Ástand félagsheimilisins „skelfilegt í alla staði“

Punga þyrfti út 250 millj­ónum til að gera félags­heim­ilið Kirkju­hvol á Kirkju­bæj­ar­klaustri hættu­laust fyrir starf­semi. Svört skýrsla EFLU sýndi fram á raka­skemmdir og myglu. „Skýrslan sýnir að ástandið er í raun skelfi­legt í alla staði og með réttu mætti segja að hús­næðið væri það illa farið af við­halds­leysi og raka að það borgi sig ekki að gera við það.“

Undir bogaþaki
Undir boga­þaki Kirkju­hvoll var byggt árið 1960. Þar er í dag rekin upp­lýs­inga­mið­stöð ferða­manna. Mynd: Skaftárhreppur

Ástand félags­heim­il­is­ins Kirkju­hvols á Kirkju­bæj­ar­klaustri „er í raun skelfi­legt í alla staði“ að mati sveit­ar­stjórnar Skaft­ár­hrepps. Sveit­ar­fé­lagið fékk verk­fræði­stof­una EFLU til að gera raka­skimun og taka sýni í félags­heim­il­inu. Við ástands­skoð­un­ina kom í ljós að raka­skemmdir og rakaum­merki voru víða. Drög að kostn­að­ar­á­ætlun vegna við­gerða á hús­inu, til að gera það hættu­laust fyrir starf­semi, hljóða upp á 250 millj­ónir króna.

Skýrsla EFLU var lögð fram til kynn­ingar á síð­asta fundi sveit­ar­stjórnar Skaft­ár­hrepps. Auk þess að meta ástand Kirkju­hvols skoð­aði fyr­ir­tækið einnig hjúkr­unar- og dval­ar­heim­ilið Klaust­ur­hóla en var sú skoðun mjög tak­mörkuð. „Skýrsla EFLU sýnir að ástand Félags­heim­il­is­ins Kirkju­hvols er í raun skelfi­legt í alla staði og með réttu mætti segja að hús­næðið væri það illa farið af við­halds­leysi og raka að það borgar sig ekki að gera við það,“ segir í til­kynn­ingu á vef Skaft­ár­hrepps vegna máls­ins.

Í hús­inu er í dag rekin Skaft­ár­stofa, upp­lýs­inga­mið­stöð ferða­manna.

Raka­skemmdirEFLA rann­sak­aði ástand Kirkju­hvols með ýmsum aðferðum. Gerðar voru raka­mæl­ingar og tekin DNA-sýni sem sýndu fram á myglu.

Félags­heim­ilið Kirkju­hvoll var byggt árið 1960 og er um 540 fer­metrar að stærð. Á því er boga­þak og fyrir um ára­tug var það orðið mjög lekt og úrbætur því gerðar. Úttekt EFLU var gerð í júlí og sýndi hún fram á veru­legar raka­skemmdir og sveppa­gróður. Öll bygg­inga­sýni sem tekin voru reynd­ust mygluð. Reiknað er með að nýleg þak­klæðn­ing sé í lagi en að aðrar klæðn­ingar og ein­angrun verði að end­ur­nýja til að húsið telj­ist not­hæft.

Ástand kjall­ara húss­ins er slæmt og við skoðun flæddi vatn að utan í gegnum kjall­ar­ann og í gegnum veggi hans. Eins og ástandið er núna, segir í skýrslu EFLU, er kjall­ar­inn undir eld­húsi félags­heim­il­is­ins ónot­hæfur. DNA sýni voru tekin í mót­töku og í sal og sýndu þau fram á sveppa­gróður sem getur valdið óþæg­indum hjá fólki. Þá virð­ist regn­vatn kom­ast inn undir klæð­ingu utan á hús­inu og þak­k­antur er illa sprung­inn.

Raki við glugga og hurðir

Hvað hjúkr­un­ar­heim­ilið varðar kom í ljós að vatn flæðir þar reglu­lega í kjall­ara og þarf því að bæta við dren­lögnum. Þá kom raki í ljós á nokkrum stöðum á jarð­hæð við glugga og hurðir.

„Verst er ástandið í Félags­heim­ili Skaft­ár­hrepps,“ segir EFLA í skýrsl­unni eftir skoðun allra bygg­ing­anna.

Ráð­barður Sf., ráð­gjafar- og verk­fræði­þjón­usta, áætlar að kostn­aður við nauð­syn­legar við­gerðir yrði rúm­lega 250 millj­ónir króna.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár