Topp 10 - Félagsskiptasögurnar sem fóðruðu fjölmiðlana

Félags­skipta­sögur í knatt­spyrnu­heim­inum eru hluti af umfangs­mik­illi fjöl­miðlaum­fjöllun ár hvert. Þær eru í hámarki á sumrin þegar knatt­spyrnu­fé­lög eru að stilla saman strengi sína og setja saman leik­manna­hópa. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur er mik­ill áhuga­maður um fót­bolta, og tók saman lista yfir sögur þar sem leik­menn ýmist fóru eða fóru ekki frá félögum sínum þegar allt koma til alls.

10. Alan Shearer


Til Manchester United 1991-1996

Senni­lega ein lengsta félaga­skipta­saga enskrar knatt­spyrnu. Shearer sló í gegn hjá Southampton og mörg lið höfðu áhuga, þar á meðal Manchester United sem tvisvar sinnum báru víurnar í hann. Það voru þó hinir nýríku Blackburn Rovers sem brugð­ust skjótt við og keyptu Shearer á met­upp­hæð, 3,3 millj­ónir punda árið 1992. Aftur reyndu United að kaupa hann fjórum árum síðar og allt virt­ist frá­gengið. En þá fund­aði Kevin Keegan, stjóri Newcastle United, með Shearer. Shearer sem upp­al­inn er í Newcastle var í kjöl­farið keyptur á 15 millj­ónir punda og varð þar með dýr­asti leik­maður heims. Hann vann ein­ungis einn titil á ferl­inum en er marka­hæsti leik­maður deild­ar­innar með tölu­verðum yfir­burðum, vann slatta af ein­stak­lings­verð­launum og er lif­andi goð­sögn í heimabæ sínum.

 



  1. Ronaldinho




Frá Paris St. Germain til Barcelona 2003

Joan Laporta vann kosn­ingar til for­seta Barcelona árið 2003 á því lof­orði að kaupa David Beckham frá Manchester United. Eftir nokkur mögur ár þurftu Barcelona nýja hetju til að lyfta þeim. Það var þó löngu ákveðið að Beckham færi til erki­fj­end­anna í Madrid. Sem stað­gengil ætl­uðu United að fá brasil­íska ungst­irnið Ron­ald­inho. Barcelona stigu þá fram og beittu Sandro Rosell, sem var nýkjör­inn í stjórn Barca og þekkti Ron­ald­inho í gegnum Nike. Ron­ald­inho var um það bil að fara að skrifa undir hjá United þegar Rosell hringdi. Ron­ald­inho vann allt sem hægt var að vinna í Barcelona og fékk meira að segja stand­andi lófa­klapp frá aðdá­endum Real Madrid eftir magn­aða frammi­stöðu. Það má í raun segja að mótun besta liðs allra tíma hafi byrjað með þessum skiptum.



  1. Cesc Fabregas




Frá Arsenal til Barcelona 2010-2011

End­ur­koma Cesc Fabregas til Barcelona er ein lang­dregn­asta félaga­skipta­saga seinni tíma. Stjórn­ar­menn, þjálf­arar og leik­menn Barcelona virt­ust skipt­ast á í að koma fram í fjöl­miðlum og tjá sig um hug­ar­á­stand Fabregas. Það var jú vitað að Fabregas þráði að kom­ast aftur á sínar æsku­slóðir, hann hafði tjáð Arsene Wenger þjálf­ara Arsenal það. En stans­lausar athuga­semdir og sam­skipti Barca-manna við Fabregas voru á gráu svæði laga­lega. Þrýst­ing­ur­inn var mestur á HM í Suður Afríku 2010 þegar Josep Guardi­ola þjálf­ari heim­sótti liðið í einum til­gangi. Hámark smekk­leysunnar átti sér svo stað undir lok móts­ins þegar Carles Puyol og Gerard Pique þving­uðu Fabregas í Barca-treyju. Rúmlega ári seinna gengu skiptin í gegn fyrir mun lægri upp­hæð en Arsenal vildu fá.



  1. Steven Gerrard




Frá Liverpool til Chelsea 2004-2005

Það er erfitt að hugsa sér Steven Gerrard hjá nokkru öðru liði en Liverpool, þar sem hann byrj­aði fer­il­inn átta ára gam­all. En sum­arið 2005 sendi hann aðdá­endur félags­ins í til­finn­inga­legan rús­sí­bana. Ári áður hafði hann hafnað því að ganga til liðs við Chelsea því að hann bar mikið traust til Rafa Benitez sem var þá nýráð­inn þjálf­ari Liverpool. Liverpool unnu meist­ara­deild­ina það ár í dramat­ískum úrslita­leik þar sem Gerrard hrein­lega dró liðið áfram. Eftir leik­inn sagði hann „Hvernig get ég farið eftir svona kvöld?“. En nokkrum vikum seinna bað hann stjórn Liverpool um félaga­skipti. Aðdá­endur brenndu treyjur merktar honum og mót­mæltu fyrir utan Anfield. Gerrard hélt sig inn­an­dyra og bruddi róandi töflur. Þann sama dag dró hann beiðn­ina til baka og skrif­aði loks undir nýjan samn­ing.



  1. Robinho




Frá Real Madrid til Manchester City 2008

Sumarið 2008 var allt í steik hjá Manchester City. Eig­and­inn Thaksin Shinawatra fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Tælands var orð­inn eft­ir­lýstur og eignir hans í land­inu frystar. Fjár­mögnun liðs­ins gekk illa og örvætn­ing tók við. En á loka­degi félaga­skipta­glugg­ans var til­kynnt að hópur manna frá Abu Dhabi, sem reynd­ist svo vera Sjeik Mansour, hefði keypt liðið. Nokkrum klukku­stundum síðar var til­kynnt að liðið hefði keypt brasil­ísku stjörn­una með barns­and­litið Robinho af Real Madrid á 32 millj­ónir punda. Allir voru gjör­sam­lega slegnir og þó að Robinho hafi ekki staðið sig neitt sér­stak­lega vel þá voru þessi kaup til­kynn­ing til heims­ins um áætl­anir nýju eig­end­anna.



  1. Ashley Cole




Frá Arsenal til Chelsea 2005-2006

Gremja Ashley Cole hjá Arsenal byrj­aði þegar samn­ings­til­boðið til hans var lækkað úr 60 í 55 þús­und pund á viku. Cole var svo svekktur að hann hafði sam­band við Pini Zahavi umboðs­mann og bað hann að svip­ast um fyrir sig. Úr varð að Cole ásamt umboðs­manni sínum og Zahavi hittu Jose Mourinho og Peter Kenyon frá Chelsea á leyni­fundi í London. Þetta komst upp og þeir fengu him­in­háar sektir fyrir. David Dein stjórn­ar­for­maður Arsenal vitn­aði gegn Cole og gremja hans jókst. Chelsea buðu í Cole en Arsenal heimt­uðu mun hærra verð en Chelsea voru til­búnir að borga. Það var þó ekki fyrr en á sein­asta degi félaga­skipta­glugg­ans 2006 að það náð­ist sam­komu­lag. Chelsea fengu Cole og Arsenal fengu 5 millj­ónir punda auk William Gallas, sem var álíka ósáttur hjá sínu félagi og Cole.

baggion
baggion

 



  1. Roberto Baggio




Frá Fior­ent­ina til Juventus 1990

Sam­bandið milli Juventus og Fior­ent­ina hafði verið slæmt allar götur síðan 1982 þegar Juventus hafði betur í tit­ilslagnum. Mark sem hefði tryggt Fior­ent­ina tit­il­inn var dæmt af þeim og bit­urð Flór­ens­búa mikil út af þessu. Hatrið minnk­aði ekki árið 1990 þegar Juventus keyptu stjörnu­fram­herj­ann af Fior­ent­ina örfáum dögum eftir að hinir fyrr­nefndu höfðu slegið þá síð­ar­nefndu út úr UEFA-bik­arnum á umdeildu marki. Ólæti brut­ust út á götum Flórens og um 50 manns slös­uð­ust. Baggio tók þetta mjög nærri sér og þegar liðin mætt­ust neit­aði hann að taka víta­spyrnu gegn sínu gamla félagi. Honum var umsvifa­laust skipt af leik­velli og alls kyns rusli rigndi yfir hann. Þar á meðal Fior­ent­ina tref­ill sem hann tók upp og kyssti. Hann sagð­ist hafa verið nauð­beygður til að ganga til liðs við Juventus.

 



  1. John Obi Mikel




Frá Lyn til Chelsea (via Manchester United) 2008

Hvernig Mikel komst til Chelsea er hálf lygi­leg saga. Manchester United töldu sig hafa keypt níger­íska ungst­irnið af Osló­ar­fé­lag­inu en papp­írar höfðu verið fals­aðir og umboðs­menn snið­gengnir. Chelsea vildu fá leik­mann­inn og töldu sig hafa átt þátt í að fá hann til Lyn frá Afríku. Dag einn hvarf Mikel og ásak­anir um mann­rán flugu frá bæði Manchester United og Lyn. Mikel hafði þá farið með umboðs­manni sínum John Shittu til London og sagð­ist hafa verið beittur þving­unum til að skrifa undir hjá Manchester United. Það var þver­tekið fyrir það og allt leit út fyrir að málið yrði tekið fyrir hjá dóm­stólum. Áður en til þess kom ákváðu Chelsea að greiða félög­unum sam­an­lagt 16 millj­ónir punda og Mikel hefur verið hjá Chelsea allar götur síðan.

 



  1. Alfredo Di Stefano




Frá Milli­on­arios til Barcelona og Real Madrid 1953

Argent­ínski fram­herj­inn heill­aði Spán­verja upp úr skónum í keppn­is­ferða­lagi með liði sínu Milli­on­arios árið 1952. Barcelona gekk illa að semja við kól­umbíska liðið þannig að þeir sömdu þess í stað við upp­eld­is­fé­lag leik­manns­ins, River Plate. Bæði Barcelona og River Plate héldu því fram að félaga­skipti Di Stefanos til Milli­on­arios árið 1949 hefðu verið ólög­leg. Di Stefano flutti til Barcelona og spil­aði meira að segja einn leik fyrir þá. En Real Madrid sömdu þá við Milli­on­arios í stað­inn. Spænska knatt­spyrnu­sam­bandið studdi kröfu Real en FIFA studdi kröfu Barcelona. Málið var því í algjörum hnút. En þá kom knatt­spyrnu­sam­bandið með mála­miðl­un­ar­á­kvörðun. Di Stefano myndi spila með klúbb­unum til skiptis ár frá ári! Þetta gátu Barcelona ekki sætt sig við og riftu samn­ingnum.



  1. Luis Figo




Frá Barcelona til Real Madrid 2000

Svik er ekki nógu sterkt orð til að lýsa þessum skiptum. Luis Figo hafði verið elsk­aður af stuðn­ings­mönnum Barcelona í fimm ár og hann hafði ekki sýnt neitt annað en holl­ustu til baka. Hann var á hápunkti fer­ils­ins og átti eftir að fá Gullknött­inn eft­ir­sótta seinna þetta ár. Þá kemur til sög­unnar Flor­entino Perez for­seta­fram­bjóð­andi hjá Real Madrid sem byggir alla sína kosn­inga­bar­áttu á því að ná Figo af erki­fj­end­unum. Barcelona voru ekki vilj­ugir að selja en það var klá­súla í samn­ingnum hans sem leysti hann fyrir 37 millj­ónir punda. Figo varð því fyrstur af hinum svoköll­uðu Galacticos sem Perez keypti til Real. Stuðn­ings­menn­irnir fyr­ir­gáfu honum þetta ekki. Í hvert skipti sem hann sneri aftur á Nou Camp rigndi sví­virð­ingum og skeytum yfir hann, þar á meðal afsög­uðu svíns­höfði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár