Grikkland 2.0 - Ný vopn í baráttunni dregin fram

Sama dag og nýr fjár­mála­ráð­herra tók við stjórn­ar­taumunum í Grikk­land, Yanis Varoufakis úr Syriza flokknum, birt­ist eftir hann 60 síðna rit­gerð í bóka­formi inn á vef­síðu Amazon. Hún var þar öllum aðgengi­leg frá fyrsta degi hans við völd í fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Bókin, sem nefn­ist Europe After the Minotaur - Greece and the Global Economy, er yfir­lýstur leið­ar­vísir Varoufakis út úr þeim mikla vanda sem Grikkir eru í um þessar mundir. Að stofni til er þessi rit­gerð stytt útgáfa af annarri bók hans um svipuð atriði, The Global Minotaur - America, Europe and the Future of Global Economy.

Raunhæf leið?


Í stuttu mál er lausnin á vanda Grikkja þessi: Varoufakis vill tengja end­ur­greiðslu á opin­berum skuldum Grikkja beint við það hvernig efna­hagur lands­ins gengur með hag­vaxt­ar­tengdu skulda­bréfi, og falla frá fyrra plani um end­ur­greiðslu skulda með stór­felldum nið­ur­skurði opin­berra starfa og eigna­sölu. Grikkir hafa unnið eftir því plani und­an­farin tvö ár og hafa haft stuðn­ing Seðla­banka Evrópu og Evr­ópu­sam­bands­ins við þær aðgerðir. Hag­vaxt­ar­tölur í Grikk­landi hafa verið örlítið að þok­ast upp á við, en atvinnu­leysi hefur lítið minnkað. Það er nú 25,8 pró­sent, sam­kvæmt tölum Eurostat, hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins. Með­al­talið í Evrópu er mun lægra, þó nokkuð hátt sé; 11,4 pró­sent.

Varoufakis nefnir í grein­ingu sinni að kröfu­hafar lands­ins, vog­un­ar­sjóðir sem eiga kröfur á landið þar að stórum hluta, geti ekki end­ur­heimt skuldir með óraun­hæfri áætlun um gang efna­hags­mála í Grikk­landi. Með því að tengja end­ur­greiðslur við hag­vöxt og end­ur­semja um höf­uð­stól skulda gríska rík­is­ins, sé komið traust­ara land undir fótum almenn­ings í Grikk­landi sem hafi til þessa borið hit­ann og þung­ann af slæmri stöðu efna­hags­mála í land­inu, sem hann beri ekki ábyrgð á nema að litlum hluta. „Við getum ekki haldið áfram lengur. Nýtt upp­haf er nauð­syn­legt,“ segir Varoufakis. Hann segir að sú mynd sem máluð hafi verið upp af Grikkjum, á þá leið að þeir séu óráðs­íu­menn og eyðslu­klær, sé ekki sann­gjörn. Vandinn í efna­hags­málum heims­ins sé sam­eig­in­lega á ábyrgð hins alþjóða­vædda fjár­mála­mark­aðar.

Þá rök­styður hann að leið mik­ils nið­ur­skurðar í opin­berum rekstri, hafi ekki gefið góða raun og grafið enn meira undan veik­burða efna­hag lands­ins.

A question of respect (or lack ther­eof)... http://t.co/USYdsC6zNJ

— Yanis Varoufakis (@yanisvaroufakis) January 29, 2015

1 til 1,5 prósent af landsframleiðslu

Með því að minnka end­ur­greiðslu­byrði Grikk­lands til kröfu­hafa lands­ins úr 4,5 pró­sent af árlegri lands­fram­leiðslu niður í 1 til 1,5 pró­sent, þá á landið að geta end­ur­ráðið opin­bera starfs­menn og hafið end­ur­reisn­ina af meiri krafti „á for­sendum Grikkja“.

Einn af þeim sem hefur hrósað Varouafakis fyrir þennan leið­ar­vísi út úr efna­hag­skröggum er Paul Krugman, sem hlaut Nóbels­verð­launin í hag­fræði árið 2008. Hann sagði í pistli á vef New York Times, að ef Þjóð­verjar, sem hafa beitt sér af alefli fyrir því að Grikkir beygi sig undir kröfur Seðla­banka Evrópu og Evr­ópu­sam­bands­ins, geri kröfu um að Grikkir end­ur­greiði skuldir sínar að fullu, alveg sama þó hag­töl­urnar bendi til þess að það sé ekki að ganga upp, þá sé sú afstaða „brjál­æði“.

Ekki svo einfalt


Allt hljómar þetta kannski ein­falt, svona fljótt á litið, en svo er ekki. Seðla­banki Evrópu hefur þegar brugð­ist við nýrri stefnu stjórn­valda í Grikk­landi með áhrifa­miklum aðgerðum, sem vinna þvert gegn áformum nýrrar rík­is­stjórnar Al­ex­is Tsipras for­sæt­is­ráð­herra. Sú fyrsta var að til­kynna um að Seðla­bank­inn myndi ekki lána meira með veði í grískum rík­is­skulda­bréfum. Önnur aðgerðin var síðan að snúa alfarið frá því að aðstoða Grikki við að ná vopnum sínum með sér­fræði­ráð­gjöf starfs­manna bank­ans. Skila­boðin frá Mario Draghi, for­seta banka­ráðs Seðla­banka Evrópu, og félögum er skýr; þið verðið að leysa úr þess­ari stöðu sjálf.

[caption id="attachment_11652" align="alignnone" width="3040"] Æðstu ráða­menn Grikk­lands hafa fundað með helstu ráða­mönnum Evr­ópu­sam­bands­ins að und­an­förnu. Fund­irnir hafa ekki skilað neinum árangri, og hafa sjón­ar­mið nýrra vald­hafa mætt and­stöðu hjá Seðla­banka Evrópu.[/caption]

Æðstu ráðamenn Grikklands hafa fundað með helstu ráðamönnum Evrópusambandsins að undanförnu. Fundirnir hafa ekki skilað neinum árangri, og hafa sjónarmið nýrra valdhafa mætt andstöðu hjá Seðlabanka Evrópu.
Æðstu ráða­menn Grikk­lands hafa fundað með helstu ráða­mönnum Evr­ópu­sam­bands­ins að und­an­förnu. Fund­irnir hafa ekki skilað neinum árangri, og hafa sjón­ar­mið nýrra vald­hafa mætt and­stöðu hjá Seðla­banka Evrópu.

Fundur Varoufakis með fjár­mála­ráð­herra Þýska­lands, Wolfang Schaeuble, frá því í gær, virt­ist vera svip­uðu marki brenndur. Útaf þeim fundi kom Varoufakis með þau sjón­ar­mið, að þeir félagar hefðu verið „sam­mála um að vera ósam­mála“. En það myndi engu breyta. „Við erum sjálf­stætt ríki, við búum við lýð­ræði, við höf­um gert sam­komu­lag við þjóð­ina; við mun­um heiðra það sam­komu­lag,“ sagði Varoufakis í þing­ræðu við mikið lófa­klapp, eftir fundi með ráða­mönnum í Evrópu. Þá gerði hann upp­gang nas­ism­ans í Þýska­landi, á öðrum og þriðja ára­tug síð­ustu aldar, að umtals­efni í við­tölum, og sagði hann vera áminn­ingu til allrar Evrópu. „Ég held að af öll­um þjóðum Evr­ópu skilji Þjóðverj­ar þessi skila­boð best,“ sagði hann í sam­tali við ARD í Þýska­landi. „Ef þú niður­læg­ir stolta þjóð of lengi... án ljóss við enda gang­anna, þá mun þrýst­ing­ur­inn rísa í þessu landi, á ein­hverj­um tíma­punkti.“

Hvaða gera kröfuhafarnir?


Stutt er liðið frá sögu­legum kosn­inga­sigri Syriza og stefnu­breyt­ingu nýrra vald­hafa, eða innan við mán­uður. Á næstu mán­uðum mun koma í ljós hvort nýju vopnin í efna­hags­bar­átt­unni hjá nýrri rík­is­stjórn Tsipras, Varoufakis og félaga mun reyn­ast vel eða illa, og hvort kröfu­hafar lands­ins sýni sveigj­an­leika þegar kemur að því að end­ur­semja um skulda­byrgði þess. Eitt er þó aug­ljóst og svo til óum­deilt, eins og mál standa nú. Sjálfs­traustið skortir ekki hjá leið­togum nýrrar rík­is­stjórnar, í þess­ari vöggu lýð­ræð­is­sög­unnar í heim­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár