Erlendar gistinætur orðnar fleiri en fyrir faraldur

Gistinætur erlendra ferða­manna á hót­elum í júní voru 12 pró­sent fleiri en í sama mán­uði árið 2019. Fjöldi far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl hefur ekki náð sömu hæðum en dval­ar­tími ferða­manna hefur lengst frá því fyrir kór­ónu­veiru­far­aldur.

Ferðamenn skoða sig um á Hellnum á Snæfellsnes
Ferða­menn skoða sig um á Hellnum á Snæ­fells­nes Mynd: Birgir Þór Harðarson

Gistinætur á hót­elum voru rúm­lega 496 þús­und í júní síð­ast­liðnum sam­an­borið við 190 þús­und í fyrra. Gistinætur erlendra ferða­manna á hót­elum nærri fjór­föld­uð­ust á milli ára og voru tæp­lega 405 þús­und sam­an­borið við tæp­lega 107 þús­und í fyrra. Hagstofa Íslands birti tölu­legar upp­lýs­ingar um fjölda gistin­átta í morgun á vef sínum.

Sé horft lengra aftur sést að fjöldi gistin­átta erlendra ferða­manna er nú orð­inn meiri en var fyrir kór­ónu­veiru­far­aldur. Í júní árið 2019 var skráður fjöldi erlendra gistin­átta tæp­lega 362 þús­und. Skráðar gistinætur erlendra ferða­manna voru því tæp­lega 12 pró­sent fleiri í júní síð­ast­liðnum heldur en í júní árið 2019.

Framboð og nýting aukist

Frá því í júní árið 2019 hefur fram­boð hót­el­her­bergja auk­ist, fjöld­inn farið úr 10.438 í 11.498. Til sam­an­burðar var fram­boðið 8.889 í júní í fyrra. Nýtingin í júní síð­ast­liðnum var einnig betri heldur en fyrir far­aldur, 78,8 pró­sent sam­an­borið við 72,1 pró­sent í júní árið 2019. Í júní í fyrra var nýt­ingin ekki nema 40 pró­sent.

Heild­ar­fjöldi gistin­átta á skráðum gisti­stöðum í júní var rúm­lega 1,1 milljón, sam­an­borið við 486 þús­und í sama mán­uði í fyrra. Til skráðra gisti­staða telj­ast meðal ann­ars hótel, gisti­heim­ili, íbúða­gist­ing á borð við íbúðir sem leigðar eru út í gegnum Airbnb, orlofs­hús og tjald­svæði.

Heild­ar­fjöldi gistin­átta erlendra ferða­manna á skráðum gisti­stöðum var rúm­lega 896 þús­und í júní sem er tæp­lega fjór­földun milli ára en heild­ar­fjöldi gistin­átta erlendra ferða­manna í júní í fyrra nam 243 þús­undum. Í júní árið 2019 var fjöldi erlendra gistin­átta á skráðum gisti­stöðum tæp­lega 794 þús­und. Fjöldi erlendra gistin­átta í heild var því tæp­lega 13 pró­sent meiri í júní í ár heldur en í júní árið 2019.

Dvölin lengri en fyrir faraldur

Þessar tölur eru í sam­ræmi við aðrar tölur sem geta gefið vís­bend­ingu um stöðu mála í ferða­þjón­ustu. Til að mynda hefur erlend korta­velta í júní aldrei verið eins mikil og í síð­asta mán­uði þegar hún nam 28,3 millj­örðum króna. Í Hagsjá Lands­bank­ans sem birt var um miðjan þennan mánuð kemur fram að í mán­uð­inum hafi rúm­lega 176 þús­und erlendir ferða­menn farið í gegnum Kefla­vík­ur­flug­völl í júní. „Það er um 90% af komum erlendra ferða­manna miðað við júní­mánuð 2019 en um 75% af því sem sást þegar mest lét árið 2018.“

Þessi aukn­ing í fjölda gistin­átta helst greini­lega ekki alveg í hendur við þróun í fjölda flug­far­þega. Skýr­ingin á því er að öllum lík­indum að finna í því að ferða­menn dvelja að jafn­aði lengur á land­inu í ár heldur en fyrir far­aldur, sam­kvæmt tölum Ferða­mála­stofu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár