Illugi hættir á þingi

Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ætlar ekki að gefa kost á sér til áfram­hald­andi þing­setu. Þetta til­kynnti hann á Facebook-síðu sinni fyrir skömmu.

Illugi seg­ist ætla að hætta í stjórn­málum, að minnsta kosti í bili. „Ég mun kveðja stjórn­málin sáttur, en vissu­lega með nokkrum sökn­uði. Um leið hlakka ég til að takast á við ný verk­efni, hver sem þau kunna að verða.“

Hann segir ákvörð­un­ina tekna eftir vand­lega yfir­legu. „Mat mitt er að ég standi nú á þeim tíma­mótum að annað hvort haldi ég áfram í stjórn­málum og geri þau að ævi­starfi, fái ég til þess stuðn­ing kjós­enda, eða snúi mér að öðrum verk­efnum. Í ljósi þessa hef ég kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að um það bil 16 ára vera á sviði stjórn­mál­anna sé nægj­an­leg, a.m.k. að sinni og að skyn­sam­leg­ast og áhuga­verð­ast fyrir mig sé að leita nýrra áskor­anna á öðrum vett­vangi.“

Illugi var síð­asti sitj­andi þing­mað­ur­inn til að kynna áform sín um fram­haldið, eins kom fram í frétt Kjarnans í morgun. Fram­boðs­frestur í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum tveimur rennur út í dag klukkan 16.

Illugi hefur verið alþing­is­maður frá árinu 2007, utan þess þegar hann fór í leyfi frá þing­störfum árið 2010 þegar rann­sókn­ar­nefnd Alþingis hafði vísað málum pen­inga­mark­aðs­sjóða til athug­unar hjá sér­stökum sak­sókn­ara. Illugi sat í stjórn pen­inga­mark­aðs­sjóðs­ins Sjóður 9 fyrir hrun. Hann snéri aftur á þing haustið 2011 og varð svo mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra eftir kosn­ing­arnar 2013.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár