Hvað á bíllinn að heita?

Flestir nýbak­aðir for­eldrar eyða tals­verðum tíma í að velja nafn á afkvæmið þótt þess séu dæmi að stjórn­samar ömmur hafi þrifið hvít­voð­ung­inn úr örmum for­eldr­anna við skírn­ar­font­inn þegar prest­ur­inn spyr um nafnið. Tilkynnt svo hátt og skýrt nafn barns­ins, sem kannski var ekki það sem for­eldr­arnir höfðu ákveðið. Stundum hafa orðið eft­ir­mál vegna slíkra atvika.

En það eru ekki ein­ungis börn sem fá nöfn. Bíla­fram­leið­endur gefa til dæmis bílum sínum nöfn, eða ein­kenna þá með tölu­stöfum, jafn­vel tölu- og bók­stöfum. Volkswagen er þannig ekki bara Volkswagen heldur getur hann líka verið Golf eða Passat svo dæmi sé tekið. Ef ein­hver skyldi láta sér til hugar koma að bíla­fram­leið­endur ákveði í skynd­ingu hvaða nafn skuli gefið bílnum er það alrangt. Bakvið nafnið á nýrri bíl­gerð (týpu) liggur mikil und­ir­bún­ings­vinna. Í við­tali í frönsku dag­blaði fyrir skömmu, við kynn­ing­ar­stjóra hjá stórum bíla­fram­leið­anda, kom fram að miklum tíma sé varið í að velja nafn þegar fyr­ir­tækið setur nýjan bíl á mark­að­inn. Mik­il­vægt er að nafnið sé sem alþjóð­leg­ast þannig að sem flestar þjóðir, burt­séð frá tungu­máli, geti tekið sér það í munn. Nafnið þarf líka að vera þannig að það fest­ist í minni og fólk tengi það við ákveðna bíl­teg­und. Áður­nefndur kynn­ing­ar­stjóri nefndi Toyota Corolla sem dæmi. „Þegar nafnið Corolla er nefnt vita allir hvað við er átt“ sagði kynn­ing­ar­stjór­inn sem bætti því svo við að hann gæti ekki botnað í hvers vegna Toyota hefði valið að skipta þessu nafni út fyrir hið ein­kenni­lega heiti Auris „sem eng­inn veit hvernig á að bera fram“.

Getur bíll heitið Tivoli?

Orðið Tivoli eða Tívolí tengja lang­flestir í dag við skemmti­garð­inn heims­þekkta í Kaup­manna­höfn, sem var stofn­aður 1843. Upp­haf­lega hét skemmti­garð­ur­inn Kjöben­havns Tivoli og Vauxhall, stofn­and­inn skírði stað­inn eftir Jardin de Tivoli í París (sem hafði nafnið frá ítalska bænum Tivoli, skammt frá Róm) og Vauxhall Gardens í London. Almenn­ingur kall­aði skemmti­garð­inn frá upp­hafi Tivoli, Vauxhall nafnið (sem breskur bíla­fram­leið­andi hefur notað um ára­tuga skeið) hvarf.

Fyrir nokkru fengu hug­mynda­smiðir suður-kóreska bíla­fram­leið­and­ans SsangYong (sem eng­inn veit hvernig á að bera fram) þá bráð­snjöllu hug­mynd, að þeim þótti, að kalla nýjan smá­jeppa SsangYong Tivoli. Smá­jepp­inn er seldur undir þessu nafni víða um heim. For­svars­menn Tívolís í Kaup­manna­höfn voru ekki jafn upp­rifnir yfir nafn­inu á þessum smá­jeppa og vildu fá bann sett á notkun nafns­ins. Það mál er nú til með­ferðar hjá dönsku einka­leyfa­stof­unni. Tivoli smá­jepp­inn er hins­vegar til sölu víða um heim, þar á meðal á Íslandi. Tívolí í Kaup­manna­höfn reynir af fremsta megni að koma í veg fyrir að nafn skemmti­garðs­ins sé notað á alls kyns vörur, vann til dæmis fyrir skömmu mál gegn hrein­læt­is­tækja­fram­leið­and­anum Geberit, sem vildi skíra nýja gerð sal­ern­is­setu Tivoli. Að sögn fjöl­miðla­full­trúa Tívolís koma árlega upp nokkur mál af þessu tagi, flest enda þau með sam­komu­lagi.

Gingo var of líkt Twingo

Dæmi um mis­heppn­aðar nafn­giftir bíla­fram­leið­enda eru mörg. Fyrir rúmum ára­tug kynnti ítalski bíla­fram­leið­and­inn Fiat nýjan smá­bíl og búið var að útbúa kynn­ing­ar­efni og lit­prent­aða sölu­bæk­linga. Gingo átti hann að heita þessi nýi bíll. Renault fyr­ir­tækið franska var fljótt að bregð­ast við og krafð­ist þess að Fiat breytti nafn­inu, Gingo væri allt of líkt Twingo, bíl sem Renault hefur fram­leitt um ára­bil. Þetta mál end­aði með því að Fiat dró upp gam­alt nafn, nafn sem ekki hafði verið notað um nokk­urra ára skeið, í stað Gingo fékk nýi bíll­inn nafnið Panda.

Ford Focus er í hópi mest seldu bíla heims. Þessi vin­sæli bíll er arf­taki hins vin­sæla Escort sem var fram­leiddur um rúm­lega þrjá­tíu ára skeið. Þegar Ford fyr­ir­tækið kynnti Focus árið 1998 vakti nafnið litla hrifn­ingu útgef­enda þýsks tíma­rits sem ber sama nafn. Á end­anum náð­ist þó sam­komu­lag: Ford mátti nota nafnið en greiddi mjög háa pen­inga­upp­hæð (upp­hæðin aldrei gefin upp) til sam­tak­anna Lækna án landamæra.

Þegar þýski bíla­fram­leið­and­inn Audi setti á mark­að­inn bíl sem bar heitið Q7 brást Nissan fyr­ir­tækið við. Taldi sig eiga rétt á bók­stafnum Q, sem not­aður var á lúx­us­bíl­ana Infiniti. Þjóð­verjarnir höfðu betur í þess­ari deilu og einnig þegar Renault vildi kalla til­tekna bíl­týpu Espace Qadra. Dómstóll úrk­urð­aði að Quadra nafnið væri of líkt Quattro nafni bíl­anna hjá Audi.

Árið 1995 setti Volvo á mark­að­inn nýja „línu“ eins og fram­leið­endur orða það gjarna. Ætlunin var að tvær nýjar gerðir myndu heita S4 og F4. Audi fyr­ir­tækið setti sig upp á móti þessu, sagði að þetta líkt­ist of mikið heit­inu á til­teknum gerðum Audi bíla sem bera bók­staf­inn S.

Touran og Turan

Árið 2003 frétti eig­andi Turan, lít­ils bíla­verk­stæðis í Hamborg, að Volkswagen ætl­aði að setja á mark­að­inn nýja bíl­gerð, Touran. Verk­stæð­is­eig­and­inn beið átekta uns byrjað var að kynna Touran bíl­inn, þá tal­aði hann við lög­fræð­ing. Málið end­aði þannig að Volkswagen gaf öllum starfs­mönnum Touran nýjan bíl og borg­aði verk­stæð­is­eig­and­anum umtals­verða fjár­hæð. Verk­stæð­is­eig­and­inn vildi ekki upp­lýsa um upp­hæð­ina en sagði að hann gæti lagt frá sér skipti­lyk­il­inn og smurkönn­una.

Dauðagildra og táfýlusokkar

Það er margt að var­ast þegar skíra skal nýjan bíl. Ekki bara að forð­ast nöfn eða bók­stafi sem þegar eru í notkun hjá öðrum fram­leið­endum, líka þarf að huga að merk­ingu orða á ýmsum tungu­málum. Einn þekktur bíla­fram­leið­andi, sem ekki verður nafn­greindur hér, hafði ákveðið nafn til­tek­innar bíl­gerðar sem til stóð að fram­leiða fyrir Bras­il­íu­markað. Þegar betur var að gáð kom í ljós að nafnið sem fram­leið­and­anum fannst smellpassa þýddi „Dauða­gildra“ á portú­gölsku. Ekki beint heppi­legt nafn. Annar fram­leið­andi hafði ákveðið nafn sem hljóm­aði svo prýði­lega. Þangað til í ljós kom að þetta hljóm­fagra nafn þýddi „Táfýlu­sokkar“ á tungu­máli eins þeirra landa þar sem til stóð að selja bíl­inn. Nafninu var snar­lega breytt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár