Þingmenn ræddu „fullkomnlega galið“ húsnæðiskerfi á Alþingi

Hús­næð­is­kerfið á Íslandi er full­komn­lega galið, sagði Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í umræðum um hús­næð­is­mál í þing­inu í dag. Settar hafi verið gríð­ar­legar fjár­hæðir í það að hvetja fólk til að skulda í stað þess að hjálpa því að eign­ast og spara. Íbúða­lána­sjóður hefði fengið 55 þús­und millj­ónir, og fólk vildi ekki eiga við­skipti við hann.

Hús­næð­is­mál voru rædd í sér­stakri umræðu í þing­inu nú seinni part­inn, en upp­haf­lega átti umræðan að fara fram klukkan 10:30 í morgun. Umræð­unni seink­aði hins vegar vegna langra umræðna um ramma­á­ætlun undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta.

Það var Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sem var máls­hefj­andi í umræð­unni. Hann fór um víðan völl, eins og reyndar margir þing­menn gerðu, og ræddi ástandið bæði á leigu­mark­aði og hjá þeim sem eiga eða vilja eiga hús­næði. „Það er orðið brýnt að sjá aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar í öllum þessum málum.“ sagði hann í ræðu sinni. Það væri aðkallandi að fá svör frá rík­is­stjórn­inni um það hvað eigi að gera til að bæta stöð­una.

Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, fór yfir það í ræðu sinni hvað hún hefði lagt áherslu á í vinnu ráðu­neyt­is­ins og við vinnu verk­efn­is­stjórnar um breytta skipan hús­næð­is­mála. Hún sagði vinn­una sem teng­ist til­lögum verk­efna­stjórn­ar­innar verði unnin í áföngum og þau fjögur frum­vörp sem unnið hafi verið að í vetur séu fyrsti áfang­inn. Fyrstu tvö frum­vörpin eru komin inn í þingið en Eygló sagði að hin tvö væru á „loka­stigum“. Eins og greint hefur verið frá eru félags­mála­ráðu­neytið og fjár­mála­ráðu­neytið ekki sam­mála um þau frum­vörp og það hvort þau komi fram.

Þingmenn sem tóku til máls voru flestir sam­mála um að aðgerða sé þörf í hús­næð­is­málum. Katrín Jak­obs­dóttir sagði hús­næð­is­mál vera þau mál sem beðið væri eftir og það sem almenn­ingur í land­inu kalli eftir. Hins vegar muni þau frum­vörp sem Eygló hefur komið inn í þingið ekki þau mál sem muni leysa vand­ann.

Færð hvergi húsnæði fyrir 100 þúsund


Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, gagn­rýndi þau við­mið sem væru höfð til hlið­sjónar í útreikn­ingum á hús­næð­is­bótum. „Ég verð bara að upp­lýsa hæst­virtan ráð­herra um það að þú færð hvergi hús­næði í Reykja­vík fyrir 100 þús­und krónur, ef þú ætlar að vera með meira en eitt her­bergi. Og það er jafn­vel ekki hægt að fá stúd­íó­í­búðir á því verði fyrir ein­stak­linga.“ sagði Birgitta. Viðmið þyrftu að vera í sam­ræmi við raun­veru­leik­ann. „Þessi töl­fræði hefði kannski átt við árið 2005.“

Flokks­bróðir hennar, Jón Þór Ólafsson, gerði strangar bygg­ing­ar­reglu­gerðir að umtals­efni. „Sjálfur myndi ég helst vilja lóða saman tvo gáma,“ sagði hann um drauma­hí­býli sín. Bygg­ing­ar­reglu­gerðir gerðu það hins vegar ómögu­legt.

Bryn­hildur Pét­urs­dóttir, þing­kona Bjartrar fram­tíðar, hvatti Eygló til dáða og sagð­ist lít­ast vel á þær hug­myndir sem hún hefði heyrt. Hún gerði þó vaxta­stig lána að umtals­efni, meðal ann­ars væri það hærra en það þyrfti að vera vegna þess að hér væri not­ast við krónu. „Við erum að borga ein­hverja 8 millj­arða á árinu í ár í vaxta­bætur og mér finnst það svo­lítið skrýtið að ríkið og skatt­greið­endur séu að borga fólki bætur vegna vaxta­kostn­aðar sem er svo hár í stað­inn fyrir að ræða það þá kannski að taka upp annan gjald­miðil og lækka vaxta­kostn­að­inn. Þetta er í raun­inni svo­lítið brenglað milli­færslu­kerfi ef út í það er farið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár