Vilja leggja niður gjöld, endurgreiða skatt og taka upp ríkisstyrki í innanlandsflugi

Starfs­hópur um gjald­töku í inn­an­lands­flugi vill að ríkið leggi niður far­þega- og lend­inga­gjöld í inn­an­lands­flugi og taki upp rík­is­styrk í stað­inn. Það myndi kosta ríkið 400 millj­ónir króna á ári.

Þá vill hóp­ur­inn end­ur­greiða flug­fé­lögum virð­is­auka­skatt. Með þessu væri hægt að lækka far­miða­verð um 10 til 15 pró­sent, eða að með­al­tali 1700 krónur á hvern legg í inn­an­lands­flugi, að sögn starfs­hóps­ins. Lagt er til við inn­an­rík­is­ráð­herra að þessar tvær leiðir verði farnar.

Skýrsla starfs­hóps­ins var kynnt Ólöfu Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra fyrir helgi og hún var birt í dag á heima­síðu ráðu­neyt­is­ins. Hópurinn átti að kanna gjald­umhverfi áætl­un­ar­flugs inn­an­lands, kanna opin­bera gjald­töku, bæði þjón­ustu­gjöld og skatta auk þess að kanna mögu­legar leiðir til að lækka far­miða­verð.

Í starfs­hópnum áttu sæti Val­gerður Gunn­ars­dóttir alþing­is­maður, Stein­grímur J. Sig­fús­son alþing­is­maður, Valdimar O. Her­manns­son fyrir hönd Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, Árni Gunn­ars­son fyrir Samtök atvinnu­lífs­ins, Viðar Helgason og Björney I. Björns­dóttir, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyti.


Í skýrsl­unni kemur þó fram að þessi lækkun á far­gjöldum myndi lík­lega ekki nægja ein og sér til þess að auka notkun á inn­an­lands­flugi.


Málið var rætt á Alþingi í morgun og þar kom fram í máli Ólafar Nordal að þessi lækkun væri engin heild­ar­lausn þar sem gjöld rík­is­ins væru svo lít­ill hluti kostn­aðar við flug. Skýrslan væri í skoðun í ráðu­neyt­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár