða stundir."

Í grein­inni fjallar Illugi einnig um hvort stjórn­mála­maður eigi alltaf að svara spurn­ingum fjöl­miðla, t.d. um per­sónu­leg fjár­mál hans. Hann segir það langt í frá sjálf­gefið að svo sé. "Lyndon B. Johnson kall­aði reyndar slík trikk "make the bast­ards deny it" aðferð­ina, en sú aðferð byggir á því að á menn eru bornar ósann­aðar ávirð­ingar og þeim gert að svara þeim. Þannig er hægt að halda áfram og ef síðan stjórn­mála­mað­ur­inn neitar að svara þá er sú þögn gerð grun­sam­leg og túlkuð sem sönnun á sekt. Ýmsar spurn­ingar sem ég hef fengið frá fjöl­miðlum vegna þessa máls falla undir þessa aðferð­ar­fræði," segir Illugi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár