Yfir 200 milljónir frá Samherjafélagi til tengdasonar sjávarútvegsráðherra Namibíu

Rann­sak­andi hjá namibísku spill­ing­ar­lög­regl­unni segir að háar óút­skýrðar greiðslur hafi farið frá Esju Fishing til tengda­sonar fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra lands­ins. Umræddir tengda­feðgar reyna þessa dag­ana að losna úr gæslu­varð­haldi.

Tamson Hatuikulipi og Bernhard Esau grímuklæddir í réttarsal í Windhoek í vikunni ásamt lögmanni sínum.
Tamson Hatuikulipi og Bernhard Esau grímu­klæddir í rétt­ar­sal í Windhoek í vik­unni ásamt lög­manni sínum. Mynd: Werner Menges/The Namibian

Willem Oliver, rann­sak­andi hjá namibísku spill­ing­ar­lög­regl­unni ACC, segir að rann­sókn þeirra hafi leitt í ljós Esja Fishing, dótt­ur­fé­lag Samherja í Namibíu, hafi greitt félagi í eigu Tamson Hatuikulipi, tengda­sonar fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra lands­ins, tæpar 30 millj­ónir namibískra dala. Það er jafn­virði 245 millj­óna íslenskra króna á gengi dags­ins í dag.

Þetta sagði rann­sak­and­inn fyrir dóm­stóli í Windhoek höf­uð­borg Namibíu í gær, en þar standa yfir rétt­ar­höld, þar sem teknar eru fyrir beiðnir Bernhard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra lands­ins og áður­nefnds tengda­sonar hans, um að fá að ganga lausir gegn trygg­ingu.

Einnig kom fram í máli Oliver að end­ur­skoð­andi Esju Fishing, hefði sagt spill­ing­ar­lög­regl­unni að fyr­ir­tæki Hatuikulipi hefði aldrei sinnt ráð­gjafa­störfum fyrir útgerð­ar­fyr­ir­tækið, þrátt fyrir að reikn­ingar frá fyr­ir­tæki Hatuikulipi hefðu verið gefnir út fyrir ráð­gjafa­störf.

Hatuikulipi og Esau hafa ásamt fimm öðrum setið í gæslu­varð­haldi síð­ustu mán­uði á meðan namibísk yfir­völd rann­saka mál þeirra. Namibískir fjöl­miðlar hafa fylgst með rétt­ar­höld­unum í Windhoek og gert því sem þar kemur fram skil und­an­farna tvo daga.

Samkvæmt frétt á vef blaðs­ins Infor­m­anté sagði Oliver að rann­sak­endur ACC hefðu kom­ist að því að áform þeirra sem ákærðir hafa verið í mál­inu um spill­ingu í namibískum sjáv­ar­út­vegið hefðu verið teiknuð upp fyrir næstum því ára­tug síðan, á búgarði Esau.

[adspot]

Í frétt blaðs­ins Namibian í dag kemur fram að Oliver sagði ACC hafa sann­anir fyrir því að hluta af áður­nefndum greiðslum Esju Fishing til félags í eigu Tamson Hatuikulipi hefði verið dreift áfram til félaga í eigu ann­arra sem sitja í varð­haldi vegna máls­ins, þeirra James Hatuikulipi, frænda Tamson og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns rík­is­út­gerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Fishcor, og fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herr­ans Sacky Shang­hala.

Þetta eru þeir þrír menn sem nefndir hafa verið „hákarl­arnir“ í umfjöll­unum hér­lendra miðla um Sam­herj­a­skjölin.

Einnig sagði rann­sak­and­inn Oliver, sam­kvæmt frétt Namibian, að rann­sókn ACC hefði leitt í ljós að félög Samherja hefðu tekið þátt í því með ákærðu í mál­inu að leggja á ráðin um að hagn­ast á tví­hliða fisk­veiði­sam­komu­lagi sem gert var á milli rík­is­stjórna Angóla og Namibíu.

Sagður hafa beðið Samherja um að ljúga til um greiðslur

Þá kom einnig fram í dóm­sal í dag að spill­ing­ar­lög­reglan hefði skoðað síma James Hatuikulipi eftir að hann var hand­tek­inn og kom­ist að því að hann hafði sam­band við Samherja til þess að reyna að fela slóð sína, en hann átti aflands­fé­lagið Tunda­vala sem skráð var í Dúbaí í Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum.

Samkvæmt því sem fram kom í umfjöll­unum Kveiks og Stund­ar­innar um Sam­herj­a­skjölin runnu and­virði fleiri hund­ruð millj­óna íslenskra króna inn á reikn­inga þess félags á árunum 2014-2019.

Namibískir miðlar fjalla um að fram hafi komið í máli full­trúa spill­ing­ar­lög­regl­unnar að Hatuikulipi hafi beðið ein­hvern tengilið sinn hjá Samherja um að segja að greiðsl­urnar hefðu farið til félags í Angóla, en ekki Dúbaí-félags­ins.

Sagði að um væri að ræða venjulega þóknun, ekki mútur

Samkvæmt frétt Namibian gaf Tamson Hatuikulipi yfir­lýs­ingu fyrir rétt­inum þar sem hann neit­aði ekki fyrir greiðsl­urnar frá dótt­ur­fé­lagi Samherja, en hann neit­aði því þó alfarið að um hefði verið að ræða mútu­greiðslur. Þessi svör hefur hann áður veitt vegna greiðslna sem honum bár­ust.

Hann sagði í yfir­lýs­ingu sinni að Esja Fishing hefði ein­ungis verið að greiða honum þóknun, eftir að hann og James frændi hans hefðu kynnt full­trúa Samherja fyrir namibískum veiði­rétt­höfum, sem Samherji hefði síðan samið við um kvóta. Lögmaður hans sagði að greiðsl­urnar væru lágar, miðað við það sem tíðk­að­ist.

Hatuikulipi sagði einnig í yfir­lýs­ingu að það væri engin spill­ing í sam­bandi hans við tengda­föður sinn Esau, og að hann væri ekki sekur um að hafa tekið þátt í spill­ing­ar­sam­særi, svikum og pen­inga­þvætti eins og hann hefur verið sak­aður um.

Ásakanir á hendur Jóhannesi

Einnig komu fram í yfir­lýs­ingu Hatuikulipi ásak­anir á hendur upp­ljóstr­ar­anum Jóhann­esi Stef­áns­syni. Hatuikulipi sakar Jóhannes um að hafa svikið fé út úr Samherja til þess að fjár­magna vímu­efna­neyslu og segir að af þeim sökum sé ekki hægt að treysta því sem hann segir.

Sak­born­ing­ur­inn segir allt málið í heild sinni byggt á því að Jóhannes hafi horn í síðu Samherja og vilji koma höggi á íslenska sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið.

Tilbúnir að reiða fram háar tryggingar gegn því að losna úr haldi

Hatuikulipi býðst til þess að veita rík­inu miklar trygg­ingar gegn því að verða lát­inn laus. Maðurinn er ansi auð­ugur, en sam­kvæmt frétt Namibian á hann 11 öku­tæki, sem eru metin á nærri 100 millj­ónir íslenskra króna og 22 fast­eignir, sem metnar eru á um 326 millj­ónir íslenskra króna.

Hann sagð­ist til­bú­inn að láta ríkið hafa 200 þús­und namibíska dali, jafn­virði 1,6 millj­óna íslenskra króna, í reiðufé og þrettán skuld­lausar fast­eignir vítt og breitt um landið í trygg­ingu til þess að fá frelsi á meðan rann­sókn spill­ing­ar­lög­regl­unnar heldur áfram.

Samkvæmt frétt Namibian Sun hefur Bernhard Esau boð­ist til þess að greiða 50 þús­und namibíska dali í reiðufé og láta ríkið hafa eignir að and­virði 23 millj­óna namibískra dala, 188 millj­óna íslenskra króna, til þess að fá að losna úr varð­haldi.

Fulltrúi spill­ing­ar­lög­regl­unnar telur þó ekki rétt að leysa tví­menn­ing­ana úr haldi, þar sem hætta sé á að þeir spilli fyrir rann­sókn yfir­valda eða reyni að skjóta undan eignum sínum. Rétt­ar­höldin í Windhoek halda áfram á morgun, fimmtu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár